Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Glæpir, harmleikir og kaupmáli í brennideplinum á árinu

Tíu mest lesnu fréttir Mannlífs 2025

Glæpir, harmleikir og kaupmáli í brennideplinum á árinu
Reyn­is­fjara er einn vin­sæl­asti ferða­manna­staður Íslands Mynd: Víkingur

Árið 2025 ein­kennd­ist af alvar­legum saka­málum, sárs­auka­fullum fjöl­skyldu­harm­leikjum og fréttum af þekktum ein­stak­lingum, ef marka má vin­sæl­ustu fréttir Mannlífs á árinu. Hér fyrir neðan er stutt yfir­lit yfir tíu mest lesnu frétt­irnar á síð­unni, fréttir sem margar hverjar varpa ljósi á dramat­ískar atburða­r­ásir, brotala­mir í sam­fé­lag­inu og veita inn­sýn í líf fræga fólks­ins.

Um leið vill rit­stjórn Mannlífs þakka les­endum inni­lega fyrir stuðn­ing­inn á árinu og óskum við þjóð­inni gæfu­ríks kom­andi árs, fullu af birtu og yl.

10. Maria tekin með tvö kíló af kóki í Leifsstöð

Hér­aðs­dómur Reykja­ness dæmdi í nóv­em­ber Mariu Josefu Exposito Urriza í 21 mán­aða fang­elsi fyrir inn­flutn­ing á tæpum tveimur kílóum af kóka­íni. Hún ját­aði brotið en hún hafði ekki áður gerst brot­leg hér á landi.

9. Margrét Löf játar ofbeldi gegn foreldrum sínum

Morðið á Hans Löf skók sam­fé­lagið í apríl en nýlega var dóttir hans, Margrét Löf dæmd í 16 ára fang­elsi fyrir að valda dauða hans.

Í níundu mest lesnu frétt árs­ins hjá Mannlífi er sagt frá því að Margrét Halla Hans­dóttir Löf hafi játað að hafa beitt for­eldra sína ofbeldi. Hún neit­aði þó að hafa átt þátt í and­láti föður síns.

8. Margrét Löf neitar sök í andláti föður síns

Í annarri vin­sælli frétt um sama mál kemur fram að Margrét neiti sök vegna and­láts föður síns í Garðabæ. Rannsókn máls­ins var umfangs­mikil og beind­ist meðal ann­ars að gagna­öflun og smá­at­riðum í atburða­rásinni, að því er fram kom í frétt­inni.

7. Minningarathöfn á Fáskrúðsfirði vegna andláts ungrar konu

Djúp sorg ríkti á Fáskrúðs­firði í ágúst eftir svip­legt and­lát ungrar konu. Í sjö­undu mest lesnu frétt­inni var sagt frá minn­ing­ar­at­höfn sem haldin var í kirkju bæj­ar­ins, um Bríeti Irmu Ómars­dóttur, 24 ára. Rætt var við prest í Fjarða­byggð sem sagði sam­fé­lagið í áfalli.

6. Eiginmaður Jóhönnu Guðrúnar heldur áfram að tapa peningum

Pizzan ehf., í eigu Ólafs Friðriks Ólafs­sonar, eig­in­manns Jóhönnu Guðrúnar, tap­aði 55,7 millj­ónum á síð­asta ári. Frá þessu sagði Mannlíf og les­endur kunnu að meta það. Í frétt­inni kom einnig fram að þrátt fyrir bættan rekstur hafi fyr­ir­tækið verið rekið með tapi árum saman.

5. Kominn fimmtán ára á Litla-Hraun

Fimmta mest lesna frétt Mannlífs árið 2025 er nær­mynd af Stefáni Blackburn.

Stefán Blackburn er einn af þremur mönnum sem dæmdir voru fyrir rán og mann­dráp í mars en maður á sjö­tugs­aldri fannst nær dauða en lífi í Gufu­nesbæ og lést síðar á sjúkra­húsi. Stefán hóf glæpa­feril aðeins 15 ára gam­all. Fréttin rýnir í langa brota­sögu hans og hvernig málið þró­að­ist.

4. Bænastund í Mosfellsbæ vegna andláts 13 ára drengs

Enn eitt áfallið reið yfir Ísland þegar ungur drengur lést í Mos­fellsbæ en fjórða mest lesna fréttin fjall­aði um þá sorg sem Mos­fell­ingar upp­lifðu í kjöl­far and­láts­ins.

Bæna­stund var haldin í Lága­fells­kirkju og bæj­ar­yf­ir­völd og skóla­sam­fé­lagið hrundu af stað mik­illi sál­gæslu vegna atburð­ar­ins.

3. Myndband af systur níu ára stúlkunnar í Reynisfjöru vekur heimsathygli

Níu ára þýsk stúlka lést í hræði­legu slysi í Reyn­is­fjöru í ágúst­byrjun. Mannlíf sagði frá mynd­bandi sem sýndi systur níu ára stúlkunnar kalla á hjálp en þegar fréttin var rituð hafði verið horft á það tæp­lega 800 þús­und sinnum á sam­fé­lags­miðl­unum. Atburð­ur­inn í Reyn­is­fjöru vakti upp umræð um öryggi ferða­manna.

2. Myndband í dreifingu af slysinu í Reynisfjöru

Annað mynd­band frá sama harm­leik fór eins og eldur í sinu um netið og um það fjall­aði næst mest lesna frétt Mannlífs á árinu. Þar sjást ferða­menn í ráða­leysi fylgj­ast með þegar stúlkan berst út með straumnum. Hún var síðar úrskurðuð látin.

1. Jóhanna Guðrún gerði kaupmála við eiginmanninn

Vin­sælasta frétt árs­ins fjallar um kaup­mála söng­kon­unnar Jóhönnu Guðrúnu Jóns­dóttur og eig­in­manns hennar, Ólafs Ólafs­sonar, sem þau gerðu á árinu. Greint var frá samn­ingnum í Lög­birt­inga­blað­inu og greip Mannlíf það á lofti og reynd­ist sann­spátt um áhuga les­enda á mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð