Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

RÚV sýknað í meiðyrðamáli

Hvorki Eldur Smári né lög­maður hans mættu

RÚV sýknað í meiðyrðamáli
Eldur Smári á mót­mælum í sumar. Mætti ekki í dag þegar dæmt var í mál­inu. Mynd: Víkingur

Dómur var kveð­inn upp í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag í meið­yrða­máli Elds Smára Krist­ins­sonar gegn RÚV og Berg­steini Sig­urðs­syni frétta­manni.

Forsaga máls­ins er sú að Eldur var fram­bjóð­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins sem bauð fram í Alþing­is­kosn­ingum í fyrra og var odd­viti flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Í þætt­inum ræddi Berg­steinn við Arnar Þór Jónsson, for­mann Lýð­ræð­is­flokks­ins, um Eld.

„Tölum einmitt um þjóna og þá sem þið veljið til þjón­ustu. Oddviti flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, Eldur Smári Krist­ins­son, hann er for­maður Sam­tak­anna 22, sam­taka sem hafa verið sökuð um að ala á andúð í garð trans fólks, hefur verið fjar­lægður af lög­reglu úr grunn­skóla fyrir að mæta þar í leyf­is­leysi, og mynda starfs­fólk og börn, hann hefur sakað þau sem berj­ast fyrir rétt­indum trans fólks um barn­a­níð, þar á meðal nafn­greinda íslenska bar­áttu­konu, hann hefur líka þrá­stag­ast um að hún sé karl, farið mjög klúrum og rudda­legum orðum um kyn­færi hennar á opin­berum vett­vangi…“

Eldur var ekki sáttur við þessi ummæli og fór fram á að RÚV greiddi honum miska­bætur. Var Eldur ekki fjar­lægður af lög­reglu úr grunn­skól­anum heldur til­kynnti skól­inn til Reykja­vík­ur­borgar vegna þess að Eldur var á lóð skól­ans í leyf­is­leysi og kvart­aði borgin til lög­reglu í fram­hald­inu.

Rétt­ur­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að rétt væri að sýkna RÚV og Berg­stein og er Eldi Smára gert að greiða tæpa milljón í máls­kostnað.

Í yfir­lýs­ingu sem Eldur birti á sam­fé­lags­miðlum seg­ist hann ætla ráð­færa sig við lög­fræð­inga sína áður tekin verður ákvörðun um hvort dómnum verði áfrýjað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Innlent

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina