Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir fíkniefnalagabrot en greint er frá því í Lögbirtingablaðinu.
Maðurinn er ákærður fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa, síðdegis laugardaginn 9. nóvember 2024, haft í vörslum sínum 10,87 g af maríhúana, sem lögregla lagði hald á við leit í herbergi ákærða í verbúð í Grundarfjarðarbæ.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Vesturlands þann 19. maí.






















Athugasemdir