Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Vilhjálmur segir Seðlabankann hóta launafólki

„Við í verka­lýðs­hreyf­ing­unni vorum svikin, og það illi­lega“

Vilhjálmur segir Seðlabankann hóta launafólki
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri Vil­hjálmur er afar ósáttur við Seðla­bank­ann Mynd: Háskóli Íslands

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lag Akraness og Starfs­greina­sam­bands Íslands, gagn­rýnir harð­lega fram­komu Seðla­banki Íslands á fundi pen­inga­stefnu­nefndar bank­ans í dag og segir tón­inn hafa ein­kennst af skýrum og ítrek­uðum hót­unum í garð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.

Fram kemur í frétt Heim­ild­ar­innar að Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri hafi í morgun gagn­rýn launa­hækk­anir almenn­ings, í fram­haldi af því að pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans, þar sem hann er for­maður, ákvað að halda vöxtum óbreyttum í 7,25% en þeir eru þeir hæstu í Evrópu, fyrir utan þar sem stríð geysar og ein­ræði ríkir.

„Ég hef oft fylgst með kynn­ingum pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands en sjaldan, ef nokkru sinni, upp­lifað jafn skýrar og síend­ur­teknar hót­anir í garð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og á fund­inum í dag,“ skrifar Vil­hjálmur í Facebook-færslu sinni sem birt­ist nú fyrir stuttu. Hann segir að verka­lýðs­hreyf­ingin, launa­hækk­anir og kjara­samn­ingar hafi verið nefnd „aftur og aftur“ og að tónn­inn hafi verið „ekki upp­byggi­legur heldur aug­ljós­lega í hót­un­ar­stíl“.

Að hans sögn voru skila­boðin ein­föld:

„Skila­boðin voru ein­föld: ef for­sendur kjara­samn­inga stand­ist ekki í sept­em­ber og ef verka­lýðs­hreyf­ingin neyð­ist til að segja upp samn­ingum muni Seðla­bank­inn bregð­ast við með veru­legum stýri­vaxta­hækk­unum.“ Hann bætir við: „Það var ekki annað að skilja en að launa­fólki væri bein­línis hótað, eins og eng­inn væri morg­un­dag­ur­inn.“

Vil­hjálmur rifjar upp að síð­ustu kjara­samn­ingar hafi verið mót­aðir af Starfs­greina­sam­bandi Íslands, Eflingu og Samiðn. Hann segir að þar hafi verið samið um krónu­tölu­hækkun á kaupstaxta sem hafi skilað lægst laun­aða fólk­inu 23.750 króna hækkun á mán­uði, eða um 5,6 pró­senta hækkun að með­al­tali. Aðrir hafi fengið 3,5 pró­senta launa­hækkun og heild­ar­kostn­að­ar­mat samn­ing­anna hafi verið um 4 pró­sent.

„Þessir samn­ingar voru gerðir af ábyrgð og í þeirri trú að þeir myndu skapa skil­yrði fyrir lækkun verð­bólgu og í fram­hald­inu lækkun vaxta, sem var grund­vall­ar­for­senda fyrir stöð­ug­leika heim­ila og fyr­ir­tækja,“ skrifar hann.

Hann segir jafn­framt að samn­ing­arnir hafi verið gerðir gegn því að ríki, sveit­ar­fé­lög, verslun og þjón­usta héldu aftur af skatta­hækk­unum, gjald­skrár­hækk­unum og verð­lags­hækk­unum, en sú for­senda hafi verið svikin. „Það er stað­reynd,“ skrifar Vil­hjálmur og gagn­rýnir að Seðla­bank­inn hafi lítið fjallað um áhrif opin­berra hækk­ana á verð­bólgu.

Í því sam­hengi nefnir hann meðal ann­ars „50 pró­senta hækkun á fasta­gjaldi hita­veitu hjá Orku­veita Reykja­víkur“, miklar hækk­anir á flug­far­gjöldum hjá Icelandair í des­em­ber sem leiddu til þess að verð­bólga hækk­aði um 1,15 pró­sent á einum mán­uði, og „ekki síst gjald­skrár­hækkun hjá Íslands­pósti sem nam allt að 120 pró­sentum“.

Hann segir jafn­framt að lítið hafi verið fjallað um að opin­berir aðilar eigi stóran þátt í því að verð­tryggðar skuldir heim­ila hafi hækkað um 31 millj­arð króna á aðeins tveimur mán­uðum. „Þetta er raun­veru­leiki sem fólk upp­lifir í dag­legu lífi en virð­ist ekki fá rúm í grein­ingu Seðla­bank­ans,“ skrifar hann.

Vil­hjálmur hafnar því að launa­skrið sé á ábyrgð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og bendir á að í Breið­fylk­ing­unni hafi verið samið um 4 pró­senta kostn­að­ar­auka, einnig hjá ríki og sveit­ar­fé­lögum. Hann segir hins vegar að aðrir hópar hafi samið um mun meiri hækk­anir og nefnir að launa­vísi­tala rík­is­starfs­manna hafi hækkað um 11,3 pró­sent og launa­vísi­tala starfs­manna sveit­ar­fé­laga um 11,7 pró­sent.

„Við í verka­lýðs­hreyf­ing­unni vorum svikin, og það illi­lega,“ skrifar hann og segir að þrátt fyrir hátt vaxta­stig sem bitni illa á heim­ilum og fyr­ir­tækjum sé það verka­lýðs­hreyf­ingin sem fái „sparkið“, á meðan Seðla­bank­inn „tipplar á tánum í kringum stjórn­völd, sveit­ar­fé­lög, verslun og þjón­ustu, og ekki síst fjár­mála­kerfið“.

Í lok færsl­unnar segir Vil­hjálmur afstöðu sína skýra:

„Ef for­sendur kjara­samn­inga stand­ast ekki í sept­em­ber þá ber að segja þeim upp.“ Hann segir að ekki sé hægt að horfa upp á „það ofbeldi sem lág­tekju­fólk á almennum vinnu­mark­aði og hjá ríki og sveit­ar­fé­lögum hefur þurft að þola“ og varar við því að lág­tekju­fólk verði notað sem „högg­púði í bar­áttu gegn verð­bólgu sem aðrir bera meg­in­á­byrgð á“.

„Ef sam­fé­lagið ætlar ekki að standa við sinn hluta samn­ings­ins þá er ein­fald­lega ekki grund­völlur fyrir því að verka­lýðs­hreyf­ingin geri það áfram,“ bætir Vil­hjálmur við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Peningar

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Verslunin í Hafnarfirði hefur verið sjálfstæð um áratuga skeið
  • Peningar

    Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega