Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Árni og áfengið: „Að mínu mati þarf ríkissaksóknari að taka þetta mál fyrir – Salan er ólögleg“

Árni og áfengið: „Að mínu mati þarf ríkissaksóknari að taka þetta mál fyrir – Salan er ólögleg“
Árni Guð­munds­son.

Árni Guð­munds­son, for­maður For­eldra­sam­taka gegn áfeng­is­aug­lýs­ingum, skrifar grein vegna net­sölu á áfengi hér á landi.

Hefst svona:

„Í dag 16. júní 2024 eru nákvæm­lega fjögur ár síðan ÁTVR kærði ólög­lega net­sölu til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Netsölu sem er ólög­leg því hún selur áfengi í smá­sölu af lager á Íslandi til neyt­enda. Lög­reglan hefur ekki klárað þetta sam­fé­lags­lega mik­il­væga mál á fjórum árum. Til ham­ingju með dag­inn!“

Árni bætir því við að þessi staða sé „auð­vitað með ólík­indum. Engar skýr­ingar hafa verið gefnar. Þann 20. nóv­em­ber 2023 skrif­aði ég opin­bert bréf, ákall, sem birt­ist á visir.is, til Höllu Bergþóru Björns­dóttur, lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, þar sem ólög­legri net­sölu var lýst og óskað svara við því af hverju lög­reglan hefði ekki brugð­ist við kæru­mál­inu. Þar sagði m.a. „Við sem þetta land byggjum verðum að geta treyst því lög­reglan sinni sínu hlut­verki. Við almenn­ingur verðum að geta treyst því að lög­reglan og ákæru­valdið sýni frum­kvæði í máli eins og þessu sem varðar fyrst og fremst vel­ferð almenn­ings. Sá sem þetta ritar trúir því ekki að við­horf dóms­mála­ráð­herra, fyrr og nú, hafi þessi stór­kost­lega lam­andi áhrif á emb­ættið. Þó svo að síð­ustu dóms­mála­ráð­herrar hafi viljað breyta lög­unum þá er ekki slíku að skipta. Salan er ólög­leg. Ósk­hyggja dóms­mála­ráð­herra breytir ekki þeirri stað­reynd.“

Ekkert svar hefur borist frá Höllu.“

Hann færir í tal að „fyrir utan ákallið til lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, þá hef ég einnig sent ákall til rík­is­sak­sókn­ara dag­sett 10. mars 2024. Í því er fjallað um þá alvar­legu og óboð­legu stöðu sem upp er komin þar sem lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem er eft­ir­lits­að­ili í mál­inu, hefur ekki klárað málið í á fjórða ár. Á meðan spretta æ fleiri slíkar vefsölur upp og telja að allt sé í lagi. Hagkaup ætlar að ryðj­ast næst inn á völl­inn og það nú í júní. Í bréf­inu segir: „Að mínu mati þarf rík­is­sak­sókn­ari að taka þetta mál fyrir. Það getur ekki talist í lagi að lög­reglan klári ekki kæru frá rík­is­stofnun í upp undir fjögur ár. Eðli­leg­ast hefði verið að stoppa þessi ólög­legu fyr­ir­tæki strax og kært var. Hér með er því form­lega erindi komið á fram­færi að rík­is­sak­sókn­ari kanni ofan­greint mál. Svar óskast.“

Ekkert hefur heyrst frá rík­is­sak­sókn­ara.“

Árni segir að þá „hefur breið­fylk­ing for­varn­ar­sam­taka, sem ég til­heyri, sent bæði dóms­mála­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sam­hljóma bréf 27. mars sl. þar sem þeir voru krafðir skrif­legra skýr­inga á athafna­leysi ráð­herra á mál­efna­sviði sínu. Í bréf­inu sagði m.a. “Samkvæmt lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands nr. 115/2011 bera ráð­herrar ábyrgð á mál­efna­sviðum sínum. Ráð­herrar bera athafna­skyldu gagn­vart því að farið sé að lögum á mál­efna­sviðum sem undir þá heyra. Þeim ber með öðrum orðum laga­leg skylda til við­bragða ef lögum er ekki fram­fylgt. Málið er mik­il­vægt fyrir hags­muni alls almenn­ings að okkar mati. Við bendum því einnig á lög um ráð­herra­á­byrgð nr. 4/1963. Þar segir að krefja megi ráð­herra ábyrgðar fyrir sér­hver störf eða van­rækt starfa, er hann hafi orðið sekur um, ef málið er svo vaxið, að hann hafi ann­að­hvort af ásetn­ingi eða stór­kost­legu hirðu­leysi farið í bága við stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins eða önnur lands­lög.”

Nú hefur glæ­nýr fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra loks brugð­ist við, m.a. sökum öfl­ugs bréfs heil­brigð­is­ráð­herra um lýð­heilsu­þátt einka­sölu rík­is­ins á áfengi, og bent lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á stöð­una bréf­lega. Viðbrögð hans eru alger­lega eðli­leg, rétt­mæt og góð.“

Árni bendir á að í „4.mgr. 4. gr. áfeng­is­laga segir: „Lögregla, toll­gæsla og skatt­yf­ir­völd ann­ast eft­ir­lit með þeim sem hafa leyfi til atvinnu­starf­semi sam­kvæmt lögum þessum“.

Lögregla er eft­ir­lits­stjórn­vald með leyf­is­höfum. Það er eðli­legt að ráðu­neytið, sem fer með yfir­stjórn ÁTVR, beini erindi til lög­reglu sem eft­ir­lits­stjórn­valds.“

Eft­ir­lits­hlut­verkið gæti leitt til áminn­ingar eða aft­ur­köll­unar leyfis ef slíkt er fyrir hendi. Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir í fréttum að hann telji það at­hafna­leysi af sinni hálfu að aðhaf­ast ekk­ert í mál­efn­um net­versl­ana með áfengi. Rétt hjá ráð­herr­anum! Það er athafna­leysi og ábyrgð­ar­leysi að aðhaf­ast ekk­ert. Ráð­herrar bera nefni­lega ábyrgð á mál­efna­sviði sínu. Ætlar dóms­mála­ráð­herra ekki að bera ábyrgð líka? Þeir sem selja og afhenda áfengi í smá­sölu, sem ólög­lega net­salan svo sann­ar­lega er, þurfa leyfi sýslu­manna til þess. Hefur dóms­mála­ráð­herra spurnir af því hvort net­sal­arnir hafi slík leyfi?“

Dóms­mála­ráð­herra segir í frétta­við­tali þann 12. júní sl. á visir.is, þar sem hún setti ofan í við fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vegna bréfa­send­ingar hans til lög­reglu, að hún vilji breyta lögum varð­andi áfeng­is­verslun á Íslandi. Það hefur flestum verið ljóst lengi sbr. skrif­legt svar hennar til Alþingis á síð­asta ári en þar segir: „Dóms­mála­ráð­herrar síð­ustu ára hafa unnið að frum­vörpum til breyt­inga á áfeng­is­lögum sem m.a. hefur verið ætlað að lög­festa heim­ild til rekst­urs inn­lendra vef­versl­ana með áfengi í smá­sölu til neyt­enda.“

Slík laga­breyt­ing myndi fella ÁTVR og það vilja for­varn­ar­sam­tök og lýð­heilsu­þenkj­andi fólk ekki. Í sama við­tali segir hún að hún skiptir sér ekki af því að lög­reglan rann­saki ekki eitt­hvað og að ef íbúar lands­ins séu ekki sáttir geti þeir lagt fram kæru.“

Árni bendir á að það hann „gert, lík­lega einn allra lands­manna enn sem komið er. Ég kærði sjálfan mig til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þann 21. des­em­ber sl. fyrir að hafa keypt áfengi hjá ólög­legri áfeng­is­net­sölu. Ég hef tví­vegis síðan sent lög­regl­unni fyr­ir­spurn, nú síð­ast 30. apríl sl., um málið og spurt hvar það sé statt. Ég á rétt á svörum við slíkri fyr­ir­spurn sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum. Hef ég fengið svar? Nei, ekki enn. Ætli ég verði ekki að bíða í a.m.k. fjögur ár eftir við­brögðum og nið­ur­stöðu í mínu máli eins og ÁTVR? En ágætu ósáttu íbúar, sem styðjið lýð­heilsu framar mark­aðsvæð­ingu á áfengi. Þið getið sem sagt lagt inn kæru segir dóms­mála­ráð­herra. Kæru sem leiðir ekki til neins, a.m.k. ekki fyrstu fjögur árin? Til ham­ingju með dag­inn!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina