Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Þetta með kreditkort borgarstjóra skiptir Reykvíkinga ekki rassgat máli“

Fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­manna var ákveðin í umræðu um kom­andi kosn­ingar

„Þetta með kreditkort borgarstjóra skiptir Reykvíkinga ekki rassgat máli“
Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir Er fyrrum Alþing­is­maður. Mynd: Bragi Þór Jósefsson/Alþingi

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og bæj­ar­stjóri Mos­fells­bæjar, gagn­rýndi í Silfri Egils í gær þann tón sem ein­kennt hefur póli­tíska umræðu að und­an­förnu og segir miður að stjórn­mál snú­ist í auknum mæli um að ráð­ast að póli­tískum and­stæð­ingum í stað þess að ræða mál­efni af yfir­vegun og ábyrgð.

Bæj­ar­stjór­inn fyrr­ver­andi segir mik­il­vægt að fólk geti rætt stjórn­mál út frá eigin gildum og mark­miðum með mál­efna­legum hætti. Að hennar mati sé of algengt að farið sé „í mann­inn en ekki bolt­ann“ í opin­berri umræðu.

Ragn­heiður kallar eftir auk­inni umræðu um raun­veru­leg verk­efni stjórn­mál­anna og vill að kjós­endur fái skýr svör um hvað fram­bjóð­endur hygg­ist gera nái þeir kjöri og hvaða mál þeir ætli að leggja áherslu á.

Hún bendir jafn­framt á að íbúar hafi mestar áhyggjur af grunn­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga, þar á meðal grunn­skólum, leik­skólum og annarri þjón­ustu sem snerti dag­legt líf fólks. „Það þarf að ræða það sem skiptir máli og skiptir íbúa sveit­ar­fé­lag­anna máli. Þetta með kredit­kort borg­ar­stjóra skiptir Reyk­vík­inga ekki rass­gat máli.“

Þá leggur hún áherslu á ábyrgð í orð­ræðu stjórn­mála­manna og segir mik­il­vægt að rætt sé um bæði ein­stak­linga og mál­efni af virð­ingu. Hún telur nauð­syn­legt að nýir full­trúar í Reykja­vík­ur­borg nálgist verk­efni sín af mál­efna­legum hætti og leggi fram skýra sýn á hvernig þeir hygg­ist bæta borg­ina.

Að sögn Ragn­heiðar er það einna óþægi­leg­ast í póli­tík þegar stjórn­mála­menn stilla sér upp sem þeim einum sem búi yfir réttum lausnum á meðan aðrir séu gerðir lít­ils virði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum