Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Lína Birgitta þróaði með sér búlemíu þrettán ára

„Það sem ég sá alltaf eftir er að ég kenndi vin­konu minni að æla“

Lína Birgitta þróaði með sér búlemíu þrettán ára
Lína Birgitta Sig­urð­ar­dóttir Lína Birgitta opnar sig upp á gátt í Heim­ild­inni Mynd: Instagram-skjáskot

Í við­tali við Heim­ild­ina segir Lína Birgitta Sig­urð­ar­dóttir að hún leggi mikla áherslu á heilsu sína, bæði and­lega og lík­am­lega. Hún er 34 ára gömul og stefnir að því að vera í sínu besta formi þegar hún nær fer­tugu. Lífið hefur þó ekki verið áfalla­laust; faðir hennar sat í fang­elsi og sjálf glímdi hún um ára­bil við alvar­legar and­legar áskor­anir á borð við ofsa­kvíða, þrá­hyggju og búlemíu. Þrátt fyrir að fyrsta fyr­ir­tæki hennar hafi farið í þrot horfir hún nú björtum augum fram á veg­inn og hyggst hasla sér völl á erlendum mark­aði.

Í við­tal­inu lýsir hún því hvernig þung­lyndi og kvíði tóku að sækja á hana á ung­lings­árum, meðal ann­ars vegna veik­inda móður hennar og áhyggja af stöðu föð­ur­ins. Hún var sett á þung­lynd­is­lyf, sem drógu úr þrá­hyggj­unni en bættu ekki líðan hennar í heild. Lyfin höfðu einnig áhrif á þyngd hennar, sem hafði nei­kvæð áhrif á sjálfs­mynd­ina, ekki síst þar sem hún hafði áður fengið að heyra niðr­andi athuga­semdir um lík­ama sinn. „Ég var eins og kúla. Ég hafði verið bút­t­aður krakki og oft fengið að heyra það. Á þessum lyfjum bætti ég meira á mig og það var erfitt. Það hafði áhrif á sjálfs­traustið. Nokkrir ein­stak­lingar í skól­anum voru með athuga­semdir um holda­farið mitt.“

Lína Birgitta segir að á þessum tíma hafi henni fund­ist hún vera stjórn­laus í lífi sínu. Til að end­ur­heimta ein­hverja stjórn fór hún, um 13 ára aldur, að fram­kalla upp­köst. Það varð upp­hafið að langri og erf­iðri bar­áttu við búlemíu sem stóð í nærri tíu ár. Hún lýsir því hvernig sjúk­dóm­ur­inn tók sífellt meiri yfir­hönd­ina og hvernig hún fann jafn­vel til sam­visku­bits gagn­vart vin­konu sem hún kenndi að æla, áður en sú vin­kona full­viss­aði hana síðar um að hún bæri ekki ábyrgð á veik­indum hennar.

„Það sem ég sá alltaf eftir er að ég kenndi vin­konu minni að æla, en hún var líka búttuð. Ég var með það á sam­visk­unni þar til ég tal­aði við hana fyrir nokkrum árum síðan og sagð­ist ekki trúa því að hafa komið henni í þetta með mér. Hún varð líka ótrú­lega veik af þessu, en sagði að þótt ég hafi kennt henni þetta þá bæri ég ekki ábyrgð á því.“

Í við­tal­inu segir hún einnig frá því hvernig hegð­unin þró­að­ist, úr því að þurfa að fram­kalla upp­köst með hönd­unum yfir í að geta kastað upp með ákveð­inni lík­ams­stöðu. Að lokum varð ástandið svo alvar­legt að hún kastaði upp jafn­vel eftir léttan mat eða vatns­drykkju, oft mörgum sinnum á dag.

Að end­ingu ákvað hún, gjör­sam­lega örmagna, að leita sér hjálpar. Heim­il­is­læknir vís­aði henni á Hvíta­bandið og þar varð vendi­punktur þegar starfs­maður sagði rétt orð á réttum tíma. Smám saman náði hún bata og í dag segir hún búlemíu ekki lengur hluta af lífi sínu. Hún upp­lifir ekki lengur hvöt til að æla eftir mat og segir það vera eitt­hvað sem hún hefði aldrei trúað að gæti orðið að veru­leika.

„Ég fæ ekki einu sinni upp þá hugsun að ég vilji æla eftir mat. Það er alveg farið frá mér, sem er eitt­hvað sem ég bjóst ekki við að myndi ger­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina