Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir Dani eiga krók á móti bragði gagnvart Bandaríkjunum

„Ef þeir hunsa sam­komu­lagið er þá að minnsta kosti stað­fest að núver­andi stjórn­völd þar í landi virða ekki samn­inga og á það við um varn­ar­samn­ing­inn við Ísland sem og aðra samn­inga“

Segir Dani eiga krók á móti bragði gagnvart Bandaríkjunum
Kristinn Hrafns­son Kristinn bendir á afar áhuga­verðan punkt

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, segir Dani eiga mögu­legt mót­vægi gegn Banda­ríkja­stjórn í deilum um Grænland sem byggi á alda­gömlum alþjóða­samn­ingi. Í Facebook-færslu bendir hann á að þegar Danmörk seldi Banda­ríkj­unum dönsku Vestur-Indíur árið 1917, nú hinar banda­rísku Jóm­frú­ar­eyjar, hafi fylgt samn­ingnum form­leg yfir­lýs­ing þar sem Banda­ríkin við­ur­kenndu yfir­ráð Dana yfir Græn­landi.

Kristinn segir yfir­lýs­ing­una hafa verið und­ir­rit­aða af þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Robert Lansing, fyrir hönd rík­is­stjórnar Woodrow Wilsons for­seta. Að hans mati megi færa sterk rök fyrir því að brot á þessum hluta samn­ings­ins geti haft víð­tækar laga­legar afleið­ingar.

„Þegar Danir seldu Banda­ríkja­mönnum dönsku Vestur-Indíur árið 1917 fylgdi samn­ingnum við­auki eða yfir­lýs­ing þess efnis að Banda­ríkja­menn við­ur­kenndu póli­tísk og efna­hags­leg yfir­ráð Dana yfir Græn­landi,“ skrifar Kristinn og bætir við að yfir­lýs­ingin sé skýr og form­leg skuld­bind­ing af hálfu Banda­ríkj­anna.

Hann segir jafn­framt að ef Banda­ríkin virði ekki þessa skuld­bind­ingu, megi halda því fram að sjálf eyja­salan frá 1917 stand­ist ekki lengur. „Færa má fyrir því rök að ef þessi hluti samn­ings­ins er ekki virtur, ógild­ist samn­ing­ur­inn um kaupin á eyj­unum í Karí­ba­hafi og Danska kon­ungs­ríkið tekur þær yfir aftur,“ segir Kristinn.

Slík þróun hefði sam­kvæmt honum athygl­is­verðar afleið­ingar á alþjóða­vett­vangi. „Þar með væri Evr­ópu­sam­bandið komið með útstöð í Karí­ba­hafi,“ skrifar hann og bendir á að málið sé ekki aðeins sögu­legt heldur einnig póli­tískt sprengi­efni í nútím­anum.

Kristinn veltir því einnig fyrir sér hvort núver­andi leið­togar Banda­ríkj­anna telji sig bundna af samn­ingum sem und­ir­rit­aðir voru fyrir rúmri öld. „Það er svo önnur saga hvort Trump og Marco Rubio líti svo á að þeir séu bundnir af und­ir­rit­uðum samn­ingum for­vera sinna fyrir rúmum 100 árum,“ skrifar hann og bætir við að ef slíkir samn­ingar séu hunds­aðir sé það alvar­legt for­dæmi.

„Ef þeir hunsa sam­komu­lagið er þá að minnsta kosti stað­fest að núver­andi stjórn­völd þar í landi virða ekki samn­inga og á það við um varn­ar­samn­ing­inn við Ísland sem og aðra samn­inga,“ segir Kristinn og tengir þannig Græn­lands­málið beint við stöðu Íslands og ann­arra banda­lags­ríkja.

Í færsl­unni veltir hann jafn­framt upp mögu­legum sam­fé­lags­legum afleið­ingum ef Danmörk tæki aftur yfir­ráð yfir Jóm­frú­areyj­unum. Hann bendir á að íbúar eyj­anna hafi ekki verið ánægðir með dönsku nýlendu­stjórn­ina á sínum tíma, en aðstæður gætu verið aðrar í dag.

„Íbúar á Banda­rísku jóm­frú­areyj­unum voru ekki sér­lega hrifnir af reynsl­unni af danskri nýlendu­kúgun en geta ef til vill fyr­ir­gefið for­sög­una ef þeir fá aðgang að dönsku vel­ferð­ar­kerfi, opin­berri heil­brigð­is­þjón­ustu og nán­ast ókeyp­ist menntun,“ skrifar Kristinn og bætir við að slíkt myndi fylgja Schengen-aðgangur með dönsku vega­bréfi.

Að lokum setur hann fram hálf­kær­ings­lega hug­mynd um áhrifin fyrir Íslend­inga. „Íslend­ingar geta þá líka flykkst til vetr­ar­dvalar í Dönsku Vestur Indíum og verið þar eins og heima hjá sér,“ skrifar Kristinn.

Færslan hefur vakið athygli fyrir að draga fram lítt ræddan kafla í alþjóða­samn­ingum sem gæti, að mati Kristins, haft óvænt áhrif á núver­andi átök um stöðu Græn­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti