Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Utanríkisráðherra er ekki einhver áhrifavaldur að selja orkudrykki“

Viðbrögð Þor­gerðar Katrínar við árás Banda­ríkj­anna þykja sumum furðu­leg

„Utanríkisráðherra er ekki einhver áhrifavaldur að selja orkudrykki“
Utan­rík­is­ráð­herra í góðum félags­skap Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Mikil umræða hefur skap­ast í alþjóða­sam­fé­lag­inu eftir að Banda­ríkin réð­ust á Venes­ú­ela í gær og hand­tóku Nicolás Maduro, for­seta lands­ins, og færðu úr landi. Telja margir aðgerðir Banda­ríkj­anna vera skýrt brot á alþjóða­lögum.

Í við­tali við Vísi tal­aði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra í kringum spurn­ingar blaða­manns en var glöð að Maduro væri far­inn frá völdum.

„Það sjá allir að hann er og hefur verið ein­ræð­is­herra og hann er að brjóta á borg­ara­legum rétt­indum og við Íslend­ingar höfum gagn­rýnt fram­ferði Maduros, meðal ann­ars í Mann­réttinda­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna,“ sagði hún við Vísi.

„Og þetta var greini­lega mjög vel heppnuð fram­kvæmd. Það er ekki hægt að segja annað. Þetta var greini­lega mjög vel æft, þaul­hugsað hjá Banda­ríkja­mönnum. En það skiptir máli að virða alþjóða­lög, að farið sé að alþjóð­ar­rétti, en líka að við sjáum fram á að það verði núna ferli lýð­ræðis, mann­rétt­inda og gegn­sæis í stjórn­ar­fari Venes­ú­ela. Maður vonar að við munum sjá fram á lýð­ræð­is­legar umbreyt­ingar.“

Alþjóðalög eru smámál

Einn af þeim sem hafa tjáð sig um við­brögð Þor­gerðar Katrínar er Atli Þór Fanndal, fyrr­ver­andi blaða­maður.

„Ég eig­in­lega skil ekki við­brögð utan­rík­is­ráð­herra við fréttum frá Venes­ú­ela,“ skrifar Atli á sam­fé­lag­miðla. „Í fyrsta lagi þá sendi Ísland mik­inn fjölda fólks úr landi til þessa ein­ræð­is­herra. Framkoma sem er ein­fald­lega botn­laus grimmd. Þannig að það er svo­lítið spánskt að tala núna eins og inn­rás sé bara smá­mál eftir að hafa stundað það að afhenda þessum stjórn­völdum fólk. Stjórn­völdum sem eru hræði­leg að það er varla til umhugs­unar hvort svona aðferðir eigi við. Maduro er engin vorkun en það er nú ef til vill ekki alveg full­orð­ins af utan­rík­is­ráð­herra smá­ríkis að tala eins og virð­ing við alþjóða­lög sé kannski svo­lítið smá­mál. Ísland á um það bil allt undir því að reglur séu virtar. Utan­rík­is­ráð­herra er ekki ein­hver áhrifa­valdur að selja orku­drykki,“ segir Atli og tekur fram að ummæli hennar séu stefnu­mót­andi.

„Hún er per­sónu­gerð ráðu­neytis sem fer með utan­rík­is­stefnu Íslands. Fyrir þjóð sem telur sig frið­elsk­andi af slíkri afneitun og með­virkni að það stappar í tryll­ing er eðli­legt að ætl­ast til þess að utan­rík­is­ráð­herra tali skýrt og fyrir still­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ