Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sanna tilkynnir framboð

„Gerum þetta saman því við viljum vor til vinstri“

Sanna tilkynnir framboð
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir Sanna býður sig fram til borg­ar­stjórnar Mynd: Víkingur

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins í Reykja­vík og vin­sæl­asti borg­ar­full­trúi borg­ar­innar, hyggst bjóða sig fram í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í vor, en að hún ætli ekki að hætta í Sós­í­alista­flokknum, þrátt fyrir þrýst­ing frá nýrri stjórn. Þetta kemur fram á nýrri heima­síðu hennar þar sem hún boðar breiða vinstri­sam­stöðu og leggur áherslu á félags­hyggju í borg­ar­stjórn­ar­málum.

Sanna segir að lausnir fyrir Reykja­vík felist í því að byggja borg sem setur lífs­gæði og rétt­læti í for­grunn. Hún hvetur fólk á vinstri vængnum til að taka höndum saman fyrir næstu kosn­ingar og segir nauð­syn­legt að skapa „raun­veru­legt afl“ sem geti unnið að breyt­ingum.

Gagnrýnir markaðsvæðingu húsnæðis og dýra þjónustu

Í yfir­lýs­ingu sinni segir Sanna stærsta vand­ann í Reykja­vík vera mark­aðsvæð­ingu hús­næðis, sem hún segir hafa verið afhent verk­tökum, brösk­urum og leigu­sölum á kostnað almenn­ings.

Afleið­ing­arnar séu skýrar: fólk neyð­ist burt úr borg­inni í leit að við­ráð­an­legu hús­næði eða situr föst í ótryggum aðstæðum. Hún bendir einnig á að sjálf­sögð þjón­usta við börn, svo sem tóm­stundir, sé orðin of dýr, og sama gildi um almenn­ings­sam­göngur, sem séu bæði dýrar og tíma­frekar.

Vill borg sem þjónar fólki – ekki fjármagnseigendum

Sanna segir að Reykja­vík eigi að byggj­ast upp út frá þörfum barna, eldra fólks, leigj­enda, ungs fólks og tekju­lágra. Hún kallar eftir öfl­ugri nær­þjón­ustu og hverfum þar sem stutt er í allt sem skiptir máli.

Hún leggur jafn­framt áherslu á sann­gjarnt skatt­kerfi og gagn­rýnir að auð­ug­ustu íbúar borg­ar­innar greiði lítið til sam­fé­lags­ins. Reykja­vík eigi að leiða bar­átt­una fyrir útsvari á fjár­magnstekjur þeirra rík­ustu.

Óvissa innan Sósíalistaflokksins – en ætlar ekki að hætta

Sanna vísar í mikla óvissu innan Sós­í­alista­flokks­ins eftir stjórn­ar­skipti og telur að margir hafi áhyggjur af stefnu flokks­ins. Hún seg­ist þó ætla að vera áfram innan hans þrátt fyrir þrýst­ing frá nýrri stjórn.

„Ég starfa fyrir gras­rót­ina og fólkið í borg­inni,“ segir hún og bætir við að hún trúi því að á næsta aðal­fundi taki við stjórn með skýra sýn og traust félaga.

Erfitt er að lesa í orð Sönnu um það hvort hún hygg­ist bjóða sig fram undir fána Sós­í­alista­flokks­ins eða nýs fram­boðs en hún ætlar að minnsta kosti ekki að segja sig úr flokknum.

Boðar breiða vinstrisamstöðu

Sanna kallar eftir sam­eig­in­legum vett­vangi vinstr­is­ins, óháð flokks­merkjum, þar sem hug­myndir fái að blómstra og unnið sé út frá því sem sam­einar frekar en sundrar.

Hún hvetur einnig fólk í öðrum sveit­ar­fé­lögum til að taka þátt í sam­tali og byggja upp tengsl þvert á landið.

„Gerum þetta saman því við viljum vor til vinstri,“ segir hún í lok yfir­lýs­ing­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum