Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Við áttum að vera hipparnir sem ætluðu að koma á eilífum friði“

Kári Stef­áns­son er óánægður með vinstrið á Íslandi

„Við áttum að vera hipparnir sem ætluðu að koma á eilífum friði“
Kári Stef­áns­son Kári er nýjasti gestur Sölva Tryggva Mynd: Jón Gústafsson

Kári Stef­áns­son segir kyn­slóð­ina sem hann til­heyrir hafa átt að vera hipp­ana sem ætl­uðu að koma á eilífum friði, en það hafi aug­ljós­lega mis­tek­ist. Kári, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir mis­skipt­ingu vera eina stærstu ástæðu þess að hlut­irnir hafi farið í ranga átt í hinum vest­ræna heimi:

„Ég held að hluti af þessu eigi rætur sínar í því að þeirri vel­sæld sem mín kyn­slóð byggði upp var ekki dreift jafnt í sam­fé­lag­inu, heldur mjög ójafnt. Ekki bara þegar kemur að pen­ingum, heldur mörgu öðru. Þú ert allt í einu kom­inn með stóran hund­raðs­hluta af vest­rænum sam­fé­lögum sem passa illa inn í sam­fé­lagið. Verka­lýðs­hreyf­ingin er orðin frekar mátt­lítil og vinstri hlið stjórn­mál­anna sem ég tel mig til­heyra hefur gjör­sam­lega brugð­ist. Vinstri hlið stjórn­mál­anna sam­anstendur nú af fólki sem seg­ist vilja hlúa að þeim sem minna mega sín, en í raun­inni gera ekk­ert annað en að hlúa að öðrum sem segj­ast vilja hlúa að þeim sem minna mega sín í sam­fé­lag­inu. Þetta fólk getur ekki lengur átt raun­veru­legt sam­tal við þá sem illa standa af því að þetta er miklu mennt­aðra fólk sem á í erf­ið­leikum með að finna sam­hljóm við hóp­inn sem þau líta á sem frekar ómennt­aðan skríl. Það vantar fólk sem er með raun­veru­legan sam­hljóm við þá sem minna mega sín og eru undir í sam­fé­lag­inu. Þetta veldur svo því að sá hópur sem verst stendur fer að taka undir öfga­fullar hug­myndir um það hvernig megi breyta heim­inum. Minn sós­í­al­ismi er ekki flókn­ari en eft­ir­far­andi: Ríkið á að sjá um heil­brigð­is­þjón­ustu og hún á að vera ókeypis. Númer tvö að öll börn eigi jafnan aðgang að menntun og skólum og það eigi ekki að vera skóla­gjöld. Í gegnum grunn­skól­ana er hægt að jafna aðstöð­una fyrir börn sem koma frá erf­iðum heim­ilum. Í þriðja lagi verðum við að hafa kerfi sem gerir ungu fólki kleyft að kaupa sitt fyrsta hús­næði. Svo megum við auð­vitað ekki láta fólk svelta. En að þessu slepptu og öðru leyti geta menn bara séð um sig sjálfir og ríkið á ekki að vera að vasast of mikið í lífi fólks. En ef við stöndum ekki undir þessum grunn-skil­málum erum við eig­in­lega ekki sam­fé­lag.“

Hetjan Sólveig Anna

Kári segir ástæðu til að setj­ast niður og staldra við, til að átta sig á því hvað hafi farið úrskeiðis og hvað sé hægt að læra af þessu öllu saman:

„Mér finnst mikil ástæða fyrir fólk af minni kyn­slóð að setj­ast niður núna og velta fyrir sér hvers konar heimi við höfum skilað í hend­urnar á þeim tveimur kyn­slóðum sem koma síðan. Við áttum að vera hipp­arnir sem ætl­uðu að koma á eilífum friði og ætl­uðum að útrýma eign­ar­haldi og að allir yrðu jafnir. Það eina sem átti að koma inn í sam­skipti fólks var ást og kær­leikur. Nú situr maður hér hálfri öld síðar og horfir á heim­inn og þetta hefur þró­ast allt allt öðru­vísi."

Hann seg­ist þó sjá und­an­tekn­ingar hjá fólki í stjórn­málum og á opin­berum vett­vangi og nefnir þar sér­stak­lega Sólveigu Önnu, for­mann Eflingar:

„Sólveig Anna Jóns­dóttir er ein af hetj­unum mínum í þessu sam­fé­lagi. Hún leggur ekki mikið á sig við að vera þýð og kurt­eis og segir það sem hún meinar. Og það sem hún meinar á raun­veru­legar rætur hjá því fólki sem að illa stendur. Ég ber mikla virð­ingu fyrir henni sem rödd í íslensku sam­fé­lagi og það vantar fleiri raddir af þessu tagi. Fólk sem hugsar og hagar sér eins og hún. Eitt af því sem virð­ist vanta svo­lítið í sam­fé­lagið okkar er meiri ást og kær­leikur. Ég veit að þetta hljómar væmið, sér­stak­lega úr munni óþverra eins og mín. En ég held að þetta skipti raun­veru­legu máli.”

Vill ekki að Ísland kaupi vopn

Sölvi og Kári fara um víðan völl í þætt­inum og ræða meðal ann­ars um heims­málin, Evr­ópu­sam­bandið og aukna áherslu á hernað.

„Ég er ánægður með margt hjá núver­andi utan­rík­is­ráð­herra og finnst afstaða hennar góð í ýmsum málum. En ég er algjör­lega ósam­mála því að Íslend­ingar séu að leggja fram fé til þess að kaupa vopn. Mér finnst að það fé sem við sendum Úkra­ínu­mönnum eigi að vera eyrna­merkt til að kaupa lyf og hlúa að þeim sem hafa særst í stríð­inu,” segir Kári, sem er ekki hrif­inn af þeirri til­hneig­ingu vald­hafa að vilja setja pen­ing í hernað og stríð:

„Við komum aldrei til með að geta varið þetta land. Það er ekki í spil­unum og er alveg út í hött. Ef við ætlum að tryggja öryggi kom­andi kyn­slóða eigum við að gera það í gegnum mennta­kerfið og svo fram­vegis. Við verjum ekki þetta land með vopnum. Þegar kemur að því hvar við stillum okkur upp verðum við að skoða hvað við græðum á því að fara inn í Evr­ópu­sam­bandið, en líka hverju við glötum. Heim­ur­inn er mjög óræður akkúrat núna og það er erfitt að spá fyrir um hvað ger­ist á næstu árum. Hvort að við þurfum að ganga inn í Evr­ópu­sam­bandið til þess að vera á réttum stað á kom­andi árum er alls óvíst.” 

Flóknar tilfinningar til Davíðs Oddsonar

Sölvi spyr Kára í þætt­inum um hans gamla vin Davíð Oddsson, sem nýlega féll frá. Kári segir sam­band þeirra oft á tíðum hafa verið flókið, en hann beri mik­inn hlý­hug og kær­leika til Davíðs:

„Ég hef mjög flóknar til­finn­ingar til Davíðs. En á þessu augna­bliki er hjarta mitt að springa af vænt­um­þykju fyrir honum. Ég er mjög dapur yfir því hvernig fór fyrir honum eftir að hann hætti í póli­tík­inni. Hann var feyki­lega „effek­tívur” stjórn­mála­maður, þó að ég hafi sjaldn­ast verið sam­mála honum. Þetta byrj­aði í mennta­skóla þar sem að hann var tals­maður hægri manna og ég tals­maður vinstri manna og í þá daga vorum við nán­ast aldrei sam­mála. En hann átti til mjög mikla hlýju og hann var mjög víð­sýnn, skemmti­legur og feyki­lega góður sögu­maður. Hann var geysi­lega áhrifa­ríkur stjórn­mála­maður og sterkur leið­togi. En þegar hann hætti og fór upp í Seðla­banka, fór hann snemma að spá fyrir um fall bank­anna og fannst hann fá lít­inn hljóm­grunn. Og svo þegar bank­arnir hrynja og allt fór á haus­inn og margir fóru að kenna honum um þetta, held ég að hann hafi van­metið and­stæð­inga sína og ofmetið sjálfan sig. Hann hafði hjólað í fólk sem átti meiri­hluta af fjöl­miðlum á Íslandi og var alveg ófeimið við að nota þessa fjöl­miðla til þess að berja á honum. Mjög margt af því sem hann skrif­aði um eftir að hann fór að skrifa fyrir Morg­un­blaðið mark­að­ist af því að honum fannst sam­fé­lagið hafa verið honum órétt­látt.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una