Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Meðlimir Dimmu saka Stefán um lygar

„Þessar full­yrð­ingar eru ekki bara æru­meið­andi óhróður, heldur ósann­indi“

Meðlimir Dimmu saka Stefán um lygar
Dimma eftir tón­leika Mynd: Ingólfur Geirdal/Facebook

Ingólfur Geirdal, með­limur Dimmu og aðrir með­limir hljóm­sveit­ar­innar, eru mjög ósáttir við Stefán Jak­obs­son og yfir­lýs­ingu hans en hann hætti í hljóm­sveit­inni á Facebook í fyrra­dag.

Í færslu sem Stefán, fyrr­ver­andi söngv­ari Dimmu, birti á sam­fé­lags­miðlum sak­aði hann Silla Geirdal um að hafa tekið stöðu með manni sem kærði Stefán til lög­reglu fyrir lík­ams­árás en Stefán var sýkn­aður í vik­unni í Hér­aðs­dómi. Við þetta sætti hann sig ekki og hætti í hljóm­sveit­inni í kjöl­farið.

Dimma hefur nú svarað færslu Stefáns.

„Stefán Jak­obs­son birti nýverið yfir­lýs­ingu á sam­fé­lags­miðlum og í fjöl­miðlum þar sem hann ber Silla Geirdal og eig­in­konu hans þungum sökum. Þessar full­yrð­ingar eru ekki bara æru­meið­andi óhróður, heldur ósann­indi,“ skrifar Ingólfur fyrir hönd sveit­ar­innar.

„Stefán full­yrðir að Silli og eig­in­kona hans hafi frá upp­hafi máls tekið skýra afstöðu gegn honum og kennt honum um þessar ófarir. Það er rangt. Þau reyndu þvert á móti bæði í sitt­hvoru lagi að koma á sam­tali og sáttum milli beggja aðila, strax í upp­hafi. Stefán hafn­aði því alfarið og sagði að málið yrði að fara sína leið,“ heldur tón­list­ar­mað­ur­inn áfram.

„Þar sem báðir aðilar tengd­ust þeim hjónum (ann­ars vegar fjöl­skyldu­böndum og hins­vegar vina­böndum) og aðilum bar ekki saman um máls­at­vik, voru þau hjónin sett á milli steins og sleggju og báðu um að þau væru ekki dregin inn í þessar deilur. Því var svarað af Stefáni og eig­in­konu hans með blokk­unum á sam­fé­lags­miðlum, útskúfun og kröfum frá Stefáni að eig­in­kona Silla kæmi ekki bak­sviðs á tón­leikum sveit­ar­innar. Það gerði and­rúms­loftið ekki auð­veld­ara fyrir neinn og á end­anum sprakk sam­starfið,“ skrifar Ingólfur.

„Silli er einn af stofn­með­limum DIMMU og hefur und­an­farin ár séð um umboðs­mennsku og rekstur sveit­ar­innar auk ann­arra starfa. Ef hann hefði tekið skýra afstöðu gegn Stefáni, hefði sam­starf­inu verið sjálf­hætt strax í upp­hafi. Þvert á móti hélt Silli áfram að bóka tón­leika, hljóð­blanda og klippa myndefni og hanna aug­lýs­ingar ásamt eig­in­konu sinni, þar sem Stefán var oftar en ekki hafður í for­grunni eins og áður. Enda er það stað­reynd að eng­inn hefur lagt á sig meiri vinnu við tón­leika­upp­setn­ingu, upp­tökur, aug­lýs­ingar og hönnun fyrir Stefán Jak­obs­son og Dimmu en einmitt Silli og frú,“ skrifar rokk­ar­inn mikli um málið

„Við bræður trúðum því að styrkur DIMMU lægi í heild­inni og við ættum alla­vega 10 góð ár eftir saman. Ljóst er nú að svo verður ekki en að slíta sam­starf­inu með því að dreifa óhróðri og úthúða fyrrum sam­starfs­fólki sínu í fjöl­miðlum er ekki bara ljótt, heldur óheið­ar­legt,“ heldur hann áfram.

„Ásetn­ing­ur­inn er aug­ljós; að búa þannig um hnút­ana að við fyrrum sam­starfs­fé­lagar hans eigum okkur varla við­reisnar von. Og ljóst er að það eru margir sem eru til­búnir að hoppa á vagn­inn með heykvísl­ana hátt á lofti, án þess að heyra aðrar hliðar máls­ins. En með þessu kastar Stefán ekki bara rýrð á þau 23 ár sem DIMMA hefur starfað, heldur sér­stak­lega þau 15 ár sem hann var með okkur,“ segir hann.

„Við óskum Stefáni vel­farn­aðar og von­andi getur hann látið af því í fram­tíð­inni að draga okkur inn í sín mál og gera að blóra­bögglum í fjöl­miðlum. Okkar leiðir hafa skilið og það hlýtur að vera hægt að leyfa okkur að lifa í friði, þó ekki væri nema bara af virð­ingu við þær fjöl­mörgu góðu minn­ingar og tón­list­ar­legu arf­leifð sem við sköp­uðum saman,“ skrifar Ingólfur að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi