Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jóhanna Guðrún Skaptason Wilson er fallin frá

Jóhanna Guðrún Skaptason Wilson er fallin frá

Jóhanna Guðrún Skapta­son Wilson lést í Winnipeg í Manitoba í Kanada föstu­dag­inn 2. jan­úar síð­ast­lið­inn, 106 ára gömul. Mbl.is segir frá and­lát­inu.

Jóhanna fædd­ist 15. nóv­em­ber árið 1919. For­eldrar hennar voru Jóhanna Guðrún Sím­on­ar­dóttir, fædd á Gimli í Manitoba árið 1878, og Jósef Björn Skapta­son, fæddur í Húna­vatns­sýslu árið 1873. Móðir hennar var hálf­systir dr. Valtýs Guð­munds­sonar, alþing­is­manns og pró­fess­ors við Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla. Afi og amma Jóhönnu í móð­ur­ætt, Símon Sím­on­ar­son og Valdís Guð­munds­dóttir, voru meðal fyrstu Íslend­inga sem fluttu til Kanada árið 1874, og tók Valdís á móti fyrsta íslenska barn­inu sem fædd­ist á Gimli. Faðir Jóhönnu lést árið 1950 og móðir hennar árið 1960.

Móðir og dóttir létu bæði félags­mál sig miklu varða og áttu ríkan þátt í varð­veislu minn­ingar íslenskra her­manna. Móðirin stóð að útgáfu minn­ing­ar­rita um íslenska her­menn í fyrri heims­styrj­öld­inni, en Jóhanna yngri sinnti sam­bæri­legu starfi vegna síð­ari heims­styrj­ald­ar­innar. Jóhanna eldri var helsti hvata­maður að stofnun Jón Sig­urds­son-kven­fé­lags­ins, kvenna­deildar IODE, árið 1916 og gegndi þar for­mennsku fyrstu 17 árin. Jóhanna yngri var virk í félag­inu í meira en átta ára­tugi, þar af for­maður tvisvar. Árið 2023 hlaut hún sér­staka við­ur­kenn­ingu frá IODE Canada fyrir 80 ára félags­að­ild. Í til­efni 100 ára afmælis félags­ins var henni haldið heið­urs­sam­kvæmi og var hún þá heiðruð sem elsti félag­inn. Spurð um lang­lífið svar­aði hún í við­tali við Morg­un­blaðið árið 2019 að hún ætti það „íslenska þorska­lýs­inu“ að þakka.

Jóhanna var um ára­bil virk í Félagi háskóla­kvenna í Winnipeg. Hún lauk prófi í heim­il­is­fræði frá Manitoba-háskóla árið 1945 og kenndi fagið í mörg ár. Hún var jafn­framt áber­andi í íslensku sam­fé­lagi borg­ar­innar, gegndi meðal ann­ars hlut­verki fjall­konu líkt og móðir hennar, og heim­sótti Ísland fjórtán sinnum á árunum 1964 til 2015. Fyrir störf sín hlaut hún fjöl­margar við­ur­kenn­ingar og var heið­urs­fé­lagi í nokkrum félögum.

Eig­in­maður Jóhönnu var Alex­ander Francis „Frank“ Wilson, sem lést árið 2001. Þau eign­uð­ust þrjú börn, Joanne, Carolyn og Frank.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá