Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Kópavogur hefur aldrei verið talinn neitt venjulegur“

Anna Krist­jáns villt­ist í þokunni í Kópavogi

„Kópavogur hefur aldrei verið talinn neitt venjulegur“

Vél­stjór­inn og húmorist­inn Anna Krist­jáns heiðrar land­ann með nær­veru sinni um hátíð­arnar en venju­lega býr hún á Tenerife, eins og alþjóð veit. Hún segir frá því í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu sinni á Facebook, hvernig henni tókst að vill­ast í þokunni í Kópavogi.

Anna, sem á afmæli í dag, segir í morgun frá heim­sókn sem hún fór í til vina­fólks hennar sem býr í Kópa­vog­inum en hún not­aði sím­ann til að rata á nýja heim­il­is­fang hjón­anna.

Dagur 2331 – Kópa­vogur.

„Ég skrapp í Kópa­vog­inn í gær að heim­sækja vina­fólk sem ég hafði ekki hitt í mörg ár. Þau bjuggu í nýju húsi eigi all­fjarri Smára­lind og ég not­aði sím­ann til að leið­beina mér stystu leið­ina til þeirra. Ferðin gekk ljóm­andi vel og ég fékk bæði kaffi og smákökur og langt og mikið sam­tal við þau hjónin.“

En svo kom að heim­ferð og þá fór gam­anið að kárna.

„Svo kom að því að kveðja og ég út í bíl og taldi mig þekkja nágrenni Smára­lind­ar­innar til að geta ekið um blind­andi þrátt fyrir þok­una sem birgði mér sýn að miklu leyti.

En Kópa­vogur hefur aldrei verið tal­inn neitt venju­legur.“

Önnu tókst á ein­hvern hátt að taka ranga beygju og enda á Reykja­nes­braut­inni og það í ranga átt.

„Ég fór yfir á ljósum og svo til hægri á næstu ljósum alveg eins og í gamla daga og færði mig svo yfir á vinstri akrein þar sem ég þurfti enn að bíða á ljósum. Þegar greidd­ist úr umferð­inni, hélt ég áfram og átt­aði mig þá á að ég væri komin á hrað­braut­ina, afsakið Reykja­nes­braut­ina áleiðis til Hafn­ar­fjarðar. Helvítis þokan.“

Allt fór þó vel að lokum og komst hún loks á leið­ar­enda og þakk­aði fyrir að ein­ungis ein umferð­ar­ljós séu á Suð­ur­hluta Tenerife.

„Ég fann hring­torg uppi á annarri hæð þar sem ég náði að snúa við og halda til norð­urs og komst loks alla leið­ina í Selja­hverfið og allt fór vel að lokum. Ó sú náð að eiga Jesúm með aðeins ein umferð­ar­ljós á suð­ur­hluta Tenerife.

Helvítis nagla­dekkin. Afsakið, það eru víst engin nagla­dekk undir bílnum, en heim komst ég þó.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina