Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Maðurinn sem kærði sjálfan sig

Árni Guð­munds­son félags­upp­eld­is­fræð­ingur hefur verið í for­svari fyrir þá sem gagn­rýna net­sölu á áfengi og aug­lýs­ingar á því, sem hann segir vera ólög­legar. Árni starfar við Háskóla Íslands í deild tóm­stunda- og félags­mála­fræði og hefur verið virkur í fag- og fræða­sam­fé­lagi æsku­lýðs­mála hér­lendis og erlendis.

Maðurinn sem kærði sjálfan sig
Árni Guð­munds­son félags­upp­eld­is­fræð­ingur og for­maður sam­tak­anna For­eldra­sam­tök gegn áfeng­is­aug­lýs­ingum Berst ötul­lega gegn net­sölu og aug­lýs­ingum á áfengi og er óánægður með yfir­völd Mynd: Víkingur

Eftir að Árni Guð­munds­son kærði sjálfan sig til lög­reglu vegna eigin áfeng­is­kaupa á net­inu var hann af sumum upp­nefndur „leið­in­leg­asti maður Íslands­sög­unnar“. Hann kippir sér lítið upp við það og segir að upp­nefnið dragi ein­fald­lega athygl­ina að mál­stað sínum og að það sé ekk­ert annað en jákvætt og gott mál og segir einnig að honum sé alveg slétt sama hvað fólk kalli hann eða upp­nefni. Árni segir með ákveðnum hætti að unga kyn­slóðin eigi ein­fald­lega skilið að fá að vera alveg í friði frá áreiti áfeng­is­iðn­að­ar­ins; því yngri kyn­slóðir þekki alls ekki bak­föll í for­varn­ar­málum.

„Ég held að þarna séum við komin með gott dæmi þegar þú ert í opin­berri umræðu og menn eru búnir með nestið sitt og geta ekki farið í rök­rænar eða heil­brigðar umræður. Þá nota menn svona stimplun.“ Spurður um hvernig honum líði með tit­il­inn eða stimp­il­inn hristir hann haus­inn (enda er Árni langt frá því að vera leið­in­legur maður, hann er skemmti­legur, við­ræðu­góður og fjöl­hæfur maður sem spilar á bassa og und­ir­rit­aður hefur aldrei á ævinni hitt leið­in­legan bassa­leik­ara) og segir ein­fald­lega:

„Þetta er eins og að skvetta vatni á gæs. Ég er bara feg­inn. Þetta dregur athygli að mál­staðnum. Mér er alveg sama hvað fólki finnst um mig, sér­stak­lega þeim sem eru þess sinnis eins og þeir sem eru að gera svona færslur. Þannig að ég uni þessum titli vel. Íslands­sög­unnar, ekki lands­ins!“ 

Árni Guð­munds­son er í við­tali hjá Mannlífi þar sem farið er yfir stöð­una í áfeng­is­málum hér á landi, en Árni er afar ósáttur við net­sölu á áfengi sem og aug­lýs­ingar á því.

Áfengi einn af stærstu áhættuþáttum brjóstakrabbameins

Samkvæmt mati Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar má rekja stærsta hluta van­heilsu fólks í Evrópu til þess lífs­stíls sem það stundar, og heilsa ein­stak­lings­ins bygg­ist að stórum hluta á vali hans og ákvörð­unum um hvernig hann hagar lífi sínu. Kemur fram að þar vegi áfeng­is­neysla þungt, en neysla á áfengi er annar stærsti áhættu­þáttur sjúk­dóma í Evrópu og sá þriðji stærsti í heim­inum öllum.

Og óhóf­leg neysla áfengis sem og ann­arra vímu­gjafa er án alls vafa einn af helstu áhættu­þáttum lélegrar heilsu og ótíma­bærra dauðs­falla hjá ein­stak­lingum á aldr­inum 25-29 ára. Þá er vert að nefna að mikil drykkja áfengis er einn af stærstu áhættu­þáttum brjóstakrabba­meins hjá konum og benda grein­ingar til þess að áhættan sé næstum því 50% meiri hjá þeim sem að stunda mikla áfeng­is­drykkju miðað við þær konur sem ekki neyta þess. Þá sýna nið­ur­stöður rann­sókna að dag­leg áfeng­is­neysla - jafn­vel seint á ævinni - teng­ist hækk­andi tíðni krabba­meins í ristli og enda­þarmi.

Já, það fylgir ekki bara þynnka og bömmer - almenn og lík­am­leg van­líðan - neyslu áfengis, heldur svo margt annað og mikið af því skerðir lífs­gæði fólks um heilan hell­ing og sumt er hrein­lega lífs­hættu­legt eins og dæmin hér að ofan sanna.

Berst fyrir málstaðinn

Árni Guð­munds­son hefur árum saman barist ötul­lega gegn aug­lýs­ingum á áfengi hér á landi og hefur ritað fjölda greina er varða málið. Og hann hefur verið meira en óþreyt­andi í að gagn­rýna aug­lýs­ingar á áfengi og mjög aukið og mun auð­veld­ara aðgengi að þess­ari meira en umdeildu en afar mikið not­uðu vöru: Áfengi.

Árni er for­maður sam­tak­anna For­eldra­sam­tök gegn áfeng­is­aug­lýs­ingum, en þau voru stofnuð þann 1. maí árið 2008. Markmið sam­tak­anna er að berj­ast gegn birt­ingu ólög­legra áfeng­is­aug­lýs­inga og bættu aug­lýs­inga­sið­ferði með sér­staka áherslu á vernd barna og ung­linga.

Sjálfur starfar Árni - með­fram for­mennsku í áður­nefndum sam­tökum - við Háskóla Íslands í deild tóm­stunda- og félags­mála­fræða. Hann hefur verið afar virkur í fag- og fræða­sam­fé­lagi æsku­lýðs­mála bæði hér­lendis og erlendis og var hann um langt skeið for­maður Samtaka Norræna félags­mið­stöðva.

2.800 billjónir í áfengisáróður

Árni segir í við­tali við Mannlíf að „áfeng­is­iðn­að­ur­inn eyðir árlega 2.800.000.000.000 krónum, 2.800 billjónum í áfeng­is­á­róður“ og segir hann að þessi stað­reynd hafi „aug­ljós­lega áhrif, ekki síst á Íslandi, og er veru­leg ógn gegn þeim lýð­heilsu­m­ark­miðum sem við höfum sett okkur, ekki síst gagn­vart börnum og ung­mennum - vel­ferð þeirra og rétt­indum til að vera laus við þennan áróður.“

Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það að áfeng­is­neysla er án alls vafa eitt algeng­asta vanda­mál nútíma­sam­fé­laga; hefur mjög nei­kvæð áhrif á fjöl­marga ein­stak­linga með ýmsum hætti. Bæði hvað varðar neyt­and­ann sjálfan - aðstand­endur hans og fleiri honum tengdum. Ljóst er að mis­notkun á áfengi hefur vakið sér­staka og mjög mikla athygli sem umfangs­mikið áhyggju­efni í sam­fé­lag­inu og ýmis lík­am­leg og and­leg heilsu­far­s­vanda­mál má rekja til mis­notk­unar þess. Áfeng­is­neysla hefur nei­kvæð félags­leg áhrif; til að mynda á fjöl­skyldu­sam­bönd og stöð­ug­leika í vinnu. Áfeng­is­neyslan tekur sinn toll af heilsu ein­stak­lings­ins; veldur oft til­finn­inga­legum skaða sem hefur áhrif á sjálfan alkó­hólist­ann og aðra sem eru í hans nán­asta umhverfi og ljóst að slíkt getur og hefur spillt nánum tengslum við ætt­ingja, vini og aðra sem alkó­hólist­inn umgengst, og getur í verstu til­fellum án alls vafa verið lífs­hættu­legt.

Á Íslandi er áfengi eina eit­ur­lyfið sem lög­legt er. Og aðgengi að því er ein­fald­lega afar mikið og hrein­lega auð­velt. Líklega er eins auð­velt að ná sér í þetta eit­ur­lyf og að panta sér heim­send­ingu á vel sveittum skyndi­bita­mat eða að fylla bíl­inn af bens­íni hjá Atl­antsolíu við Kaplakrika í Hafn­ar­firði, sé nóg inni á kort­inu.

Undir þetta tekur Árni heils­hugar og segir ein­fald­lega að áfeng­is­iðn­að­ur­inn sé „alger boð­flenna í til­veru barna og ung­menna. Allt gengur þetta út að normalísera neyslu og áfeng­is­iðn­að­ur­inn notar svo sann­ar­lega öll trixin í bók­inni.“ 

Hann nefnir dæmi máli sínu til stuðn­ings, eins og Árni gerir hrein­lega alltaf í sínum svörum og mál­flutn­ingi: Hann nefnir lág­kúru, íþrótta­fé­lög og allskyns afþr­ey­ingu. Sem allt teng­ist áfengi og aug­lýs­ingum á því.

„Dæmi um  lág­kúr­una er þegar að í tölvu­leikjum ungra barna birt­ast áfeng­is­aug­lýs­ingar. Sam­fé­lags­miðlar, áhrifa­valdar, kvik­mynda- og afþrey­ing­ar­iðn­að­ur­inn er nýttur til hins ítrasta“ og segir Árni að „einn ang­inn af þessar grjót­hörðu mark­aðs­sókn áfengs­iðn­ar­ins er til dæmis þessi nýlegu und­ar­leg­heit þegar að íþrótta­fé­lög, þvert á mark­mið sín, fara að selja áfengi á kapp­leikjum. Þetta hefur því miður allt saman afar slæm áhrif.“ 

Fram hefur komið og á það bent ítrekað að varn­ar­leysi barna og ung­linga gagn­vart áfengi er mun meira en hjá full­orðnum, enda er lík­ami þeirra minni; þau skortir reynslu af drykkju og hafa ekki byggt upp þol fyrir áfengi. Einnig að neysla áfengis á yngri árum geti haft nei­kvæð lang­tíma­á­hrif og ef ein­stak­lingur neytir áfengis ungur er lík­legt að hann verði háður því síðar meir. Þá hefur komið í ljós í rann­sóknum að neysla áfengis á yngri árum geti haft mjög nei­kvæð áhrif á þroska heil­ans á þeim tíma, og aukið veru­lega líkur á vímu­efna­vanda­málum hjá ein­stak­lingnum í fram­tíð­inni. Þá hefur verið bent á með góðum rökum að mikil áfeng­is­drykkja snemma á lífs­leið­inni geti haft áhrif á minnis­getu heil­ans sem og aðra tauga­starf­semi lík­am­ans. Þeir ein­stak­lingar sem neyta mik­ils áfengis á ung­lings­árum hafa til­hneig­ingu til meiri og þyngri neyslu í fram­tíð­inni; einnig er lík­legt talið að áfengi muni valda verri and­legri heilsu, minni menntun og auknum líkum á glæpum í upp­hafi full­orð­ins­ára. Hefur til að mynda mikil áfeng­is­drykkja hjá ung­lingum verið tengd við bílslys sem valda dauða, sjálfs­vígum, slæmri frammi­stöðu í skólum - slags­málum og skemmd­ar­verkum.

Sé mið tekið af lýð­heilsu­m­ark­miðum hér á landi nefnir Árni að það sé aukn­ing á neyslu áfengis og nikótíns hjá þeim yngri, og að þetta gangi hrein­lega ekki upp og „því miður er það svo að ýmis­legt lætur undan; áfeng­is­neysla og ník­ótínn­eysla barna og ung­menna hér á landi er ein­fald­lega að aukast. Það er bláköld stað­reynd“ segir hann. 

Maðurinn sem kærði sjálfan sig

Árni Guð­munds­son.

Árni er maður sem lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna og hefur verið afar áber­andi í málum er snúa að for­vörnum varð­andi áfeng­is­mál í ræðu og riti. Og árið 2024 greip hann til afar óvenju­legs ráðs; gaf sig þá fram við lag­anna verði: Játaði brot sitt gagn­vart áfeng­is­lög­gjöf­inni und­an­bragða­laust. Skýlaust. Sagðist rétti­lega hafa gerst sekur um að hafa keypt áfengi ólög­lega. Já, Árni gekk alger­lega keikur inn á lög­reglu­stöð­ina við Hlemm; gerði sér lítið fyrir og kærði sjálfan sig fyrir brot á áfeng­is­lög­gjöf­inni und­an­bragða­laust. Hann hafði þá fest kaup á íslenskum bjór á net­inu af tveimur aðilum, og lög­reglan tók við kærunni og lagði hald á áfengið.

Árni lýsti því á sínum tíma að við­skiptin hafi gengið þannig fyrir sig að ein­fald­ara væri að panta sér flat­böku. Hann pant­aði íslenskan bjór sem var kom­inn til hans rétt rúmum hálf­tíma eftir að hann pant­aði bjór­inn og segir að „auð­vitað er þetta smá­sala áfengis. Og um það þarf engum blöðum um að fletta.“ 

Árni segir að lög­reglan skelli skolla­eyrum við kvört­unum og kærum hvað varðar þessi mál - í það minnsta hans eigin máli sem ekki hefur enn verið til lykta leitt, en hann segir „að von­andi verður þetta til að vekja ein­hverja umræðu um þetta.“ Bætir því við að þetta sé algjör­lega „borð­leggj­andi mál, og það er und­ar­legt að þingið skuli ekki enn vera búið að taka á þessu, mjög und­ar­legt.“

Það eru auð­vitað fleiri en Árni sem hafa kært slík mál til lög­reglu, og eðli­lega hafa sam­tökin sem Árni er í for­svari fyrir gert slíkt hið sama - For­eldra­sam­tök gegn áfeng­is­aug­lýs­ingum, en „við höfum ekki haft erindi sem erf­iði þrátt fyrir að hafa kært áfeng­is­aug­lýs­ingar til lög­reglu ítrekað. Það er ein­fald­lega ekki brugð­ist við þeim og það sama á við um ólög­lega smá­sölu áfengis af sölu­stað eða í gegnum netið. Ólög­legum áfeng­is­aug­lýs­ingum hefur fjölgað veru­lega og í takt við þá lög­leysu, ólög­lega áfeng­is­sölu, sem Lög­reglu­stjór­inn í Reykja­vík lætur afskipta­lausa. Mér og fleira lýð­heilsu­þenkj­andi fólki blöskrar algjör­lega stjórn­sýsla lands­ins varð­andi ólög­legar net­sölur.“

Kalt mat Árna varð­andi stöð­una er það að „íslenska for­varn­ar­mód­elið, sem nýtur alþjóð­legrar við­ur­kenn­ingar, lætur að end­ingu undan, enda er þarna hrein­lega ráð­ist gegn meg­in­stoðum þess“ og segir Árni einnig að „íslenska for­varn­ar­mód­elið er í eðli sínu sam­fé­lags­sátt­máli um vel­ferð barna og ung­menna, og byggir á sam­veru barna og for­eldra; virkri þátt­töku í félags- og íþrótta­starfi, fræðslu­starfi, verði, sölu og aðgengi áfengis.“

Og segir hik­laust:

„Alger­lega ólög­leg smá­sala einka­að­ila á áfengi síð­ustu miss­eri - sem við­kom­andi nefna „erlenda net­sölu“ - er látin átölu­laus af yfir­völdum á Íslandi.“ 

Hann færir í tal að „rann­sókn hefur staðið yfir í rúm­lega fimm ár þó svo að fyrir liggi sænskur Hæsta­rétt­ar­dómur um ólög­mæti. Þetta er nákvæm­lega sama mál og nákvæm­lega sömu for­sendur og sama lagaum­hverfi; það er nákvæm­lega engin laga­leg óvissa nema í höfð­inu á þeim einka­að­ilum sem hafa hags­muni af því að selja áfengi.“

Árni segir hik­laust að almennt ríki ekk­ert neyð­ar­á­stand í áfeng­is­sölu hér­lendis. Nefnir að um fyr­ir­komu­lag áfeng­is­sölu á Íslandi hafi ríkt sátt almennt og ríki í raun enn. Þó ekki hjá öllum.

Háværir áfengissalar og sérhagsmunaaðilar vaða uppi

„Já, nema í raun og veru hjá afar háværum hópi áfeng­is­sala og sér­hags­muna­að­ila, sem græða á tá og fingri af söl­unni. Það á þó alls ekki við um þá alla því ýmsir í þeim ranni eru alveg sáttir við núver­andi fyr­ir­komu­lag.“ 

Árni nefnir einn stjórn­mála­flokk hér á landi – Sjálf­stæð­is­flokk­inn - eða rétt­ara sagt hluta hans, og vandar honum ekki beint kveðj­urnar, er bein­skeyttur í gagn­rýni sinni. Þannig er Árni ein­fald­lega - það er eld­móður í honum. Segir að það séu „nokkur innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins á þingi sem byggi póli­tíska til­veru sína á að koma áfengi í mat­vöru­versl­anir. Og svo sér­hags­muna­hópur, ólög­legu áfeng­is­sal­arnir, sem telja sig hafa fundið holu í lög­unum sem engin er. En þetta er klárt brot. Og við getum ekki látið hópa sem keyra á ítr­ustu gróða sjón­ar­miðum eða póli­tískum trú­ar­brögðum ráða áfeng­is­stefn­unni í land­inu.“

Hann til­tekur Skeifuna sem dæmi um algjört offram­boð á áfengi á Íslandi:

„Í Skeif­unni er ein vín­búð ÁTVR og tvær ólög­legar áfeng­is­versl­anir í um það bil 300 metra rad­íus. Full­komið offram­boð. Framboð, aug­lýs­ingar, verð og aðgengi hafa áhrif á neyslu og sól­ar­hrings­þjón­ustu með heim­send­ingu hefur veru­leg áhrifa á neyslu, ekki síst þeirra sem síst mega við því og ekki síður hvað varðar sölu til barna og ung­menna eins og dæmi eru um af hálfu þess­arra svoköll­uðu erlendu net­versl­ana.“ 

Hann nefnir að „í afar vand­aðri loka­rit­gerð Stellu Ein­ars­dóttir, í hag­fræði, frá júní árið 2022, Sam­fé­lags­legur kostn­aður vegna áfeng­is­neyslu – Kostn­að­ar­grein­ing, kemur fram að sam­fé­lags­legur kostn­aður vegna áfengis árið 2021 nam 100.216,7 millj­ónum króna (100.216.700.000 krónur). Áfeng­is­neysla sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar árið 2020 var um sex lítrar af hreinum vín­anda á mann hér­lendis.“ Hann segir einnig að „í þessu kostn­að­ar­mati er ekki tekið til­lit til óáþreif­an­legs kostn­aðar, eins og end­ur­skoð­endur kalla gjarnan þann kostnað sem ekki er hægt að koma með góðu móti inn í excelskjölin, sem dæmi; sorg, and­leg líðan, félags­legar afleið­ingar, harmur og ógæfa. Aðrar úttektir og rann­sóknir hér­lendis benda í sömu átt og rann­sókn Stellu, meðal ann­ars rann­sókn Ara Matth­í­as­sonar - Þjóð­fé­lags­leg byrði af áfengis- og vímu­efna­neyslu frá árinu 2010 og rann­sókn­ar­verk­efnið Hver yrðu hugs­an­leg sam­fé­lags­leg áhrif frjálsrar áfeng­is­sölu á Íslandi? frá árinu 2014.“

Árni kemur inn á það sölu­kerfi sem er brúkað hér á landi; sem hann segir vera vera gott, virki vel og sam­ræmi lýð­heilsu­sjón­ar­mið og þjón­ustu; sölu­kerfi sem full­trúar sér- og eig­in­hags­muna „tala fyrir svipar til sölu fyr­ir­komu­lags í þeim löndum þar sem áfeng­is­neysla er hvað mest, en gengur þó lengra í verki með hrað- og heim­send­ingum allan sól­ar­hring­inn nán­ast alla daga árs­ins.“ Segir Árni að því megi „áætla að sér­hags­muna­að­ilum muni takast, á nokkrum árum, að koma áfeng­is­neyslu hér­lendis upp í efstu við­mið, fái þeir til þess tæki­færi, sem von­andi verður aldrei.“ 

Gífurleg aukning og gríðarlegur gróði

Árni segir að „miðað við fjög­urra lítra [af hreinum vín­anda, inn­skot blm]) aukn­ingu í neyslu, sem ekki getur talist óraun­hæft, verður útgjalda­aukn­ing sam­fé­lags­ins um 67.000.000.000 krónum á árs­grund­velli“ og til að setja þessa „gríð­ar­legu fjár­muni í sam­hengi, þá er þetta svipuð upp­hæð og áætl­aður sam­an­lagður gróði alls íslenska banka­kerf­is­ins síð­ast­liðið ár.“ Segir einnig að „miðað við þessar for­sendur má gera ráð fyrir að hver líter af áfengi í aukn­ingu kosti sam­fé­lagið auka­lega tæp­lega 17.000.000.000 króna á árs­grund­velli. Þetta eru gríð­ar­legir fjár­munir sem þarf vænt­an­lega að ná inn með auknum álögum, sköttum eða með auknum nið­ur­skurði í heil­brigðis- og vel­ferð­ar­kerf­inu sem þegar er van­fjár­magnað.“

Árni segir að Íslend­ingar skilji mjög vel út á hvað lýð­heilsa gangi, skilja mik­il­vægi þess að hafa reglu­verk sem hefur vernd­andi áhrif og þá ekki síst í þágu barna og ung­menna. „Við vitum svo vel að áfengi, tóbak og nikótín eru heilsu­spill­andi vörur sem geta ekki - undir neinum venju­legum kring­um­stæðum - flokk­ast sem venju­legar vörur. Þetta er ein­fald­lega smá­sala í sinni tær­ustu mynd. Verið að mark­aðsvæða áfeng­is­sölu sem er þvert á gild­andi stefnu og lög hér á landi.“

Skjólstæðingum SÁÁ fjölgar hratt og mikið

Komið hefur margoft fram í fréttum á síð­ustu árum að net­verslun áfengis sé afar mikið áhyggju­efni, og hefur það til að mynda komið á dag­inn - sögn læknis hjá SÁÁ - að áfeng­is­neysla hér á landi hefur tæp­lega tvö­fald­ast á síð­ustu fjöru­tíu árum hjá fimmtán ára og eldri; þá hefur fjöldi þeirra skjól­stæð­inga SÁÁ sem drekka dag­lega rúm­lega þre­fald­ast á þrjá­tíu árum.

Margir sér­fræð­ingar í þessum málum hafa varað við þeirri aft­ur­för sem hér virð­ist eiga sér stað - og kemur það skýrt fram í svörum Árna - og sumir líkja þró­un­inni ein­fald­lega við stór­slys og vitna í þeim efnum í vand­aðar og ítar­legar rann­sóknir. Veru­legum auknum kostn­aði er skap­ast vegna auk­innar neyslu er ýtt út í sam­fé­lagið; í formi hærri skatta eða með öðrum álögum á almenn­ing. Allt er þetta til þess að mæta auknum kostn­aði í heil­brigðis - og félags­kerf­inu; en ágóð­inn situr eftir hjá sér­hags­muna­að­ilum og segir Árni að áfeng­is­iðn­að­inum hafi ein­ungis eitt mark­mið - sem er að græða sem allra mest.

Lára G. Sig­urð­ar­dóttir.

Hefur til að mynda Lára G Sig­urð­ar­dóttir læknir hjá SÁÁ, og einn helsti sér­fræð­ingur Íslands í lýð­heilsu­fræðum, gert þessu afar mik­il­væga máli mikil og góð skil í ræðu og riti; hefur haldið erindi og fyr­ir­lestra á mörgum ráð­stefnum og bent með aug­ljósum og afar skýrum hætti - með vísan í góð rök - á það sem hún kallar aft­ur­för varð­andi neyslu á áfengi og niktó­tíni hér á landi.

Lára segir mikla aukn­ingu í dag­drykkju vera alveg sér­stak­lega var­huga­verða - stór­hættu­lega sam­fé­lagi okkar. Hún nefnir að í kringum árið 1990 hafi um 17 pró­sent skjól­stæð­inga sem lögð­ust inn á Vog með áfeng­is­vanda neytt áfengis dag­lega. Það hefur breyst heldur betur til hins verra:

„Þegar við skoðun síð­ustu ár þá kemur á dag­inn að neyslan er komin upp í 66 pró­sent, þannig að neyslan á þessu tíma­bili hefur meira en þre­fald­ast.“ og hún nefnir að mestu áhyggj­urnar séu „pressan frá þing­inu og nokkrum þing­mönnum um að gera áfeng­is­sölu frjálsa. Það er það sem allir sér­fræð­ing­arnir hafa verið að vara okkur við.“ segir hún, en net­sala áfengis hefur auk­ist gríð­ar­lega síð­ustu miss­eri og þar með stór­aukið aðgengi fólks að vör­unni. „Rík­is­ein­okun er í raun það form af sölu fyr­ir­komu­lagi sem hefur mesta for­varn­ar­gildið fyrir þjóðir og við höfum gert vel hingað til,“ segir Lára.

Hún færir einnig í tal að „af 20 efnum, þar á meðal heróíni, krakki, metam­fetamíni og tóbaki, má sjá að áfengi trónir á toppnum sem skað­leg­asta fíkni­efnið.“ Lára segir að verið sé að auka aðgengi að áfengi; sem helst alveg í hendur við aukna áfeng­is­neyslu í sam­fé­lag­inu og segir hún að mik­il­vægt sé að horfa á heild­ar­mynd­ina. „Við þurfum að ákveða hvernig sam­fé­lagi við viljum búa í. Viljum við til dæmis stuðla að meira ofbeldi og fleiri umferð­ar­slysum?“

Einnig segir Lára að af áfeng­is­neyslu geti hlot­ist ýmsir sjúk­dómar; til dæmis floga­köst, þung­lyndi, kvíði, sjálfs­víg; heila­bilun, tauga- og heila­skemmdir. Einnig lifr­ar­bólga, skorpulifur, bris­bólga, lungna­bólga, berklar, húð­netju­bólga og heila­himnu­bólga. Einnig til­tekur Lára háþrýst­ing, heila­blóð­fall, gátta­tif, blá­æða­seg og fóst­ur­skaða. Og það ætti að vera flestum ef ekki öllum ljóst hversu mikil hætta fylgir mik­illi neyslu áfengis eftir þessa upp­taln­ingu hér að ofan.

Árni er algjör­lega á sama máli og Lára og segir fjölda fólks ósátt við þró­un­ina og það fólk er alls ekki til­búið í að fórna lýð­heilsu fjöld­ans fyrir gróða fárra, „hvorki kampa­víns­drengja né ann­arra og ef ekk­ert jákvætt fer að ger­ast í þessu máli og ólög­leg net­sala og aug­lýs­ing­arnar stöðv­aðar þá er ein­fald­lega fokið í flest skjól." Vill Árni meina að með þessu sé verið að mylja niður gild­andi lög með afskipta­leysi og segir hann einnig að það sé „væg­ast sagt afar umhugs­un­ar­vert þegar fram­kvæmda­valdið, sem er í þessu til­felli lög­reglan, standi ekki undir undir nafni og bregð­ist mik­il­vægum skyldum sínum með algeru fálæti í verki“ og bætir því við að „almenn lýð­heilsu­m­ark­mið, vel­ferð­ar­sjón­ar­mið, vernd barna og ung­menna, svo ekki sé minnst á lýð­heilsu­mat, eru aug­ljósar og algerar for­sendur áfeng­is­stefnu. Við getum ekki byggt áfeng­is­stefnu á ítr­ustu for­sendum sér­hags­muna áfeng­is­iðn­að­ar­ins.“

Árni segir að „við sem þetta land byggjum, verðum að geta treyst því að lög­reglan sinni sínu hlut­verki. Við almenn­ingur verðum að geta treyst því að lög­reglan og ákæru­valdið sýni frum­kvæði í máli eins og þessu sem varðar fyrst og fremst vel­ferð almenn­ings. Og það er á hreinu að salan er ólög­leg.“

Eitt af hverjum tíu dauðsföllum í Evrópu rakið til áfengisneyslu

Fram­sókn­ar­mað­ur­inn Willum Þór Þórsson - núver­andi for­maður íþrótta- og ólymp­íu­sam­bands Íslands (ÍSÍ), var heil­brigð­is­ráð­herra á árunum 2021 til 2024. Hann lét sig eðli­lega áfeng­is­mál á Íslandi varða, og í bréfi sem hann skrif­aði til flokks­bróður síns, Sigurðar Inga Jóhanns­sonar for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og þáver­andi fjár­mála- og efn­hags­ráð­herra, árið 2024, lýsir Willum yfir afar miklum áhyggjum sínum vegna stöðu áfeng­is­mála á Íslandi.

Willum Þór Þórsson

í bréfi sínu til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir Willum að með „net­sölu áfengis sé grafið undan gild­andi sölu­fyr­ir­komu­lagi á áfengi og grund­vall­ar­mark­miðum stefnu stjórn­valda í lýð­heilsu­m­álum ógnað.“ Vísar Willum meðal ann­ars til mark­miðs­á­kvæða áfeng­is­laga og laga um verslun með áfengi og tóbak sem kveða á um að umgjörð smá­sölu áfengis skuli byggj­ast á bættri lýð­heilsu og sam­fé­lags­legri ábyrgð.

Hann nefnir að til­gangur „einka­sölu­fyr­ir­komu­lags áfengis á smá­sölu­stigi byggir á aug­ljósum lýð­heilsu- og sam­fé­lags­rökum sem fel­ast fyrst og fremst í því að tak­marka aðgengi að áfengi og vinna þannig gegn mis­notkun og skað­legum áhrifum þess.“ Segir einnig að í sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar komi fram að það séu „sam­eig­in­legir hags­munir þjóð­ar­innar, fjár­hags­legir og félags­legir, að aukin áhersla sé lögð á lýð­heilsu og for­varnir. “

Willum bendir auk­in­heldur á í bréfi sínu til flokks­bróður síns að í sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar „komi fram að það séu sam­eig­in­legir hags­munir þjóð­ar­innar, fjár­hags­legir og félags­legir, að aukin áhersla sé lögð á lýð­heilsu og for­varnir. Stór­aukið aðgengi að áfengi með opnun net­versl­ana vinni bein­línis gegn þeirri fram­tíð­ar­sýn Alþingis.“

Willum bendir einnig á að margar rann­sóknir hafi sýnt fram á að aukið „aðgengi að áfengi hafi slæm áhrif á heilsu­far fólks og hafi nei­kvæðar félags­legar afleið­ingar í för með sér“ og nefnir eitt slá­andi dæmi um að „rekja megi eitt af hverjum tíu dauðs­föllum í Evrópu til áfeng­is­neyslu, neysla þess hafi orsaka­tengsl við yfir 200 sjúk­dóma og heilsu­kvilla og sé auk þess stór áhættu­þáttur slysa.“

Þá ljær Willum máls á því í áður­nefndu bréfi sínu til Sigurðar Inga að net­verslun með áfengi sé mögu­lega í and­stöðu við lög.

„Ein­stak­lingum hér á landi er heim­ilt að flytja áfengi til lands­ins til eigin nota, að því til­skildu að þeir standi sjálfir fyrir inn­flutn­ingnum, greiði tolla og önnur opin­ber gjöld og að salan fari fram í öðru landi. Deilt hefur verið um hvort fyr­ir­komu­lag net­versl­ana á íslenskum mark­aði brjóti gegn ákvæðum laga þar sem þær selji áfengi af inn­lendum lager sem þegar hafi verið flutt til lands­ins og toll­af­greitt. Þá hafi borið á aug­lýs­ingum net­versl­ana um heim­send­ingu áfengis á höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins innan við 30 mín­útum eftir að kaupin fara fram. Ekki hefur verið skorið úr um það fyrir dóm­stólum hvort hér sé um að ræða einka­inn­flutn­ing kaup­anda á vör­unni, eða hvort inn­flutn­ing­ur­inn stríði gegn lögum.“

Alma tekur við keflinu

Eins og áður sagði var Willum við völd í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu á árunum 2021 til 2024, en eftir að rík­is­stjórn VG, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks féll fyrir rúmu ári síðan, tók Sam­fylk­ing­ar­konan Alma D. Möller, fyrrum land­læknir, við stöðu heil­brigð­is­ráð­herra.

Alma D. Möller

Hún hefur tjáð sig nokkuð, líkt og Willum, um áfeng­is­mál á Íslandi. Í febr­úar á þessu ári lýsti Alma yfir afdrátt­ar­lausum stuðn­ingi við núver­andi fyr­ir­komu­lag á smá­sölu áfengis hér á landi; var­aði hún sterk­lega við því að mark­aðs­öflin tækju smá­söl­una yfir. Alma vís­aði þar meðal ann­ars í nýja skýrslu Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO) þar sem full­yrt er að einka­sala rík­is­ins á áfengi sé mik­il­vægur og árang­urs­ríkur hluti af áfeng­is­stefnu Norð­ur­landa­þjóð­anna, en þau lönd, að Danmörku frá­tal­inni, eru með rík­is­einka­sölu á áfengi. Sagði Alma að sam­kvæmt skýrsl­unni sé „heild­ar­neysla áfengis mun minni hjá þessum þjóðum en í öðrum Evr­ópu­löndum þar sem versl­unin er frjáls. Nið­ur­staða skýrsl­unnar er sú að afnám einka­sölu myndi að öllum lík­indum leiða til auk­innar áfeng­is­neyslu, heilsutjóns og félags­legra vanda­mála.“ Segir Alma enn­fremur að „mark­mið skýrsl­unnar var að greina hvaða hlut­verki einka­rekin áfeng­is­sala á Norð­ur­lönd­unum gegnir í áfeng­is­stefnu ríkj­anna og hver áhrifin eru á lýð­heilsu.“ Þar er gerður sam­an­burður við aðrar þjóðir Evrópu þar sem áfeng­is­sala er frjáls og hvort munur sé á áfeng­is­neyslu og áfeng­is­tengdum vanda­málum eftir því hvort áfeng­is­sala er frjáls eða í höndum rík­is­ins.

„Áfeng­is­neysla Norð­ur­landa­þjóð­anna þar sem áfeng­is­salan er rík­is­rekin er að með­al­tali mun minni en hjá Evr­ópu­þjóðum þar sem hún er frjáls, eða 7-8 lítrar á hvern íbúa - 15 ára og eldri hjá Norð­ur­landa­þjóð­unum á móti 11 lítrum hjá sam­an­burð­ar­þjóð­unum. Danmörk er með frjálsa áfeng­is­verslun og er neyslan þar svipuð og hjá sam­an­burð­ar­þjóð­unum.“

Segir Alma að skýrslu­höf­undar bendi á að rík­is­reknu einka­söl­urnar starfi undir stjórn hins opin­bera; séu ekki reknar í hagn­að­ar­skyni. Og ólíkt frjálsum mark­aði bygg­ist þær ekki á hagn­aði, eng­inn hvati sé til að auka sölu áfengis í gegnum mark­aðs­setn­ingu, afslætti eða útsölur, opn­un­ar­tími sé tak­mark­aður og ald­urs­mörk á sölu áfengis ströng. Hún nefnir einnig að „þá sýni rann­sóknir að eft­ir­fylgni með aldri kaup­enda hjá rík­is­reknu einka­söl­unum sé mun betri en hjá áfeng­is­sölum á einka­mark­aði. Þannig sé einka­sala rík­is­ins á áfengi mik­il­vægt tól stjórn­valda til þess að draga úr skað­semi áfeng­is­neyslu og lyk­il­þáttur í áfeng­is­stefnu Norð­ur­landa­þjóð­anna.“ Kemur einnig fram að þetta, ásamt háum áfeng­is­gjöldum, sé jafn­framt í sam­ræmi við gagn­reyndar ráð­legg­ingar Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar um leiðir til að sporna við áfeng­is­neyslu og skað­anum sem af henni hlýst.

Árni hefur heyrt þetta allt áður, en hann von­ast inni­lega eftir því að eitt­hvað áþreif­an­legt fari að ger­ast - raun­veru­legar aðgerðir en ekki bara flottur fag­ur­gali á fögrum frí­dögum með næmt auga fyrir útliti en ekki inni­haldi. Hann nán­ast end­ur­tekur, og hefur greini­lega gert það nokkuð oft áður, orð sín um lög­mæti net­söl­unnar og aug­lýs­ing­anna: „Þetta er algjör­lega borð­leggj­andi mál að öllu leyti. Það er á hreinu að salan er ólög­leg og aug­lýs­ing­arnar líka. Eins og ég sagði þá er algjör­lega ólög­leg smá­sala einka­að­ila á áfengi - sem við­kom­andi nefna „erlenda net­sölu“ - látin algjör­lega vera af stjórn­völdum á Íslandi, og það er afar und­ar­legt - og hér er vægt til orða tekið - að Alþingi skuli ekki enn vera búið að taka á þessu, mjög und­ar­legt í alla staði.“

Kannabis engin lausn

Lög­leið­ing á kanna­bis­efnum hefur átt sér stað í nokkrum löndum á und­an­förnum árum; til dæmis í Þýska­landi, í hluta Banda­ríkj­anna, Kanada, Suður-Afríku og víðar. Ljóst er að lög­leið­ingin hefur fært þeim er lög­leiddu mik­inn pen­ing í formi skatt­lagn­ingar og talað hefur verið um að slík lög­leið­ing myndi hafa þau áhrif að hinn svo­kall­aði svarti mark­aður með sína ólög­legu starf­semi og því ofbeldi sem honum fylgir myndi minnka umtals­vert sem kæmi fram í minna ofbeldi og glæpum tengdum þessum áður­nefnda mark­aði.

En Árni er ekki á því að lög­leið­ing kanna­bis­efna hér á landi myndi hafa í för með sér minnk­andi áfeng­is­neyslu, eða þá að svarti mark­að­ur­inn muni hverfa með lög­leið­ingu á kanna­bis­efnum:

„Í þeim löndum eða ríkjum þar sem kanna­bis­neysla er heimil hefur raunin í mörgum til­fellum orðið sú að um er að ræða við­bót við þá sölu og neyslu sem þegar var fyrir hendi“ og segir líka tæpitungu­laust að „allt tal um að með lög­leið­ingu kanna­bis­efna hyrfi svarti mark­að­ur­inn reyn­ast orðin tóm; aukið fram­boð - verð­stríð sem og grjót­hörð sam­keppni eykur neyslu sem nú er mun meiri en hún var.“ 

Hann færir einnig í tal að „hug­breyt­andi efni - gamla umræðan frá hippa­tíma­bil­inu um LSD og skyld efni - er nú sett fram sem ein­hver alls­herj­ar­lausn á hvers kyns vanda, en er ekki raunin nú fremur en áður.“ 

Árni segir að lokum að „normaliser­ing  vímu­efna byggir fyrst og fremst á ítr­ustu við­skipta­hags­munum, eins og einnig á við um áfengið. Þetta á ekk­ert skylt við vel­ferðar- og lýð­heilsu­m­ark­mið, sem eru auð­vitað mun mik­il­væg­ari. Við höfum búið að ágætis fyr­ir­komu­lagi hér­lendis og í stað þessa að ráð­ast gegn því eins og sér­hags­muna­öflin gera þá þarf að styrkja og efla allt sem lýtur að for­vörnum og lýð­heilsu. Ríkustu skyldur hvers sam­fé­lags lúta að vel­ferð barna- og ung­menna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ