Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Reykvíkingur kom lögreglunni á óvart með óútreiknanlegri hegðun

Reykvíkingur kom lögreglunni á óvart með óútreiknanlegri hegðun
Reykja­vík Í morgun voru allir klefar lög­regl­unar í notkun. Mynd: Víkingur

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu brást við nokkrum útköllum í dag, meðal ann­ars vegna óspekta, umferð­ar­laga­brota og hand­taka vegna ölv­unar og fíkni­efna­neyslu.

Óljós til­kynn­ing barst lög­reglu um öskur og læti frá íbúð í Reykja­vík. Þegar lög­regla kom á vett­vang sáust brotnir munir fyrir aftan húsið og stóð einn íbúi á svölum og öskr­aði. Þegar lög­reglu­menn reyndu að nálg­ast mann­inn í gegnum sam­eign húss­ins spraut­aði hann slökkvi­tæki að þeim og kastaði því síðan niður stiga í átt að lög­reglu­mönn­unum. Lögreglu tókst að kom­ast inn í íbúð manns­ins þar sem hann ræddi við lög­reglu­menn en þótti óút­reikn­an­legur. Hann var hand­tek­inn og vistaður í fanga­klefa. Í íbúð­inni sáust meðal ann­ars hnífa­för í vegg og merki um áfengis- og fíkni­efna­neyslu. Maðurinn var vistaður í klefa þar til unnt verður að taka af honum skýrslu.

Þá barst til­kynn­ing um glanna­legan akstur á snjó­mokst­urstæki. Við nán­ari athugun kom í ljós að öku­mað­ur­inn var undir áhrifum vímu­efna og jafn­framt sviptur öku­rétt­indum. Hann var hand­tek­inn og farið með hann í blóð­sýna­töku.

Lögregla stöðv­aði einnig mann við mat­vöru­verslun í Kópavogi sem reynd­ist vera eft­ir­lýstur og undir áhrifum áfengis. Við leit fannst útdrag­an­leg kylfa í fórum hans. Maðurinn var hand­tek­inn og vistaður í fanga­klefa.

Í öðru máli var til­kynnt um öku­mann sem hafði ekið á bif­reið til­kynn­anda og yfir­gefið vett­vang án þess að stöðva. Til­kynn­andi elti bif­reið­ina heim til öku­manns­ins þar sem tveir menn voru í henni. Lögregla fann menn­ina síðar í íbúð þar sem annar þeirra hafði falið sig í fata­skáp. Menn­irnir neit­uðu báðir að hafa ekið bif­reið­inni og reynd­ust báðir vera ölv­aðir. Þeir voru hand­teknir og vistaðir í fanga­klefa.

Að lokum aðstoð­aði lög­regla öku­mann sem hafði ekið á ljósa­staur með þeim afleið­ingum að bif­reiðin hafn­aði utan vegar. Öku­mað­ur­inn slapp óslas­aður og bif­reiðin reynd­ist enn öku­fær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi