Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mínir líkar deyja yfirleitt ungir“

Mummi Týr Þór­ar­ins­son er eilífð­artöffari sem djöfl­að­ist í gegnum fyrri hluta ævinnar í drykkju, dópi og ves­eni og var með sjálfs­morðs­hugs­anir í mörg ár. Hann man enn eftir bragð­inu af hlaupi hagla­byssunnar þegar hann ætl­aði að ljúka þessu. En hann hætti við. Betra og fal­legra líf beið hans. Hann sagði skilið við neysl­una fyrir rúmum 30 árum og í áraraðir var hann for­stöðu­maður Götu­smiðj­unnar, með­ferð­ar­heim­ilis fyrir krakka í vanda, og nokkur þús­und ung­menni fengu þar hjálp. Svo heyrð­ust óánægju­raddir og ásak­anir sem tóku þungt á hann og í kjöl­far þeirrar atburða­rásar var Götu­smiðj­unni lokað. Mummi Týr upp­lifði þung­lyndi og kvíða í kjöl­farið og fékk hvergi vinnu. Það birti þó til og í dag býr hann ásamt eig­in­konu sinni, ást­inni í lífi hans, í Róm þar sem hún vinnur hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum. Mummi Týr er kom­inn á eft­ir­laun og þrátt fyrir veik­indi á und­an­förnum árum nýtur hann lífs­ins á mót­or­hjól­inu sínu og í göngut­úrum. Á svöl­unum er ein­fætta dúfan Magga sem hann gefur reglu­lega að éta. Og hann hugsar enn um þá sem minna mega sín.

„Mínir líkar deyja yfirleitt ungir“
Mummi Týr Mummi opn­aði sig upp á gátt í við­tali við Mannlíf

Mummi Týr Þór­ar­ins­son. Maður sem gekk hinn grýtta veg á fyrri hluta ævinnar en sneri síðan við blað­inu og fór að aðstoða aðra í sömu sporum. Hvað er þessi eilífð­artöffari að gera í dag? Hann sem er „kom­inn á aldur“ í þeirri merk­ingu að hann er orð­inn sex­tíu og sjö ára.

Andlit hans birt­ist á tölvu­skjánum. Elsku­legur. Glað­legur.

Húðflúr á fingrum og hand­leggjum. Hvað gerð­ist árið 1907? Fjórir fingur á hægri hendi eru húð­flúraðir með þessum tölum - ein tala á hverjum fingri.

„Land­græðslan var stofnuð árið 1907. John Wayne fædd­ist árið 1907 en ég fædd­ist 19.07. árið 1958,“ segir Mummi. Á fjórum fingrum vinstri handar er fæð­ing­ar­árið húð­flúrað.

Við spjöllum saman í þrjá og hálfan tíma um líf hans - sorgir og gleði. Blaða­mað­ur­inn í Reykja­vík. Við­mæl­and­inn í Róm.

„Saga mín fyrri hluta ævinnar fram til þrjá­tíu og tveggja eða þrjá­tíu og þriggja ára var bölv­aður djöf­uls­ins barn­ingur,“ segir Mummi Týr í upp­hafi sam­tals­ins. „Ég var djammari og alltaf í stuði og fífla­gang­ur­inn fór út fyrir öll vel­sæm­is­mörk þannig að þetta varð mjög skraut­legt.“

Það er ágætt að byrja á upp­haf­inu. Æskunni. Þannig byrjar nefni­lega lífið. Síðar í við­tal­inu er sagt frá bölv­aða djöf­uls­ins barn­ingnum.

Hann reykti áður fyrr en situr nú, mað­ur­inn kom­inn á eft­ir­launa­ald­ur­inn, með veip í borg­inni í suðri sem sagt er að allir vegir liggi til. Situr við borð á fjórðu hæð í íbúð­inni í Róm og rifjar upp.

„Ég fædd­ist og ólst upp í Reykja­vík upp úr mið­biki síð­ustu aldar svo ég sé lýrískur. Æskan var brotin og ég á rosa­lega fáar æskuminn­ingar. Mamma sagði mér að ég hafi verið altalandi mjög snemma og þótti mjög við­ræðu­góður strax tveggja ára gam­all. Ég var alltaf að stinga af að heiman og mamma sótti mig reglu­lega niður á lög­reglu­stöð þar sem ég sat uppi á ein­hverjum skenk að spjalla við lög­reglu­menn. Ég á engar minn­ingar um þetta. En ég var greini­lega alltaf að fara eitt­hvert sem segir að mér leið ekki vel heima fyrir.

Á þessum tíma skildu for­eldrar mínir en ég á heldur engar minn­ingar um það. Pabbi fór til Afríku þegar fólk var að flýja umvörpum á sjö­unda ára­tugnum en þá var mikið atvinnu­leysi og ekki gott ástand á klak­anum eins og ger­ist svo sem reglu­lega. Móðir mín, þá ein­stæð með þrjá litla stráka, kynnt­ist öðrum manni sem var frægur ein­stak­lingur í þinni deild. Þau eign­uð­ust tvo stráka saman svo við bræð­urnir erum alls fimm.“

Mummi Týr talar um að heim­il­is­lífið hafi ekki verið eins og það hefði átt að vera. Betra er að fara ekki nánar út í það af virð­ingu við fjöl­skyld­una. En ástandið hafði áhrif á líðan drengs­ins.

Silungapollur

„Ég var Sil­unga­polls­barn,“ segir Mummi Týr sem seg­ist að minnsta kosti tvisvar sinnum hafa verið sendur á vist­heim­ilið á því tíma­bili sem mamma hans var ein­stæð. Hann var fjög­urra eða fimm ára þegar hann fór þangað fyrst ásamt eldri bróður sínum.

„Ég man að það var fullt af krökkum og rosa agi á öllu. Bróðir minn var einu sinni að sparka bolta og skór­inn fylgdi út í poll­inn sem stað­ur­inn er kenndur við og hann var hátt­aður ofan í rúm um miðjan dag fyrir það. Ég man að ég tal­aði við hann og hann var alveg miður sín uppi í rúmi um hábjartan dag. Ég man svona glefsur. Ég man að hurð­ar­hún­arnir voru mjög ofar­lega á hurð­unum þannig að börnin náðu ekki upp í þá. Það var járnagi þarna og þetta var bara ekki gott. Samt voru börnin út um allt úti og í hraun­inu og ein­hverjir iðn­að­ar­menn og ein­hver skúma­skot og úti­hús. Ég man glefsur.“

Hann ræskir sig.

„Fyr­ir­gefðu, ég var mis­not­aður þar af iðn­að­ar­manni sem var að laga húsið.“

Hann ræskir sig aftur.

„Þú sérð að um leið og ég byrja að tala um þetta þá fara í gang ref­lexar. Þá getur þú ímyndað þér hvað var gert við mig. Ég skildi aldrei af hverju ég átti erfitt með að gleypa pillur. Ég kúg­að­ist gjarnan.“

Hann sagði engum frá.

Mummi gróf þetta niður og átti ekki minn­ingu um mis­notk­un­ina fyrr en mörgum ára­tugum síðar í Ayahuasca-ser­emóníu sem sótti að hans sögn atburða­rás­ina frá Sil­unga­polli upp í með­vit­und­ina.

„Ég fór í kóma og þetta var svaka­legt upp­li­velse. Þetta er heill heimur. Í þessu ástandi labb­aði ég í gegnum mis­notk­un­ina og þetta var „grand finale“ fyrir mig. Auðvitað upp­lifði ég sorg og alls konar í æsku eftir að þetta gerð­ist en mér fannst svo gott að fá síð­asta púslið í minni sjálfs­skoðun. Nú „meik­aði sens“ af hverju ég tikk­aði í öll boxin sem mis­notað barn.“

„Fyr­ir­gefðu, ég var mis­not­aður þar af iðn­að­ar­manni sem var að laga húsið.“

Mummi segir að upp­lifunin hafi verið svo ótrú­leg að erfitt sé að gera sér grein fyrir henni. Hann seg­ist þó telja að hann hafi loks losnað undan síð­ustu bönd­unum sem tengdu hann við við­kom­andi mann og að þá hafi loks­ins orðið honum ljóst hver hann væri í raun. Í kjöl­farið hafi hann gengið í gegnum afar erf­iða helgi, upp­lifað mikla van­líðan og átt við martraðir að stríða.

„Þetta var alveg skelfi­legt. En eftir á var þetta samt svo heilandi.“

Hann segir þetta vit­und­ar­ferða­lag hafa verið stóra örlaga­vald­inn í lífi sínu sem hjálp­aði honum að jarð­tengja sig betur og hreinsa út margra ára­tuga gamlan sárs­auka. „Öll fyrri reynsla nýt­ist mér í dag og mér finnst ég bara maður að meiri. Ég veit alveg hel­vítis hell­ing en eftir því sem ég veit meira þá fatta ég hvað ég veit ógeðs­lega lítið,“ segir Mummi Týr og orðar þetta svipað og Sókrates á að hafa gert. „Ég er alltaf að fræða mig. Ég er að horfa á fyr­ir­lestra á dag­inn í „chillinu“ - TedTalk til dæmis og læra um með­virkni eða brotin sam­bönd. Ég er alltaf að mennta mig.“

Til geðlæknis níu ára

Mummi Týr seg­ist vera bull­andi les­blindur og með ADHD þannig að skóla­gangan var ein stór martröð. Það eru hans orð.

Tossa­bekkir.

Skóla­stjór­inn.

Rekinn heim.

„Ég var reglu­lega rek­inn út úr stof­unni og þangað til ég var níu ára fékk ég alltaf skila­boðin um að ég væri heimskur. Ég gat ekki lært ein­hver ljóð utan að. Ég gat ekki lært heima. Ég gat ekki lesið. Ég var að teika bíla, við brutum rúður og brutumst inn í sjopp­una. Ég skipu­lagði fyrsta inn­brotið mitt þegar ég var níu ára. Gerði það með stæl. Þannig að ég hef verið klár krakki. Þannig að þetta var bara vont.“

Hann var sendur til geð­læknis þennan vetur. Níu ára gam­all. Hann segir að geð­lækn­ir­inn hafi látið sig taka ein­hvers konar greind­ar­próf og þá hafi komið í ljós að dreng­ur­inn skor­aði mjög hátt á því. „Á einum degi breytt­ist það að vera svona heimskur yfir í að vera svona vel gef­inn drengur. En mér fannst ég ekki vera greindur; ég gat ekki lært og ég gat ekki lesið.“

Hann seg­ist hafa verið kjaft­for. Gat alltaf svarað fyrir sig. „Ég ólst upp með fjórum bræðrum þannig að ég varð mjög góður í að slást. Ég hvorki lagði í ein­elti né var lagður í ein­elti en ég aftur á móti tók upp hansk­ann fyrir ein­eltiskrakka. Og ég lenti ósjaldan í alls konar slags­málum og leið­indum þegar ég sá að það var verið að níð­ast á öðrum. Mín rétt­læt­is­kennd meik­aði það ekki. Einn af mínum gömlu félögum var lagður í brút­alt ein­elti, alveg brút­alt,“ segir Mummi Týr með áherslu, „og við strák­arnir tókum hann inn í vin­skap með okkur og héldum svo­lítið vernd­ar­hendi yfir honum án þess að við töl­uðum um það. En hann var alltaf með okkur strák­unum, þessi gaur til dæmis. Og það var alveg ofboðs­lega ljótt sem maður horfði upp á.“

Honum gekk ekki vel í skóla en hann var góður í fót­bolta ef hann nennti að spila. „Ég var líka ágætur í hand­bolta og ég keppti á Íslands­meist­ara­móti í borð­tennis. Svo var ég rosa góður í billi­ard og ég var ágætur í að tefla. Ég gat alveg til­einkað mér alls konar íþróttir en áfengið varð mitt aðal­á­huga­mál á þessum árum. Þetta frelsi frá sjálfum mér var mitt áhuga­mál. Að geta andað ofan í maga.“

Himnarnir opnuðust

Nei, honum leið ekki vel.

„Ég var „suicidal,“ segir hann og á við að hann hafi verið með sjálfs­morðs­hugs­anir. „Ég byrj­aði snemma á ung­lings­ár­unum að fabúlera með að ég færi bara. Og það elti mig inn í full­orð­ins­árin.“

Strák­ur­inn fór að reykja þrettán ára. Svo var það fyrsti sop­inn. Hann var þá líka þrettán ára. Hvað getur hann sagt um þennan fyrsta sopa?

„Ég man ekki hvaða drykkur það var. Það var eitt­hvað sterkt áfengi. Við vorum þá flutt upp í Mos­fells­sveit og þá voru ver­búðir í kringum Ála­foss­verk­smiðj­una þar sem bjó far­and­verka­fólk sem vann í lopa­verk­smiðj­unni og við krakk­arnir vorum oft að snigl­ast í kringum þessar ver­búðir. Ég var nýorð­inn þrettán ára og ein­hver kom með áfengi og allir félagar mínir voru meira og minna byrj­aðir að drekka.

Mér fannst þetta vera við­bjóðs­lega vont og ég kúg­að­ist þegar ég var að drekka þetta. En svo varð ég fullur og ég man að himn­arnir opn­uð­ust. Ég var allt í einu ekki hræddur. Ég var allt í einu ekki „para­noid“. Ég var allt í einu ekk­ert hræddur við stelp­urnar. Ég man að ég vakn­aði dag­inn eftir í föt­unum. Það hafði verið rign­ing, það var ekk­ert mal­bikað og það var leið­inda­drulla. Ég var grút­skítugur og ég man að ég hugs­aði að þetta ætl­aði ég að gera eins oft og ég gæti.

Sumir hafa talað um að fólk fæð­ist alkó­hólistar og að þetta sé genetískt en fíkn og alkó­hól­ismi eru félags­leg arf­leifð. Það er ekki genetísk arf­leifð. Ég lagði allt í söl­urnar til að útvega mér áfengi - landa og allt sem ég gat náð í - og var við­þols­laus í því að kom­ast í þetta ástand eins oft og ég gat.“

Íslandsklukkan

Mummi Týr var aftur sendur til geð­læknis þegar hann var fjórtán ára af því að allir héldu að hann væri snar­geggj­aður. Aftur eru þetta hans orð.

„Ég var svo fljótur að lesa fólk og aðstæður en það sem ég gerði var eins og ég væri bara geð­veikur. Þetta pass­aði ekki saman. Það kom það sama út hjá geð­lækn­inum og þegar ég fór þegar ég var níu ára. Ég skor­aði hátt á ein­hverju greind­ar­prófi. Þessi púsl pössuðu ekki saman af því að hegðun mín pass­aði ekki við að þarna væri mjög klár ein­stak­lingur á ferð­inni. Ég veit að ég hafði mjög mikið „sur­vi­val instinct“ - ég gat aðlag­ast öllum aðstæðum. Ég gat talað mig inn í og út úr aðstæðum.“

Geð­lækn­ir­inn setti Mumma á róandi lyf.

„Ég tók eina svo­leiðis töflu. Ég fíl­aði þetta ekki. Mér fannst ég eitt­hvað limp­ast niður. En einn vinur minn fíl­aði það. Hann hafði lært að nota róandi hjá mömmu sinni þannig að hann keypti af mér lyfja­boxið.

Athygl­is­spanið mitt voru bara tutt­ugu og sjö sek­úndur í mesta lagi. Þá var ég far­inn nema ég hefði sér­stakan áhuga á ein­hverju og þá var ég hel­tek­inn af því. „Obsessed.“ Og svo lærði ég seint og illa að lesa.“ Það hefur komið fram. „Ég gat aldrei lesið upp­hátt og ég var með ein­kunnir sem voru fyrir neðan frost­mark alla mína skóla­göngu. Í tossa­bekkj­unum. Ekki sam­þykktur og ég held að skóla­kerfið hafi rétt svo þraukað mig. Mín fjöl­skylda var aftur á móti mínir líkir á göt­unni. Þar átti ég heima, þar var ég sam­þykktur og þar hafði ég virð­ingu.

Svo klárað­ist þessi vetur þegar ég var fjórtán ára og ég var þessi greindi strákur sem var samt svo „stúpíd“. Ég held ég hafi verið með 0 í stærð­fræði. Ég held ég hafi ekki skorað neins staðar yfir 5. En ég hafði samt ágætt heyrn­ar­minni. Einn kenn­ar­inn las Íslands­klukk­una í íslensku­tímum og ég var alltaf mjög spenntur fyrir þeim tímum af því að hún las upp úr bók­inni. Og þar hélt ég fullri athygli. Þannig að ég gæti svo sem þulið svo­lítið Íslands­klukk­una.“

Hver er upp­á­halds­setn­ingin?

„Ég man alltaf eftir hringnum sem hann faldi á tánni. Hann flutti til Dan­merkur og átti að dæma hann og hann var með hring. Hann hafði sem sagt sett hring­inn á eina tána svo hann yrði ekki tek­inn af honum þegar hann yrði fluttur fanga­flutn­ingi til Dan­merkur. Ég man ekki hvað karakt­er­inn hét.“

Karakt­er­inn hét Jón Hregg­viðs­son og í þessu meist­ara­verki Nóbels­skáld­is­ins segir meðal ann­ars:

„Stattu upp, sagði stúlkan við fáng­ann. Og við varð­mann­inn: Farðu burt.

Hún var ein eftir hjá dauða­manni, dró af fín­gri sér gull­hríng­inn og fékk honum; það var ormur sem beit í sporð sér.

Komdu þér í duggu til Hollands, sagði hún. Farðu síðan til Kaup­in­hafn á fund Arnae Arnei vinar konúngs­ins og biddu hann að rétta hlut þinn vegna mín. Ef hann skyldi halda þú hafir stolið þessum hríng, þá ber þú honum kveðju frá því ljósa mani; frá álfa­kropp­inum mjóa; - þau orð hafa ekki farið víðar.“

Síðar í bók­inni hittir Jón Hregg­viðs­son Arnae Arnei.

„Hvað vilt þú mér Jón Hregg­viðs­son?

Þá laut Jón Hregg­viðs­son ífram og gerði sig lík­legan að fara úr öðru stíg­vél­inu.

Ertu votur í fót­inn? spurði Arnæus.

Nei, sagði Jón Hregg­viðs­son.

Hefurðu meitt þig? spurði Arnæus.

Nei, sagði Jón Hregg­viðs­son.

Fótur hans var vaf­inn í dulur inn­an­undir stíg­vél­inu og þegar hann hafði vafið þær utanaf kom í ljós að hann var með gull­hríng á einni tánni. Hann smeygðu hríngnum frammaf, strauk af honum á buxna­skálminni sinni og fékk Arnæusi.“

(Úr Íslands­klukk­unni eftir Halldór Laxness.)

Ofvirknin stjórn­aði miklu en það má eig­in­lega segja að Jón Hregg­viðs­son hafi haldið Mumma Tý á tánum á meðan kenn­ar­inn las þótt eng­inn hafi verið þar hring­ur­inn.

„Ég fór inn í full­orð­ins­árin með það alveg á hreinu að svarti sauð­ur­inn heldur brot­inni fjöl­skyldu saman. Það gætu allir sam­ein­ast um að allt sé honum að kenna því hann er alltaf í ves­eni. Og það gátu allir talað um svarta sauð­inn þó að öll fjöl­skyldan væri möl­brotin. Þannig að svartir sauðir í fjöl­skyldum bera rosa­lega mikla ábyrgð án þess að vita það.

Ég fór inn í full­orð­ins­árin með það alveg á hreinu að vera ekki sam­þykktur. Ég var með varn­ar­vegg í kringum mig - djó­kið, vera klár gaur og vita ýmis­legt og var kammó og sjar­mer­andi. Ég gat manípúlerað mig í gegnum erf­iðar aðstæður. Ég man eftir að hafa ósjaldan setið fyrir framan lög­reglu­mann sem var að taka af mér skýrslu af því að ég hafði fengið „lán­aðan“ bíl. Ég var bara fimmtán ára. Ég not­aði frasa eins og „ég skil ekki hvað kom yfir mig að haga mér svona“ og „ég á að vera með­vit­aður um það að ég er ekki með öku­rétt­indi“.“

Sjómaðurinn

Skóla­skyldan á þessum tíma var annar bekkur gaggó sem Mummi Týr segir að sam­svari átt­unda bekk í dag. Hann hafði kynnst nokkrum sjó­mönnum og þess vegna sótti hann fast að kom­ast á sjó­inn. Honum fannst sjó­menn vera töff og hold­gerv­ingur karl­mennsk­unnar.

Vorið þegar hann var fjórtán ára bauðst honum pláss á hálfum hlut á síðu­tog­ar­anum Maí frá Hafn­ar­firði og mætti hann um borð á fal­legum vor­degi. Hann segir að hann hafi verið lág­vax­inn og sein­þroska og með sítt hár.

Hann var á sjónum í ára­tug. Frá fjórtán til tutt­ugu og fjög­urra ára. Á alls konar skipum og bátum og sinnti alls konar störfum um borð, eld­aði, vann á dekki og í vél­ar­rúmi.

Á tíma­bili átti Mummi Týr hvergi heima ann­ars staðar en á því skipi sem hann var á hverju sinni.

„Í land­legum kom maður sér iðu­lega inn hjá ein­hverjum sem hafði eitt­hvað hús­næði og fékk að henda sér í sófann. En stundum hafði ég ekk­ert hús­næði. Móðir mín og stjúpi bjuggu á þessum árum í Berlín og Grikk­landi þannig að ég hafði ekk­ert bak­land. En ég átti stjúpömmu sem var gift afa mínum og stundum fékk ég að gista þar. Svo var þetta bara höslerí. Og ef þetta var djamm þá svaf maður bara í partí­inu þar sem það var haldið. Þetta líf hent­aði mér vel; ver­tíð, svo „frí“ - eða djamm - og svo aftur ver­tíð. Ég reyndi stundum vinnu í landi en end­aði alltaf aftur á sjónum.“

Fótbrotnaði illa

Þær eru margar sög­urnar af sjónum.

„Einu sinni, um sautján ára aldur, ráf­aði ég niður á bryggju þegar ég vissi að gamli síðu­tog­ar­inn Þormóður Goði var að fara úr höfn. Það vant­aði menn, skip­stjór­inn benti bara og ég var val­inn um borð. Þegar við vorum lagðir af stað tók ég eftir manni sof­andi á bekk í mat­salnum. Hann var í jakka­fötum og með bindi og pass­aði illa við rest­ina af áhöfn­inni. Enginn pældi þó í því fyrr en hann vakn­aði nokkrum klukku­stundum síðar. Þá kom í ljós að hann hafði verið á djammi með ein­hverjum úr skip­inu, sofnað og ein­fald­lega verið tal­inn með.

Hann reynd­ist vera fjöl­skyldu­maður í fullri vinnu ann­ars staðar. Ég gleymi aldrei ang­ist­inni í and­lit­inu á honum þegar hann fór upp í brú til að ná sam­bandi í gegnum Gufunes og láta vita af sér. Hann sagði lítið allan túr­inn.

Í sama túr fengum við brot. Ég var úti á dekki þegar það reið yfir. Menn flugu um eins og tuskur og ég sá báts­mann­inn kast­ast í loft­köstum og lenda undir tog­spil­inu. Það var hrein heppni að eng­inn fór í sjó­inn. Veðrið var snar­vit­laust og við vorum að ganga frá til að sigla í var.

Í mínum huga var báts­mað­ur­inn eld­gam­all en lík­lega hefur hann verið mið­aldra. Hann fót­brotn­aði illa og var dreg­inn öskr­andi af kvölum inn í mat­sal. Sjúkra­kass­inn var auð­vitað löngu tæmdur af verkja­lyfjum. Við skipt­umst á að halda fæt­inum kyrrum í óveðr­inu næstu klukku­tím­ana þar til við náðum landi og sjúkra­bíll tók við honum.

Ég man líka eftir loðnu­skipi þar sem við vorum að leggja nót­ina í miklum velt­ingi. Einn háseti fékk snurpu­hring í ennið og rot­að­ist. Engir hjálmar voru í boði. Hann reis upp, ringlaður og alblóð­ugur og með ljótan skurð á enn­inu. Skip­stjór­inn kom hlaup­andi með ein­hvers konar hefti­byssu, skellti sár­inu saman og svo var haldið áfram. Engin mis­kunn. Þetta varð svo bara enn ein sagan til að segja á næsta djammi.“

Mummi Týr var um tíma á varð­skip­inu Tý. Fyrsta sjó­ferðin hans með Tý var fyrsti túr skips­ins eftir að vinur hans var drep­inn um borð.

„Þetta var í öllum fjöl­miðlum. Hann var stung­inn og sá sem stakk hann henti sér í sjó­inn. Þetta er gam­alt saka­mál. Þetta var mjög skraut­legur túr að því leyt­inu til að mórall­inn um borð var nátt­úr­lega hrylli­legur. Maður hafði verið stung­inn og drep­inn og ein­hver geð­veiki í gangi. Vinur minn hafði reynt að stoppa gaur­inn með hníf­inn. Ég sem götu­barn var nátt­úr­lega búinn að vera í þessum heimi lengi en það sem hafði áhrif á mig var hvað það var vondur mórall um borð. Skilj­an­lega. Ég syrgði vin minn og var allt í einu kom­inn á stað­inn þar sem hann var drep­inn. Senni­lega hefur gengið illa að manna skipið þannig að ég fékk auð­veld­lega pláss eftir þetta atvik. Þetta var ekki góður túr.“

Vegabréfslaus

Ungi mað­ur­inn sigldi um heims­ins höf og kom á nýja staði þegar skipin lágu við bryggju. Þá fengu menn sér gjarnan í glas.

„Ég lenti í atviki í Gdansk eða Gynia í Póllandi. Þá var þetta aust­ur­blokkin. Ég fór á skrall með félög­unum og það var vopn­aður vörður við land­gang­inn á skip­inu og gadda­vírs­girð­ing utan um hafn­ar­svæðið. Tvær svo­leiðis með einskis­manns­landi á milli. Það þurfti að sýna vega­bréf og kvittun um að mega koma inn á svæðið og fara aftur um borð.

Ég var orð­inn leiður um kvöldið og ætl­aði að fara aftur um borð og tók leigu­bíl, ein­hvern Trabant eða hvað það var. Ég sá að leigu­bíl­stjór­inn var að snuða mig. Ég vissi alveg hvaða leið var niður á höfn en hann var að rúnta með mig. Ég reyndi að tala við hann og hann brást hinn versti við og það end­aði með stimp­ingum í bílnum, ég og leigu­bíl­stjór­inn.

Hann stopp­aði síðan bíl­inn og við vorum komnir út á götu og vorum að slást þegar herjeppi kom og út úr honum stigu fjórir fílefldir gaurar með loð­húfur og vél­byssur og mið­uðu þeim á okkur. Ég gat ekk­ert sagt en leigu­bíl­stjór­inn sak­aði mig greini­lega um allt saman þannig að ég var hirtur.

Ég var settur í aft­ur­sætið á ein­hverjum gömlum rússa­jeppa með tveimur gaurum með loð­húfur og vél­byssur. Þetta var eins og í bíó­mynd­unum. Það var ekið út úr borg­inni og þegar við vorum komnir aðeins út í sveit stopp­aði bíll­inn og ég hugs­aði með mér að nú yrði ég skot­inn og settur ofan í skurð.

Þeir tóku af mér úrið, vega­bréfið og veskið og bara allt saman og keyrðu í burtu og skildu mig eftir. Ég stóð úti í sveit í Póllandi og átti eftir að kom­ast á hafn­ar­svæðið. Þetta var í kringum mið­nætti en sem betur fer vissi ég sirka í hvaða átt ég átti að labba.

Eftir marga klukk­tíma var ég kom­inn að gadda­vírs­girð­ing­unni. Ég var ekki með vega­bréfið. Hvern djöf­ul­inn átti ég að gera? Ég klifraði þess vegna yfir girð­ing­una sem var um fjög­urra til fimm metra há með gadda­vír efst sem vís­aði á móti manni. Ég klifraði samt yfir hana. Ég lýg þessu ekki.

Og ég vissi að þeir löbbuðu þarna á milli girð­ing­anna og voru með hunda. Óðinn hefur verið vak­andi yfir mér og ég náði að klifra yfir án þess að stórslasa mig. Ég fór svo yfir hina girð­ing­una líka og komst inn á hafn­ar­svæðið óséður. Þetta er lyg­inni lík­ast en þetta gerð­ist.

Ég gekk niður að skip­inu og ætl­aði að fara um borð en það var vörður með vél­byssu við land­gang­inn á öllum erlendum skipum. Hann bað um vega­bréfið sem ég var ekki með og þá beindi hann byss­unni að mér.

Það vildi svo heppi­lega til að einn gaur úr áhöfn­inni var með sígar­ettu úti á dekki og sá mig og ég bað hann um að vekja skip­stjór­ann af því að það var búið að ræna mig og ég komst ekki um borð. Og það var rosa havarí. Það end­aði með því að það var hlaðið á gaur­inn nokkrum sígar­ettukartonum og tveimur bjór­kössum og á meðan hann labb­aði með það í burtu mátti ég labba um borð.

Þetta þýddi að ég gat ekk­ert farið í land aftur í Póllandi né í Rúss­landi sem var næsta stoppi­stöð. Svona var þetta allt saman. Skraut­legar sögur út og suður. En þetta gerð­ist í alvör­unni. Ég var hepp­inn að vera ekki skot­inn neins staðar.“

Mummi Týr seg­ist aldrei í þennan ára­tug hafa verið hræddur á sjónum. „Svo fór þetta á „auto“ - ég var búinn að gera þetta svo oft. Gaur­arnir sem voru með mér á þessum skipum voru alls konar týpur. Margir miklu sjó­aðri en nokkurn tím­ann ég. Og maður las á svipnum á þeim að þeir höfðu engar áhyggjur af þessu. En þeir sem voru í sínum fyrsta túr voru alveg hvítir og gulir.

Ég bar alltaf ofboðs­lega virð­ingu fyrir haf­inu og ég elskaði hafið, enda er ég krabbi, og það er geð­veikt á bjartri sum­arn­óttu að horfa á hafið þegar það er lygnt. Móðir nátt­úra er líka mis­kunn­ar­laus og það gekk á með alls konar veðrum. Veðrið skall bara á og maður var í lausu lofti í koju þegar skipið var að detta undan manni. Ég á margar svo­leiðis minn­ingar.

Stundum voru fiski­bát­arnir alveg á hlið­inni og þá labb­aði maður á veggj­unum í göng­unum. Svo skellti bát­ur­inn sér aftur hinum megin og þá flaug maður yfir í hinn vegg­inn.“

Offset-ljósmyndun

Mummi Týr fór í með­ferð á Sil­unga­poll og Sogn árið 1980 þegar hann var tví­tugur og drakk ekk­ert í þrjú ár eftir það. „Það var mikið þroska­stig sem ég tók þá. Þarna var ég á loðnu­skipi og í sam­búð með konu og það gekk ágæt­lega. En á end­anum drakk ég mig út úr því sam­bandi. Ég datt í það og var meira og minna á skrall­inu eftir það. Ég var inn og út úr með­ferðum; tvær til þrjár vikur í hvert skipti sem ég reyndi. Þetta gekk ekki neitt. Ég kunni orðið þessa með­ferð hjá SÁÁ utan að.“

Tuttugu og fjög­urra ára gam­all fór Mummi Týr í nám í off­set-ljós­myndun. „Ég var hættur á sjónum, nýbú­inn að klára loðnu­ver­tíð og ég hugs­aði með mér að mig lang­aði til að læra eitt­hvað gagn­legt og ég hef alltaf verið með ljós­mynda­dellu. Ég var líka með bíó­d­ellu og ætl­aði alltaf að verða kvik­mynda­gerð­ar­maður en á þessum tíma var það fjar­lægur draumur.

„Ég kunni orðið þessa með­ferð hjá SÁÁ utan að.“

Ég fór í gegnum þetta off­set-nám og af því að ég hafði ein­lægan áhuga á því þá gat ég hlustað og með­tekið efnið. Ég hef aldrei getað lært undir próf en samt náði ég öllum prófum. Ég rúll­aði verk­legu próf­unum upp en í bók­legu tímunum ein­beitti ég mér að því að hlusta. Nokkrum árum seinna fór ég í kvik­mynda­nám í Suður-Afríku og var verð­laun­aður í skól­anum. Það var vegna þess að ég hafði brenn­andi áhuga og ég hlust­aði og hlust­aði og hlust­aði. Þannig lærði ég. Hins vegar tók mig oft þrisvar sinnum lengri tíma en aðra nem­endur að skrifa hand­rit og rit­gerðir um leik­stjóra.“

Amfetamín

Svo var það eitt­hvað meira en drykkjan.

„Á árunum fyrir tví­tugt upp­götv­aði ég amfetamín. Þá var ég búinn að drekka svo mikið og oft að áfengi var hætt að virka eins og áður. Ég var far­inn að lenda í slags­málum, götu­slags­málum, og jafn­vel í átökum við lög­reglu. Alls konar eitt­hvað vesen. En þegar amfetamínið kom opn­uð­ust himn­arnir allt í einu aftur. Það skipti engu hvað ég drakk - ég var glað­vak­andi, alveg skýr í hausnum og fannst ég vera með þetta á hreinu. Eftir að ég fór að taka amfetamín gátu partíin staðið yfir í tvo til þrjá sól­ar­hringa án þess að maður svæfi. Þá var maður orð­inn ansi skraut­legur.“

Mummi Týr seg­ist hafa róast niður þegar hann tók amfetamín sem hann tengir við ADHD-grein­ingu sína, enda séu örvandi efni skyld þeim sem notuð eru í ofvirkni­lyfjum. „Ég varð fók­user­aðri og náði að halda uppi sam­skiptum. Stundum þegar ég tók amfetamín steinsofn­aði ég meira að segja því efnið vann ein­hvern veg­inn á móti þessu innra brjál­æði. Ég var ekki ofvirkur í hreyf­ingum; ég var ekki upp um gard­ínur. En ég var með gjör­sam­lega ofvirkan haus. En svo lærir maður að lifa með þessu og tækla þetta. Þú heyrir í þessu við­tali hvað ég held þræði illa,“ segir Mummi Týr og á við að hann vaði gjarnan úr einu í annað.

„Ég mis­not­aði ein­fald­lega vímu­gjafa af því að mér leið svo ömur­lega illa að ég varð að deyfa sárs­auk­ann. Eina leiðin fyrir mig til að lifa með sjálfum mér var að sitja ekki uppi með allan sárs­auk­ann sem fylgdi því að vera mis­notað barn og koma af erf­iðu æsku­heim­ili. Þannig að ég not­aði vímu­gjafa þegar ég var alveg að fríka út á sjálfum mér. Ég varð ekki úti­gangs­maður og ég fún­ker­aði að mestu leyti en það var ekk­ert hægt að stóla á mig. Partíin gátu staðið í nokkra daga. Þess vegna hent­aði sjó­manns­lífið mér svo vel.“

Slefaði í handklæði

„Ég fór mörgum sinnum inn á ein­hverjar stofn­anir. Ég fór inn á geð­deild. Mér var skutlað þar inn og það er ein fyndn­asta með­ferð­ar­saga „ever“ í sög­unni sem ég lenti í; sérðu nú er ég kom­inn í allt aðra átt,“ segir Mummi Týr og á aftur við að vaða úr einu í annað út af ADHD.

Svo segir hann sög­una.

„Ég flutti í 101 þegar ég var fimmtán ára og mínir líkar söfn­uð­ust saman í mið­bænum þar sem var elsta og ódýrasta hús­næðið og svo voru þar nátt­úr­lega veit­inga­staðir. Það voru ekki barir eins og er í dag. Þannig að þetta gerð­ist allt innan 101. Ég var orð­inn 24 ára og aftur kom­inn á kaf í djam­mið. Einn vinur minn kom í óvænta heim­sókn þar sem ég bjó, ég man ekki eftir því en mér var í kjöl­farið ýtt inn um dyrnar á geð­deild.“

Mummi segir að á þessum tíma hafi hann verið ringlaður og átt erfitt með að átta sig á aðstæðum sínum. Hann hafi þá kom­ist í við­tal hjá geð­lækni sem hann man aðeins óljóst eftir. Samkvæmt Mumma sagði lækn­ir­inn honum frá nýrri til­rauna­með­ferð sem væri að hefj­ast fyrir fólk í svip­aðri stöðu og hann. Hann segir að lítið hafi verið spurt út í eigin sögu en þess í stað hafi áherslan verið lögð á með­ferð­ina sjálfa. Honum hafi verið boðin þátt­taka með því skil­yrði að mæta dag­lega á virkum dögum á geð­deild til að sækja lyf. Þar sem honum fannst hann engu hafa að tapa ákvað hann að slá til og taka þátt.

„Ég fór heim með töflur í poka sem ég átti að taka þrisvar yfir dag­inn. Það næsta sem ég vissi eftir að ég tók töflu var að ég sat og horfði á stilli­mynd­ina í sjón­varp­inu og slef­andi í hand­klæði af því að ég gat ekki kyngt. Daginn eftir gerð­ist það sama,“ segir Mummi Týr og bætir við að á þessum árum hafi ekki verið nein sjón­varps­dag­skrá á dag­inn.

Hann hlær.

„Svo liðu fjórir dagar í þess­ari með­ferð. Á fimmtu­deg­inum kom ein­hver félagi minn af sjónum og þá skutl­aði ég í djamm; ég fór nátt­úr­lega í djam­mið. Ég mætti þess vegna ekki á föstu­deg­inum að ná í lyfin af því að ég var upp­tek­inn í öðru.

Ég fór svo á mánu­deg­inum og þá rak geð­lækn­ir­inn mig úr með­ferð­inni þar sem ég hafði ekki mætt á föstu­deg­inum að sækja lyfin.“

Mummi Týr hlær.

„Mér var kannski boðið að taka þátt þar sem þeir hafa séð kol­geð­veikan ein­stak­ling og fíkil eða ég hrein­lega veit það ekki. En ég var kaf­dóp­aður í fjóra daga. Eins dóp­aður og ég gat verið. Ég var næstum því ósjálf­bjarga og gat ekki kyngt þannig að ég þurfti allaf að slefa í hand­klæði. Ég væri örugg­lega ennþá inni á geð­deild ef ég hefði ekki verið rek­inn úr með­ferð­inni.“ Hann hlær. „Pældu í þessu. Við erum að tala um 1980 og eitt­hvað.“

Lífið gekk sinn vana­gang. Drykkja og dóp.

Og tím­inn leið með reglu­legum inn­lögnum á með­ferð­ar­heim­ili á milli alls tryll­ings­ins.

Hvað var það versta sem Mummi Týr upp­lifði á þessum tíma? „Það versta? Þegar maður er búinn að lenda í áföllum frá barn­æsku þá er maður kom­inn með ofboðs­lega háan þrösk­uld. Eitt áfall í við­bót var ekk­ert „big deal“. Það var ekk­ert „big deal“ að fara þrjár veltur út fyrir veg. Það var ekk­ert „big deal“ að lenda í slags­málum þar sem ein­hver var hand­leggs­brot­inn.

Þrösk­uld­ur­inn hækk­aði og maður varð dof­inn. Ekkert af þessu var í raun­inni verst. Þetta var mónatónískur lífs­stíll. Það gerð­ust ljótir hlutir og nátt­úr­lega líkur sækir líkan heim. Ég var alltaf í félags­skap með mínum líkum þannig að það voru víðs vegar mjög skrýtnar upp­á­komur.“

Amfetamín var auð­heyri­lega aðal­efnið. „Ég not­aði svo­lítið róandi lyf til að koma mér niður. Þetta voru skelfi­legir nið­ur­túrar þegar maður var búinn að nota amfetamín í tvo til þrjá daga og drekka mikið. Það var alveg skelfi­legt að lenda í því. Þá var ofsa gott að eiga Diazepan eða eitt­hvað Benzo. Þannig að maður átti alltaf eitt­hvað smá af því. Ég fíl­aði ekki áhrifin af því en það tók mesta brodd­inn af skjálft­anum og þynn­kunni og ég svaf betur.“

Bragðið af byssuhlaupinu

Hann var með sjálfs­morðs­hugs­anir frá ung­lings­árum sem fylgdu honum inn í full­orð­is­árin. Hann segir frá atviki því tengdu.

„Ég var með hagla­byssu inni í ein­hverju her­bergi sem ég leigði og ég man ennþá bragðið af byssu­hlaup­inu. Mér fannst alltaf eitt­hvað meira bíða mín heldur en að hverfa. Þó það væri engin eft­ir­spurn eftir mér þá trúði ég því ekki að þetta gæti endað svona. Þannig að mínar til­raunir til sjálfs­vígs voru algjör­lega í ein­rúmi og ég tal­aði aldrei um þær. Svo byrj­uðu vin­irnir að deyja af slys­förum og ofskammti og jarð­ar­för­unum fór að fjölga og ég fyllt­ist alltaf af sorg af því að þetta gat verið ég líka.“

Jú, hann man ennþá bragðið af hlaup­inu af hagla­byss­unni. Hvað stopp­aði hann í að taka í gikk­inn? Enda þetta? Drepa sjálfan sig?

„Það var eitt­hvað „moment of clarity“. Fyrst hugs­aði ég að aðkoman yrði hræði­leg. Þetta var hagla­byssa þannig að haus­inn yrði á veggnum fyrir aftan rúmið mitt. Það var fyrsta með­vit­aða hugs­unin. Svo hugs­aði ég að það hlyti að vera eitt­hvað stærra í þessu lífi heldur en þetta.“

Hvað er dauð­inn í huga Mumma Týs?

„Ég er svo mik­ill spírít­isti. Ég veit að það er eitt­hvað stærra af alheims­vit­und­inni heldur en holdið og þetta skrif­borð sem ég sit við og eitt­hvert tölvu­drasl.“

Mummi segir að ótti við dauð­ann sé eðl­is­læg við­brögð manns­ins og hluti af sjálfs­bjarg­ar­hvöt­inni. Sjálfur hafi hann þó aldrei litið á dauð­ann sem enda­punkt heldur frekar sem upp­haf að ein­hverju nýju. Sú sann­fær­ing bygg­ist ekki á áþreif­an­legum sönn­unum heldur á eigin til­finn­ingu og lífs­reynslu. Að hans mati sé til­veran stærri og dýpri en það sem sjá­ist á yfir­borð­inu og hann lýsir þeirri trú með hug­tak­inu „ljósið“. Hann seg­ist því vera sann­færður um að dauð­inn marki upp­haf nýs ferða­lags fremur en enda­lok.

„Ég hef nokkrum sinnum veikst mjög illa og sam­kvæmt öllum lík­indum hefði ég átt að vera dauður mörgum sinnum út af aðstæð­unum sem ég var kom­inn í og félagar mínir voru að deyja lengi vel. Gamlir fíklar. Einhvern veg­inn náði ég þessum aldri.

Eins og ég sagði er dauð­inn upp­haf að nýju ferða­lagi og ég held að það sé miklu erf­ið­ara fyrir aðstand­endur heldur en þann sem deyr. Þannig að dauð­inn hræðir mig ekki. Hann er ekki ógn­vekj­andi. Það er jafn­heil­brigt að deyja eins og að fæð­ast. Ég hef grúskað mjög mikið í þessum and­legu málum og séð hluti og skynjað hluti og það hefur verið fullt af skrýtnum upp­á­komum í mínu lífi þar sem ég hef stundum haldið að ég væri að missa það.“

Mummi seg­ist sann­færður um að annað ferða­lag taki við eftir dauð­ann. Hann vísar meðal ann­ars til þess að tveir miðlar, sem hafi ekki þekkst og rætt við hann við ólík tæki­færi, hafi hvor um sig sagt honum að hann hefði verið óheið­ar­legur í fyrri lífum. Að hans sögn styrkti það enn frekar þá trú hans að til­veran nái út fyrir eitt líf og að eitt­hvað taki við að því loknu.

„Ég var sem sagt bull­andi óheið­ar­legur og ég hik­aði ekki við að fjar­lægja fólk ef það var fyrir áformum mínum en ég var alltaf rosa­lega smart í tauinu. Og í þess­ari jarð­vist er ég að læra heið­ar­leika og ég er senni­lega heið­ar­leg­asti maður sem ég veit um. Þá er ég ekki að meina að ég sé ekki að stela veskjum heldur á ég við að ég sé ein af til­finn­inga­lega heið­ar­leg­ustu mann­eskjum sem ég veit um af því að ég er sannur hver ég er. Ég er ekk­ert að sýna dúdda í íbúð­inni við hlið­ina aðra hlið heldur en ég sýni kon­unni minni. Ég verð að vera sannur af því að mig langar ekki að koma aftur og þurfa að labba þessa leið aftur. Þannig að dauð­inn fyrir mér er ekki enda­lok heldur upp­haf að ein­hverju öðru.“

Coco Chanel-ilmur

Mummi Týr sagð­ist vera næmur. Hvað skynjar hann?

„Úff. Það er svo margt. Ég var alltaf ofboðs­lega myrk­fæl­inn. Alveg rosa­lega myrk­fæl­inn,“ segir hann með áherslu.

„Ég er ofboðs­lega fljótur að lesa aðstæður og fólk. Aðstæður í híbýlum. Ég hef komið inn í hús­næði um ævina þar sem ég gat ekki verið. Þar var svo erfið, vond og grimm orka. Ég hef keypt og selt íbúðir og ég hef tekið u-beygjur út úr húsum sem ég bara gat ekki verið inni í. Ég held við höfum þetta öll í okkur. Við erum bara búin að rækta þetta svo­lítið úr okkur.

Það er oft þannig að ég skynja ef ein­hver er í kringum mig. Ég finn og ég lít við; ég fæ oft til­finn­ingu að ein­hver sé fyrir aftan mig. Oft er það lykt.

Stundum geng ég inn gang­inn hérna heima og inn í ský af Coco Chanel-ilm­vatni. Mamma not­aði það alltaf.

Pabbar okkar hjón­anna eru dánir og þeir voru stór­reyk­inga­menn. Það hefur stundum komið fyrir að ég spyr kon­una mína hvort hún hafi verið að reykja. Hún reykir ekki. Þá verður and­rúms­loftið svo mettað eins og búið sé að reykja lengi í ein­hverju her­bergi. Ég finn líka fyrir nær­veru. Ég veit bara ekki hvor þeirra það er. Ég veit að það er ann­að­hvort pabbi hennar eða pabbi minn.

Ég lá einu sinni uppi í rúmi og fann að ein­hver sett­ist á það og hélt að það væri sonur minn og fór að tala við hann. Þar var hins vegar eng­inn þegar ég sneri mér við en dýnan lyft­ist eins og þegar mann­eskja fer fram úr rúmi.

Þetta eru svona hlutir. Ég hélt einu sinni að fyrr­ver­andi eig­in­kona mín væri að fífl­ast í mér og hvísla í eyrað á mér. En það var eng­inn annar þarna.

Það kemur mjög oft fyrir að ég nefni eitt­hvað við kon­una mína og hún fer að tala um það sama næstum því sam­tímis. Eins og sam­tengt. Þess vegna veit ég að þetta er allt miklu stærra. „This is all meant to be.“

Ég þurfti að ganga í gegnum þetta allt. Það var engin styttri leið en ég var alltaf að reyna að finna styttri leiðir.

Ég ber ábyrgð á mér. Ég ber ábyrgð á orðum mínum og hegðun minni. Ég get aldrei gert aðra ábyrga fyrir mér. Ég á mjög auð­velt með að biðj­ast fyr­ir­gefn­ingar ef ég fer „out of line“. Þannig að til dæmis ef við hjónin erum ósátt þá vil ég að við tölum saman og gerum það af virð­ingu fyrir hvort öðru í stað þess að vilja labba út úr aðstæðum og láta mig hverfa eins og ég gerði allan fyrri hluta ævinnar. Ef eitt­hvað var óþægi­legt þá fór ég bara.

Þannig að ég hef lært að taka ábyrgð á sjálfum mér.“

Í enn eina fokking meðferðina

Þrátt fyrir að hafa verið undir áhrifum fíkni­efna vildi hann meira út úr líf­inu og fór í jan­úar árið 1988 í kvik­mynda­nám í Suður-Afríku, eins og þegar hefur verið minnst á, en kom gagn­gert heim um jólin til að fara í með­ferð.

„Ég vissi að ég var að klúðra nám­inu út af drykkju og vímu­efnum en ég ætl­aði alls ekki að klúðra því. Mér gekk ágæt­lega fyrstu vik­urnar en ég var far­inn að slugsa og kenn­ar­arnir farnir að taka eftir því. Það voru bara tólf nem­endur teknir inn á ári. Ég fór inn á Vog og var þar í um viku og svo beint upp í flug­vél og aftur til Afríku og kláraði árið. Ég hélt mér alveg frá vímu­gjöfum allt næsta ár og kláraði námið með stæl í des­em­ber árið 1989.

Ég kom svo heim til Íslands sem ég ætl­aði ekki að gera. Ég ætl­aði að fara til London en þá átti ég orðið tvo stráka á Íslandi og skuld­aði alveg hell­ing í náms­lán og ein­hverja skatta. Þannig að ég fór heim og ætl­aði að fara að vinna.

Ég var edrú í tvo til þrjá mán­uði en datt svo í það og síðan er bara alveg kap­ít­uli eftir það. Ég stofn­aði kvik­mynda­fyr­ir­tæki og gerði góða hluti. Þetta er svo rosa­lega löng saga. Hún er svo skraut­leg.

Árið 1992 eða 1993 gerð­ist atvik sem ég tók nærri mér. Það var partí heima hjá mér og einn bróðir minn var í partí­inu. Þarna var ég far­inn að nota amfetamín alveg á fullu aftur, drakk og reyndi að stunda ein­hverja vinnu sem kvik­mynda­gerð­ar­maður. Nema hvað að okkur bræðr­unum lenti svona illa saman.“

Mummi segir að ástandið hafi náð hámarki þegar hann og bróðir hans lentu í hörðum slags­málum. Á þeim tíma hafi hann glímt við sjálfs­vígs­hugs­anir og dag­inn eftir hafi hann staðið frammi fyrir erf­iðri ákvörðun um fram­tíð sína. Honum hafi reynst afar þung­bært að hafa gengið svo langt að slást við bróður sinn, sem hann seg­ist elska mjög mikið. Eftir atvikið hafi hann fundið að hann stæði á kross­götum; ann­að­hvort gæf­ist hann upp eða leit­aði sér enn á ný hjálpar og færi í með­ferð.

„Eitthvað inni í mér sagði mér að fara í með­ferð. Og ég fór enn eina ferð­ina á með­ferð­ar­heim­ili og var búinn að vera þar í nokkra daga þegar einn ráð­gjaf­inn kom til mín og sagði að ég væri ekki að taka neinni leið­sögn og ekki gera neitt í þess­ari með­ferð og hann rak mig úr henni.

Ég labb­aði út og hugs­aði með mér að ég ætl­aði bara að sýna þeim það.

Og ég er búinn að vera edrú í þrjá­tíu og þrjú ár. Ég er búinn að vera blá­edrú og til friðs öll þau ár síðan.“

Hvers vegna getur fólk allt í einu hætt að drekka og dópa?

„Ég held að á ein­hverjum stað sé hugs­unin „slow suicide“ alltaf ofar­lega í huga fíkla; að þeir skipti ekki máli. Það skipti ekki máli hvort þeir lifi eða deyi.

Og þeir sem þora ekki eða hafa ekki kjark til að horfast í augu við hverjir þeir eru, eru inn og út af með­ferð­ar­stofn­unum. Svo bara deyja þeir.

Það þarf kjark til að horfa í spegil og hugsa hver maður er, hvernig maður er búinn að haga sér, hvað maður hefur gert og hvað maður er búinn að gera fólk­inu sínu. Sumir öðl­ast aldrei þennan kjark en sumir verða nógu hræddir til að gera það.

Ef ég færi að mis­nota vín í dag myndi ég hugsa með mér hvern djöf­ul­inn ég væri búinn að vera að gera síð­ast­liðin þrjá­tíu ár. Hvort ég hefði ekk­ert náð að vinna með mína brotnu sjálfs­mynd allan þennan tíma Áfengi myndi ekki næra mig eins og það gerði þegar ég var með allt í skralli í lífi mínu. Ég fengi ekk­ert út úr því.

Ég hef verið svæfður inni á spít­ala og fengið dóp inni á spít­ala en það var ekk­ert þannig að ég dytti bara í það. Ég upp­lifði fíkn­ina aldrei sem sjúk­dóm heldur deyf­ingu á innri sárs­auka. Þegar ég var fík­ill fannst mér það drauma­á­stand að vera ekki við stjórn á eigin lífi en eftir að ég varð edrú er það að vera við stjórn á eigin lífi ein af bestu útkom­unum.

Ég náði alltaf ein­hvern veg­inn að fún­kera í gegnum ruglið en ég sat alltaf uppi með sjálfan mig. Ég gat aldrei yfir­gefið sjálfan mig nema þegar ég var undir áhrifum vímu­efna. Þá gat ég andað ofan í maga og varð ein­hvers virði fyrir sjálfum mér því ég var svo óunn­inn ein­stak­lingur.“

Götusmiðjan

Margir tengja Mumma Tý við Götu­smiðj­una þar sem hann var for­stöðu­maður um ára­bil. Hann segir að hann hafi aldrei ætlað að reka með­ferð­ar­stofnun. Það var aldrei planið.

„Þegar ég útskrif­að­ist úr kvik­mynda­gerð­ar­nám­inu var nú ekki mikið að ger­ast í kvik­mynda­gerð á Íslandi og það voru tvær sjón­varps­stöðvar. Ég var í máln­ing­ar­vinnu og alls konar öðrum til­fallandi störfum sam­hliða. Þetta var ekk­ert „sure thing“ með neitt af þessu.

Svo gerði ég árið 1990 heim­ilda­mynd um götu­börn á Íslandi sem var sýnd á RUV. Myndin hét Utan­garð­sung­lingar og var um ungt fólk sem bjó á göt­unni í Reykja­vík. Í þá daga trúði eng­inn að það væri þannig í Reykja­vík. Íslend­ingar hafa verið í svo mik­illi afneitun með að við eigum fólk sem er að berj­ast fyrir lífi sínu.

Og þar kvikn­aði svo­lítið þessi áhugi á þessum krökkum og ver­andi sjálfur þessi krakki. Ég var utan­garðs­barn alla tíð þannig að ég flækt­ist ein­hvern veg­inn ósjálfrátt inn í þennan heim.

Planið var að vinna Óskarinn. Verða leik­stjóri og taka Óskarinn. Það var lang­tíma­mark­mið. En lífið tók mig í aðra átt sem var bara frá­bært.

Ég tal­aði nátt­úr­lega tungu­mál þess­ara krakka. Ég var einn af þeim. Þannig að ég átti alltaf mjög auð­velt með að nálg­ast krakka og ung­linga - þá var sjálf­ræð­is­ald­ur­inn sextán ára. Það var ekk­ert kerfi eða örygg­is­net sem tók utan um þau.“

Ævin­týrið var hafið - og var þáver­andi eig­in­kona Mumma með í þessu ævin­týri fyrstu árin.

„Þetta byrj­aði eig­in­lega með Mót­or­smiðj­unni. Ég fór að kenna kvik­mynda­gerð í ein­hverjum hópum í félags­mið­stöð og þá fór ég allt í einu að taka eftir mínum líkum þar. Við finnum auð­veld­lega hvert annað. Og þannig má segja að þetta hafi byrjað.

Ég stofn­aði stráka­grúbbu í kringum ein­elt­is­stráka og þetta yfir­tók líf mitt. Þá tók Mót­or­smiðjan við og ég var þar í tvö ár. Svo tóku Mót­or­sendlar við þar sem ég var að búa til atvinnu­úr­ræði fyrir þessa krakka - þeir skutl­uð­ust með pakka á skell­inöðrum út um allan bæ.

Þetta var allt svo nýtt fyrir öllum og það vissi eng­inn hvar ætti að lenda þessu þó þetta hafi verið þekkt alls staðar í öllum borgum heims­ins meira og minna.

Það kom í ljós að hluti af þessum krökkum sem voru að send­ast á skell­inöðrum bjó bara á göt­unni. Ég kom heim einn dag­inn og sagði við þáver­andi eig­in­konu mína að við yrðum að gera eitt­hvað fyrir þau - sjálf. Og við réð­umst í átak til að stofna neyð­ar­at­hvarf á göt­unni. Ég man að nafnið Götu­smiðjan kom til bara út af síma­við­tali á ein­hverri útvarps­stöð sem hafði frétt af þessu og var að for­vitn­ast um þetta. Það var spurt hvað úrræðið héti og ég sagði Götu­smiðjan. Þannig varð nú nafnið til sem er svo­lítið sim­ból­ískt - að búa til götu, leið fram á við, fyrir götu­krakka.

Við rákum þetta í ein­hverja mán­uði og það var mikið sótt og kom mikið af krökkum sem voru á þessu gráa og svarta svæði. En kerfið var ekki til í að sam­þykkja þetta. Við vorum að hjálpa þessum krökkum inn í með­ferð­ar­úr­ræði sem þá voru - þá var það bara SÁÁ og það voru engin með­ferð­ar­rúr­ræði í boði fyrir þessa krakka. Þá þró­að­ist það yfir í það að við ákváðum að gera úr þessu „fullblown“ með­ferð­ar­heim­ili - Götu­smiðj­una. Við áttum engan pen­ing, vorum með eina land­línu og lögðum bara af stað í að búa til með­ferð­ar­úr­ræði.

Til að gera langa sögu stutta þá börð­umst við í áraraðir fyrir þessu og ég var alltaf óþægi­legur þyrnir í síðu emb­ætt­is­manna­kerf­is­ins; síð­hærður, tattú­ver­aður, á mót­or­hjóli og ómennt­aður í þessu. Þannig að kerfið vissi aldrei almenni­lega hvar það átti að lenda mér í allri þess­ari umræðu.“

Því harðari skrápur því mýkra hjarta

Eins og þegar hefur komið fram ólst Mummi Týr upp í brot­inni fjöl­skyldu. Sem lít­ill ofvirkur, les­blindur og ofur­við­kvæmur strákur var hann sendur til geð­læknis níu ára gam­all en miðað við upp­lifun hans var fátt raun­veru­lega gert til að hjálpa þessum litla strák að fóta sig í líf­inu.

„Ég smíð­aði með­ferð­ar­form svo­lítið út frá því hvað hefði virkað fyrir Mumma sem barn og ung­ling á sínum tíma þannig að ég hefði ekki þurft að fara inn í full­orð­insár möl­brot­inn ein­stak­lingur á kafi í fíkni­efnum. Það er grunn­hug­mynda­fræðin. Þannig að ég var alltaf að bjarga sjálfum mér í þessu og lagði líf og sál í þetta til að halda þessu úti. Það var ekki auð­velt. Við þurftum að vera með fólk í vinnu og svo fengum við þjón­ustu­samn­ing við ríkið upp á ein­hverjar fjórar millj­ónir en úrræðið kost­aði þrjá­tíu millj­ónir þá.

Og ég var alltaf í ein­hverjum fjár­öfl­unum, var að selja geisla­diska og biðja Bubba um að spila eða ein­hverja popp­ara og aðra tón­list­ar­menn. Ég var rellandi í öllum í sam­fé­lag­inu að hjálpa mér að búa til pen­ing til að halda þessu úti. Og þannig gekk þetta í áraraðir. Svo hækk­aði þjón­ustu­samn­ing­ur­inn með tím­anum.

Skila­boðin til mín voru alltaf að sýna hvað ég gæti og svo yrði komið að þessu. En það kom aldrei neinn að þessu. Það var alveg sama hvað við sýndum og hvað við gátum.

Smám saman óx þessu ásmegin og þegar upp var staðið árið 2010 þegar ég varð fyrir mjög alvar­legri vald­níðslu voru hátt í þrjú þús­und ung­menni búin að fara í gegnum Götu­smiðj­una á einn eða annan máta. Á sama tíma var mér sagt að það væri engin þörf fyrir þetta.

Í dag er búið að loka öllum þessum úrræðum sem var búið að setja á lagg­irnar og ég full­yrði að við erum aftur komin til árs­ins 1990 þegar allt var í úrræða­leysi.

Að reka með­ferð­ar­stofnun fyrir ungt fólk er ekki gert með því að halda fræði­lega fyr­ir­lestra; það þarf að vinna með því. Það þarf að vera með aðstöðu, tón­list­arsmiðjur, hesta eða mót­or­hjól. Það þarf að vinna með því í gegnum hug­ar­heim fólks­ins til að ná sam­bandi við það. En það er ekki gert með því að standa í pontu og halda fyr­ir­lestur um genetíska sjúk­dóma. Og ég er einn af þeim sem hafa aldrei viljað við­ur­kenna alkó­hól­isma eða fíkn sem sjúk­dóm.

Það er svo stutt í sorg okkar fíklanna og ef við finnum ein­hvern sem við treystum þá opnum við fyrir þennan part. Og þetta skiptir svo miklu máli í öllu með­ferð­ar­starfi - að það séu ein­stak­lingar sem kunna að fara með þetta. Og maður lærir þetta ekki af bók. Maður lærir þetta í líf­inu.

Því harð­ari skrápur því mýkra hjarta.

Og þessir krakkar sem voru að koma til mín með gadda­ól­arnar, tattúin og „fuck you attítúdið“ voru að deyja úr sárs­auka.

Þerapía þarf alltaf að fara í gegnum til­finn­inga­flór­una, ekki haus­inn. Og þetta skildi aldrei kerf­isliðið hvað við vorum að gera í Götu­smiðj­unni. Við töl­uðum aldrei um dóp eða áfengi. Við vorum ekk­ert að tala um það heldur hver þú ert með þér.

„Það er svo stutt í sorg okkar fíklanna.“

Málið er að stór hluti af þessum krökkum sem voru að koma í Götu­smiðj­una voru ekki fíklar en þau voru í róm­an­tísku ást­ar­sam­bandi við þennan heim. Þau voru kannski ekki búin að nota vímu­efni lengi en voru samt komin inn í þennan heim og farin að nær­ast þar.

Og það er svo svart­hvítt að segja edrú ekki edrú. Sumir af þessum krökkum urðu full­orðnir og skála örugg­lega í kampa­víni með sinni fjöl­skyldu á gamlárs­kvöld en eru ekki að mis­nota. Síðasta könnun sem var gerð í tengslum við Götu­smiðj­una er síðan 2010 og kom í ljós að 50% af þeim sem höfðu verið í Götu­smiðj­unni gekk vel í líf­inu.“

En ég er ekki hommi

Þetta voru götu­krakkar. Krakkar í dópi. Krakkar sem voru að deyja úr sárs­auka. Hvað áttu þeir fleira sam­eig­in­legt?

„Þau áttu nátt­úr­lega sam­eig­in­lega yfir­drifna skömm. Skömmin var algjör. Sjálfs­virð­ingin var núll. Þau áttu ekk­ert gott skilið. Hvort þau seldu lík­ama sinn skipti þau engu máli. Þau voru öll reið.

Það eru ekk­ert bara stelpur sem selja sig. Á löngu tíma­bili í Götu­smiðj­unni voru fleiri strákar sem seldu sig heldur en stelpur. En það er aldrei talað um strák­ana sem selja sig en það er sami sárs­auk­inn og sami við­bjóð­ur­inn en strák­arnir loka algjör­lega á þetta og bara kyngja þessu. Við fengum þá til að tala um þetta en þá kom alltaf setn­ingin: „En ég er ekki hommi.“

Árið 1999 hafði 50% af hópnum sem var í með­ferð í Götu­smiðj­unni verið mis­notuð kyn­ferð­is­lega. Í kringum 2008 voru þetta 100%.“

Mummi segir að margir þeirra sem voru í með­ferð hafi átt að baki erf­iða reynslu tengda kyn­ferð­is­of­beldi eða mis­notkun. Hann bendir á að slíkar aðstæður geti einnig falist í kyn­ferð­is­legum athöfnum sem virð­ast byggj­ast á sam­þykki en séu í raun undir áhrifum valda­ó­jafn­vægis, fjár­hags­legrar nauð­synjar eða vímu­efna­neyslu. Að hans sögn skap­aði þetta stundum flóknar aðstæður innan með­ferð­ar­innar, meðal ann­ars þegar ein­stak­lingar sem tengd­ust sömu málum komu þangað. Í slíkum til­vikum hafi þurft að haga skipu­lagi þannig að annar aðil­inn biði þar til hinn hefði lokið sinni með­ferð.

„Ég reyndi að fá stjórn­völd til að fatta það að ég þurfti að kyn­skipta með­ferð­inni. Það gengur ekki að vera með bæði kyn eða öll kyn af því að maður lemur ekki nátt­úr­una með lurki.

Og þau voru að skjóta sér saman og þar af leið­andi var ég búinn að missa kontakt af því að þau voru orðin upp­tekin af hvort öðru. Oft gerð­ist það að þau héldu sam­bandi eftir með­ferð sem fór beint ofan í skurð og urðu jafn­vel til börn úr því. Þannig að með­ferð­ar­starf með ungu fólki verður að vera kyn­skipt.

Gald­ur­inn var að þjálfa fólk og láta það þora að tengj­ast skjól­stæð­ingum; ekki þessi fag­legu mörk heldu „vertu með þeim“. Ég neit­aði alltaf að vera með starfs­manna­mat­sal. Við borð­uðum með þeim. Þetta var þeirra heim­ili og við gengum um þeirra heim­ili af virð­ingu.

Og við köll­uðum krakk­ana „nem­endur“. Ekki „skjól­stæð­inga“ eða „sjúk­linga“. Það fólst meiri virð­ing í orð­inu „nem­andi“.

Ann­að­hvort hafði starfs­fólk þetta í sér eða ekki. Það þurfti að vera mjög skýrt varð­andi mörk og kunna og vita hvar mörkin voru því að þessir krakkar eru „master man­ipulerar“ - þau kunna að fara að gráta á réttum stað og þau geta spunnið rosa­lega góða lyga­sögu þannig að ef starfs­maður er ofsa­lega með­virkur ein­stak­lingur þá er hann áður en hann veit af búinn að gefa nem­anda bíl­inn sinn.

Það var mitt hlut­verk sem for­stöðu­maður að „mónitora“ - að við nálg­uð­umst þessa krakka út frá þeim stað sem þau voru á. Ekki sem við vorum á. Ef ein­hver kom inn með grænt hár þá var það bara töff. Það mátti alveg vera með grænt hár.

Við höfn­uðum þeim aldrei en við höfn­uðum kannski ein­hverju sem þau gerðu. Þetta voru sam­skipti og þetta var „never end­ing story“. Sá sem var lengst hjá okkur í Götu­smiðj­unni var í fjögur ár og var orð­inn hálf­gerður starfs­maður.“

Sakaður um þjófnað

Mummi Týr var for­stöðu­maður Götu­smiðj­unnar frá 1997-2010. Sautján manns unnu þar í lokin og var hús­næðið í Gríms­nesi sem hann segir að á þeim tíma hafi ekki verið gott atvinnu­svæði.

Mummi Týr segir að Götu­smiðjan hafi alltaf verið í fjár­hags­vand­ræðum og það mæddi mikið á honum.

„Ég hef örugg­lega birst mörgum eins og það væri eitt­hvað mikið að mér. Í upp­hafi var fyrr­ver­andi konan mín með mér í þessu eins og kom fram og svo fór hún út úr þessu. Ein­hverjum árum síðar skildum við og ég var einn með þetta í fang­inu í mörg ár.

Ég var ábyrgur fyrir launum, ég var ábyrgur fyrir því að til væri matur í mötu­neyt­inu, ég varð að fjár­magna þetta allt saman, ég svaf ekki, ég reykti, ég var á fundum og ég var í fjár­öfl­unum. Ég var ger­sam­lega að tapa glór­unni.

Það voru áhyggjur af næstu mán­aða­mótum. Ég var sem betur fer með gott fólk með mér og sú sem vann á skrif­stof­unni og sá um bók­haldið var jarð­sam­bandið mitt. Hún vann með mér í tíu ár. Hún var algjör meist­ari. Hún var mót­vægið við mig.

En ég var rosa góður í að fá til dæmis Lions-félög, Kiwanis-félög og kven­fé­lög til að hjálpa okkur.

Ég var far­inn að ferð­ast eins og rokka­stjarna um allt Ísland að halda fyr­ir­lestra um fíkn fyrir bæj­ar­fé­lög, trú­fé­lög og póli­tíska flokka og ég tók aldrei neinn pen­ing fyrir þetta. Ég sagði bara að ef þau ættu pen­ing gætu þau styrkt Götu­smiðj­una og ég var á sömu lélegu laun­unum og allir hinir.

Fyrstu árin var ég reyndar ekki á neinum launum, nema stundum. Ég er hreyk­inn að segja frá því að við skuld­uðum aldrei laun en við skuld­uðum hita­veit­unni í marga mán­uði. Við skuld­uðum þessi gjöldin og hin gjöldin og ég var alltaf að semja um skuldir af því að við vorum alltaf und­ir­fjár­mögnuð.

Á sama tíma var ég sak­aður um að ég væri að stela pen­ingum. Það kom við skát­ann í mér. Enginn trúði því að ég væri að gera þetta af hug­sjón og þá hlytu það að vera pen­ing­arnir. Ég var tvisvar sinnum tek­inn inn hjá rík­is­end­ur­skoðun í rann­sókn.“

„Alveg „grundigt“ rann­sókn.“

„Það var vegna kjafta­sögu um að ég væri að stela pen­ingum. Ég var ekki að stela neinum pen­ingum. Ég labb­aði ekki einu sinni með brauð út úr mötu­neyt­inu. Og það kom ekk­ert í ljós. Mitt per­sónu­lega bók­hald var líka tekið fyrir. Það var engu að stela. Götu­smiðj­una vant­aði pen­ing.“

Það breytti miklu fyrir götu­strák­inn Mumma Tý að vera í þessu starfi í öll þessi ár.

„Það þroskaði mig nátt­úr­lega alveg ofboðs­lega en það tók líka ofboðs­legan toll. Lífs­stíll­inn minn var ekki heil­brigður. Ég var edrú og ég var ekki að nota vímu­gjafa en morg­un­mat­ur­inn var kaffi og sígó.

Ég svaf illa eins og ég sagði. Ég hef alltaf verið með svefn­rask­anir. Ég var ein­stæður faðir í nokkur ár á þessum tíma og ég var stundum við það að gef­ast upp. Ég við­ur­kenni það.

Ég svaf ekki fyrir áhyggjum af því að það voru að nálg­ast mán­aða­mót og ég var skuldum vaf­inn og búinn að skrifa upp á nokkur lán fyrir Götu­smiðj­una af því að ég var í per­sónu­legri ábyrgð til að bjarga fyrir horn.“

Hryllingur

Svo var ballið búið árið 2010. Mummi Týr var meðal ann­ars sak­aður um hót­anir í garð ung­menna á staðnum.

„Þegar þetta var tekið í burtu þá var það í fyrsta skipti sem ég var kom­inn á „steady“ laun. Ég var skráður 150% starfs­maður miðað við þjón­ustu­samn­ing af því að ég bjó á staðnum. Ég var alltaf í kall­færi inn á heim­ilið.

Við skuld­uðum ennþá en það var búið að vinna út allan hal­ann. Og ég naut þess bara í einn eða tvo mán­uði áður en ég var sak­aður um að hafa hótað nem­endum ofbeldi.

Þú sérð þetta ef þú gúgglar þessi mál. Þetta var bara „bullshit“ að ég væri ofbeld­is­maður og að þess vegna ætti að rifta þjón­ustu­samn­ingnum. „Come on!“

Á þriðja þús­und krakkar nutu aðstoðar okkar í Götu­smiðj­unni í gegnum árin. Heldur þú að allir net­miðlar væru ekki fullir af ofbeld­is­sögum ef ég væri ofbeld­is­maður? Og fyrr­ver­andi kærustur og eig­in­konur! „Come on!“

Ég get verið alls konar en ég er ekki ofbeld­is­maður og hef aldrei verið!

Ég fékk mánuð til að rýma hús­næðið. Þetta voru rík­is­eignir. Og það var hvert við­talið á eftir öðru við barna­vernd­ar­yf­ir­völd um hvað ég hefði átt að hafa sagt og ekki. Ég fékk aldrei að tala við neinn í kerf­inu. Ég hef ekki ennþá talað við neinn í kerf­inu. Þessu var algjör­lega haldið frá mér.

Ég var bara fullur af skömm.

Ég varð þung­lyndur eftir að Götu­smiðjan var tekin niður í öllum fjöl­miðlum. Ég þró­aði með mér kvíða, dró mig inn í skel og var í ein­hverju skrýtnu sam­bandi við ein­hverja konu en það fór hratt ofan í skurð.

Þannig að við tók langt tíma­bil þar sem ég labb­aði um göt­urnar og fór helst ekki Lauga­veg­inn. Þannig að ég dró mig svo­lítið í hlé í skömminni. Ég tók eftir að fólk kann­að­ist við and­litið á mér og ég hugs­aði oft „ok, byrjar þetta!“.

Mummi segir að árin eftir hafi ein­kennst af skömm og erf­ið­leikum við að fóta sig á ný. Hann hafi ítrekað sótt um störf og oft verið boð­aður í atvinnu­við­töl, en haft á til­finn­ing­unni að áhug­inn sner­ist stundum frekar um hver hann væri en hæfni hans til starfans. Að hans mati hafi umtalið sem fylgdi honum haft nei­kvæð áhrif á mögu­leika hans á vinnu­mark­aði, jafn­vel þegar hann sótti um störf sem hann taldi vera vel innan sinna getu eða jafn­vel undir þeim. Hann seg­ist oft hafa fundið strax í við­tal­inu að starfið væri ekki raun­veru­lega í boði fyrir sig.

„Þannig að það tóku við nokkur ár sem bara voru hryll­ingur. Í mörg ár fékk ég ekki vinnu þannig að ég þurfti að skapa mér vinnu.

Ég er lista­maður í mér og fór að búa til hluti. Ég var að vinna alls konar hlið­ar­verk­efni við kvik­mynda­gerð. Ég var að skrifa og hjálp­aði til við að fram­leiða mynd um langafa minn, Jónas Krist­jáns­son, sem stofn­aði heilsu­hælið í Hvera­gerði.

Svo hef ég verið að fram­leiða til dæmis rúnir og íslenska skjald­ar­merkið í steypu. Ég hann­aði fjórtán galdra­rúnir sem ég steypti og þetta seld­ist alveg rosa­lega vel.

Svo er skjald­ar­merkið svo­lítið Rolls Royce-inn minn. Það er eitt skjald­ar­merki á Bessa­stöðum og alltaf mynd af því annað slagið í fjöl­miðlum.“

Misst tvær íbúðir

Mummi Týr hefur tvisvar sinnum misst íbúðir sem hann hefur átt og fyrra skiptið teng­ist verð­bólgu­skoti og ofur­vöxtum. „Árið 1983 var 80-90% verð­bólga á Íslandi og tók ég heila loðnu­ver­tíð sem kokkur í eitt og hálft ár. Ég þén­aði rosa­lega en ég hélt samt ekki í við íbúð­ina sem ég átti. Ég átti ekk­ert í henni þegar ég rétti öðrum lyklana. Og öll ver­tíðin mín fór í þessa íbúð. Lánin hækk­uðu og átu upp allt sem ég var búinn að borga í henni og ég held ég hafi sloppið með tíu til fimmtán þús­und kall sem er eins og hund­rað þús­und kall í dag.“

Það var þá sem Mummi Týr ákvað að drífa sig í nám og fór í nám í off­set-ljós­myndun í Iðn­skól­anum. „Ég átti alla ævina fram undan og bara „fokk this“.“

Árið 1993 missti hann líka kvik­mynda­fyr­ir­tækið sem hann átti og rak með félaga sínum.

„Fyr­ir­tækið fór á haus­inn með fimm­tíu þús­und kalli í mínus. Bankar hættu að fyr­ir­greiða og þá fóru fyr­ir­tæki á haus­inn. Við fengum ekki borgað. Það sem við áttum útistand­andi var það sem við skuld­uðum og það mun­aði fimm­tíu þús­und kalli. Og við fengum enga fyr­ir­greiðslu í neinum bönkum. Og fyr­ir­tækin sem skuld­uðu okkur stærstu upp­hæð­irnar fóru á haus­inn þannig að við fengum ekki borgað. Þetta var á því tíma­bili rétt áður en við sam­þykktum EES-samn­ing­inn. Krónan okkar er eins og jójó.“

Svo missti hann íbúð í kjöl­far hruns­ins og falls Götu­smiðj­unnar 2010.

„Ég hefði senni­lega lifað þetta af ef Götu­smiðjan hefði ekki verið tekin af mér tveimur árum eftir hrun en þá hrundi þetta eins og spila­borg. Ég átti íbúð og lánin voru nátt­úr­lega búin að éta upp alla inn­eign­ina mína. Ég átti ekki lengur í henni. Vext­irnir og verð­bólgan átu þetta allt upp þannig að ég var kom­inn í skuld og lét Íbúða­lána­sjóð taka hana.“

Og Götu­smiðjan var tekin niður í kjöl­far hruns­ins. „Á þeim tíma ætl­aði ríkið að draga saman um hund­rað millj­ónir í kostn­aði í barna­vernd­ar­málum þannig að þeir not­uðu tæki­færið og los­uðu sig við Götu­smiðj­una og mig á einu bretti.“

Kjaftasögur

Margt hefur verið sagt um Mumma Tý eins og oft er með þekkt fólk. Sumt satt. Sumt ósatt. Sumt hel­ber upp­suni.

Mummi Týr segir að kjafta­sögur bíti ekk­ert á sig í dag. „Ég glotti bara yfir því og ég er alveg öruggur í eigin skinni og hef vaxið upp úr þessu. Ég er stærri og betri mann­eskja. Það bítur ekk­ert á mig. Eitt það fyrsta sem ég sagði við núver­andi kon­una mína þegar við vorum að kynn­ast var: „Í guðs bænum spurðu mig ef þú heyrir ein­hverjar sögur um mig.“

Mummi Týr segir að um ára­bil eftir aðför­ina að Götu­smiðj­unni hafi fólk ruglað honum saman við annan mann sem tengd­ist öðru umdeildu með­ferð­ar­máli á sama tíma.

„Ég hét einu sinni Guð­mundur og það eru meira en þrjá­tíu ár síðan ég henti þessu Guð­mund­ar­nafni af því að ég hef aldrei þolað það. Ég heiti raun­veru­lega gagn­vart Þjóðskrá Týr Þór­ar­ins­son en er alltaf kall­aður Mummi. Það þekkir mig eng­inn öðru­vísi. En mér var ruglað saman við annan mann og fólk fór allt í einu að hreyta í mig úti á götu að ég væri kyn­ferð­is­glæpa­maður og væri að mis­nota skjól­stæð­inga. Það var mjög erfitt tíma­bil og enn þann dag í dag er þessi rugl­ingur í gangi. Pældu í því! Það eru tvö ár síðan ég var á fundi á Selfossi þegar ein konan sagði að það væri leið­in­legt þetta mál. Þetta var fag­mann­eskja í kerf­inu.

Kjafta­sagan lifir lengi og ég er orð­inn þetta og ég er orð­inn hitt. En þetta er hætt að bíta á mig.“

Róm

Þær eru nokkrar kon­urnar í lífi eilífð­artöffar­ans. Hann hefur fjórum sinnum gengið í hjóna­band og á sex börn á aldr­inum tutt­ugu og tveggja ára til fjöru­tíu og sjö ára og hann á átta barna­börn og tvö barna­barna­börn sem þýðir að töffar­inn er langafi.

Mummi segir að fyrsta alvar­lega ást­ar­sam­band sitt hafi verið við mann­eskju sem hafi átt margt sam­eig­in­legt með honum. Hann hafi alist upp við erf­iðar fjöl­skyldu­að­stæður og snemma mótað með sér ákveðna hug­mynd um fjöl­skyldu­líf sem síðar hafi reynst óraun­hæf. Þrátt fyrir að hafa ekki verið í stakk búinn til að standa undir þeim vænt­ingum hafi hann ítrekað reynt að byggja upp fjöl­skyldu í sam­ræmi við þá sýn sem hann hafði gert sér.

„Það fór alltaf ofan í skurð en mjúki og hræddi Mummi með stóra hjartað lang­aði í hlýju heim­il­is­ins. Búa til hlýju heim­il­is­ins.“

Þórunn Wolfram Pét­urs­dóttir, eig­in­kona Mumma Týs, er doktor í umhverf­is­fræðum og gegnir stjórn­enda­stöðu hjá Matvæla- og land­bún­að­ar­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (FAO) í Róm.

„Hún er „uber“ klár sem er vont fyrir mig stundum af því að ég er svo auð­veld­lega mat­aður ef ég man ekki alveg fyrri sam­skipti okkar. Hún vinnur mjög mikið og þá fæ ég að ráða fjar­stýr­ing­unni einn. Hún ferð­ast svo­lítið á ráð­stefnur og er á þvæl­ingi. Vinnan tekur hennar orku að stærstum hluta.

Ég er því mikið að æfa mig í því að vera bara með sjálfum mér og ég er orð­inn ógeðs­lega góður í því. Ég fæ dellur - ég rann­saka allt um les­blindu, ég hlusta á fyr­ir­lestra og dett inn í það. Ég er með króníska mót­or­hjóla­dellu og er með mót­or­hjól fyrir utan sem ég rúnta á um borg­ina og er í ein­hverju „semí inner peace“ ferða­lagi að njóta. Ég tek bara einn dag í einu.

Við búum mið­svæðis og erum fimmtán til tutt­ugu mín­útur að labba upp á Colosseum. Ítalir eru frá­bærir. Ég hef aldrei orðið fyrir dóna­skap. Þeir tala almennt ekki ensku og ég tala ekki ítölsku en ein­hvern veg­inn komumst við í gegnum þetta með Google Translate.

Þeir eru ynd­is­legir, Ítal­arnir. Þetta er menn­ing­ar­borg og hér eru tón­leikar, úti­há­tíðir og kröfu­göngur. Það er allt í gangi í Róm. Borgin er þannig að maður klárar aldrei að skoða hana. Hvert sem maður fer er „vá“! Það er alveg sama hvar maður er. Sagan öskrar á mann.

Fyrir utan húsið okkar er tvö þús­und ára gam­all borg­ar­veggur og borg­ar­hlið hund­rað metra í burtu sem var reist á sama tíma og Jesús er sagður hafa verið á rölt­inu. Það er sama hvert maður fer; maður sér alls staðar forn­minjar. Ef maður fer í þorp og út á land þá sér maður eld­gömul must­eri. Þetta er svo mikil saga.“

Hjónin búa í um hund­rað ára gömlu húsi. Mummi Týr stendur upp, tekur sím­ann með sér og opnar dyrnar fram a gang. Á tölvu­skjánum á Íslandi birt­ast lyftu­dyr þar sem rimlar eru í aðal­hlut­verki. „Maður fær svo­lítið God Father-til­finn­ingu,“ segir hann.

„Leave the gun, take the cannoli,“ er setn­ing úr kvik­mynd­inni. Ítalskur stíll.

Hvað hefur Mummi Týr lært af því að búa í Róm?

„Ég finn fyrir smæð minni og hvað ég veit lítið og þótt ég sé að læra á hverjum ein­asta degi um keis­ara, eitt­hvað sem er í gangi eða skolplagnir sem voru til fyrir 2500 árum þá veit maður aldrei allt.

Það sem ég hef lært er að maður er alla ævi að læra. Elsta hús á Íslandi er hund­rað og tutt­ugu ára. Hérna er maður inni í mann­kyns­sög­unni. Maður fer svo­lítið út úr nafl­anum á sjálfum sér. Þetta snýst ekki um mann sjálfan. Þetta snýst um okkur öll ein­hvern veg­inn og líf­ríkið og við erum öll tengd. Ég get ekk­ert slitið mig frá nátt­úr­unni því ég er nátt­úran. Við erum tréð. Ég hljóma eins og geð­sjúk­lingur; ég veit það.“

„Magic“

Hjónin kynnt­ust á Tinder. „Það er lítil róm­an­tík í kringum það hvernig við kynnt­umst. Vinur minn skráði mig á Tinder; hann sagði að ég yrði að vera á Tinder og gerði eitt­hvað í sím­anum mínum. Svo bling­uðu ein­hverjar konur og Þórunn var eina konan sem mér fannst ég verða að tala við.

Ég sendi henni skila­boð og skrif­aði að það væri gaman að kynn­ast henni og þá sendi hún mér skila­boð til baka og spurði hvort mér væri sama ef hún hringdi í mig þar sem hún væri ekki góð í svona pikki. Við töl­uðum saman í tvo til þrjá tíma. Það var fyrsta sam­talið okkar og það var um allt.

Ég sagð­ist ætla að henda henni í djúpu laug­ina. Ég sagð­ist vera gam­all fík­ill og ég hefði verið kvæntur og sagði að hún ætti að hlaupa núna.

Ég var upp­haf­lega með á bak við eyrað að vilja bara eign­ast vin­konu til að fara kannski með til útlanda af því að þetta ást­ar­kjaftæði var ekk­ert að virka fyrir mig; greini­lega var þetta eitt­hvað í bíó­mynd­unum. En svo datt ég á and­litið. Bara alveg „head down“. Strax.

Frá bling­inu var eitt­hvað „magic“ sem gerð­ist. Ég sendi engum öðrum skila­boð sem ég „mats­aði“ við af því að, „come on“, þetta er pínu hall­æris­legt en ég nennti ekki að standa á bar og vera gáfu­legur.“

Hvað réð því að þau Þórunn smullu svona saman?

„Ég held við höfum bæði verið á þeim stað í líf­inu. Við lögðum bara niður allar varnir. Þetta varð ein­hvern veg­inn „magic“. Heið­ar­legt sam­tal. Falleg sam­töl. Virðing.

Og við byrj­uðum bara á fyrsta degi í sam­skiptum. Hver ert þú? Hver er ég? Ég vissi nátt­úr­lega ekki hver hún var nema hún segði mér það og öfugt.“

Jú, þau smullu strax saman og gengu í hjóna­band á Aust­ur­velli tæpu ári síðar. Styttan af Jóni Sig­urðs­syni gnæfði yfir þeim þar sem þau stóðu við stall­inn þegar Jör­m­undur Reykja­vík­ur­goði gaf þau saman að heiðnum sið 21. des­em­ber - á vetr­ar­sól­stöðum. „Þetta var bara „low profile“ af því að við höfðum bæði verið gift áður. Þetta var mjög fal­leg athöfn og rok og rign­ing. Svo fórum við út að borða.“

Mummi Týr segir að sam­bandið við Þórunni sé eina sam­bandið sem hefur virkað.

„Við eigum ofboðs­lega fal­legt og stórt sam­band í dag, ég og konan mín. Og ég er heppn­astur að loks­ins upp­lifi ég eins og ég sé kom­inn heim.“

Hvað er ástin?

„Ástin er bara „magic“. Þetta varð bara átaka­laust þegar ég kynnt­ist Þórunni. „Beauti­ful.“ Og núna sjö og hálfu ári síðar fæ ég enn fiðr­ing í mag­ann þegar hún kemur heim úr vinn­unni. Við erum bestu vinir og við höfum aldrei rif­ist. Við höfum verið ósátt en bara talað um það. Þannig að það má segja að ég hafi loks­ins orðið ást­fang­inn alla leið þegar eg var sex­tugur. Kannski var það líka að ég hafði þrosk­ann til að leyfa öðrum að elska mig.“

Er Mummi Týr, sem hefur fundið hina sönnu ást, róm­an­tískur?

„Ég er róm­an­tískur á mjög kómískan máta. Mér hættir til að snúa hlut­unum og dag­legu amstri svo­lítið upp í hlátur. Mér getur ekki verið dauð­ans alvara.

„Ég er heppn­astur að loks­ins upp­lifi ég eins og ég sé kom­inn heim.“

Ég kannski sem ljóð en ég næ ekki að halda and­lit­inu þegar ég fer með leir­burð­inn. Það er svo lélegt ljóðið og ég byrja að hlæja. Við erum ennþá klesst saman í sóf­anum fyrir framan sjón­varpið. Þannig að róm­an­tík fyrir mér er alltaf. Þegar hún kemur heim úr vinn­unni, þegar við löbbum út í búð, þegar við förum í göngutúr og þegar ég horfi á hana ein­hvers staðar og hugsa „vá hvað þetta er flott kona“. Mér finnst það vera róm­an­tískt.“

Svo margt í ásatrúnni

Mummi Týr talar um ása­trú­ar­fé­lagið og ása­trúna - hann sem gekk í hjóna­band á vetr­ar­sól­stöðum.

„Ég er í ása­trú­ar­fé­lagi sem heitir Reykja­vík­ur­goð­orð og er búinn að vera í því frá stofnun. Ég var einu sinni í Ása­trú­ar­fé­lag­inu og svo þegar leið­indin byrj­uðu með Jörmund þá fylgdi ég honum. Mér fannst illa að honum vegið. Ég stóð með Jörmundi og hann stofn­aði Reykja­vík­ur­goð­orð og ég er sem sagt í því félagi og við hitt­umst tvisvar til þrisvar á ári.“

Hann seg­ist vera yfir­lýstur ásta­trú­ar­maður.

„Það er svo margt í ása­trúnni. Guðirnir voru mann­legir og breyskir. Það er mjög erfitt að bera sig saman við hinn guð­inn, pabba hans Jesú, því hann er full­kom­inn. Þetta eru munn­mæla­sögur sem fólk bjó til í kringum eitt­hvað æðra en ása­trúin er svo „beauti­ful“. Það voru svo mikil mann­rétt­indi, kven­rétt­indi og virð­ing sem fylgdu henni. Og mér finnst svo fal­legt að við­halda þessum gamla heiðna sið. Að hann deyi bara ekki út og það séu svona sér­vitr­ingar eins og ég og fleiri sem eru að grúska í þessu og við­halda þessu af því að það á að varð­veita þetta eins og allt annað.“

Það er sterk nátt­úru­teng­ing í ása­trúnni.

„Þetta er taoismi síns tíma. Virðing fyrir nátt­úr­unni og virð­ing fyrir lífi. Þó að vík­inga­öldin hafi verið eins og hún var þá var kjarn­inn í ása­trúnni alltaf virð­ing.

Það er alltaf þessi virð­ing fyrir nátt­úr­unni. Líf­rík­inu.

Þetta er bara eins og hjá gömlu indíán­unum. Þeir báðu anda dýr­anna um að taka dýrið sem þeir drápu til að borða. Það var alltaf ritúal með það.“

Ber meiri virðingu fyrir heilsunni

Heilsan hefur ekki alltaf verið eins og hún á að vera og Mummi Týr talar svo­lítið um heils­una eða heilsu­leysi nánar til­tekið.

„Ég fékk hjarta­á­fall á fimm­tugs­af­mæl­inu mínu á Hótel Borg og var fluttur með sjúkra­bíl úr partí­inu. Þetta er svo­lítið mynd­rænt. Gerði þetta með stæl.

Þetta er eins og þegar mamma mín dó. Hún gerði það líka með stæl en hún dó af slys­förum og það var í öllum fjöl­miðlum. Þannig að við gerum allt með stæl í þess­ari fjöl­skyldu.

Þarna var ég settur í akút hjarta­þræð­ingu en æð var að lok­ast og ég hneig niður.

Svo fimm árum síðar fann ég að það var eitt­hvað ekki eins og það átti að vera og ég fór aftur inn á hjarta­deild í þræð­ingu en hjartað í mér er alveg heilt. Það er ekk­ert að hjart­anu sjálfu. Ég held ég sé svo­lítið að súpa seyðið af fimm­tíu ára reyk­ingum, kaffi­drykkju og vondu líf­erni. Þess vegna er ég til dæmis vegan í dag. Ég borða ekki kjöt eða dýra­af­urðir og ekki búinn að gera það í sjö ár. Ég breytti um lífs­stíl en ég er ennþá með veipið. Ég er svo mik­ill nikó­tínisti.“

Árið 2021 fann Mummi Týr að eitt­hvað var ekki eins og það átti að vera og eftir að vera settur í hjarta­skoðun var hann skor­inn upp nokkrum dögum síðar. „Ég fór í hjá­veitu­að­gerð og það er pínu „riskí“ aðgerð. Það voru teknar æðar úr löpp­inni á mér, svo­kall­aðir græðlingar, og settar við hjartað. Það þurfti að lappa upp á fjórar kransæðar.

Núna er ég nýkom­inn af spít­ala. Ég fékk slæma sýk­ingu sem end­aði í akút tíma­bund­inni nýrna­bilun. Það gekk sem betur fer til baka en ég þurfti að vera í tvær vikur rúm­liggj­andi á spít­ala með pen­isi­lín í æð. Konan drösl­aði mér upp á spít­ala en ég var búinn að vera harka af mér í marga daga. Nýrun voru að drep­ast en þau björg­uðu þeim. Ég hefði drep­ist inni á stofu­gólfi ef konan mín hefði ekki sagt um morg­un­inn þegar hún var að fara í vinn­una að þetta væri ekki að virka.“

Mummi Týr segir að eftir þessi veik­indi í gegnum árin beri hann nú meiri virð­ingu fyrir heils­unni.

„Þakklæti er góð til­finn­ing. Ég er svoddan for­rétt­indapési. Ég er sex­tíu og sjö ára mið­svæðis í Róm með mót­or­hjól fyrir utan og á konu sem elskar mig og vinn­una sína og er í flottri stöðu.

Við búum í flottri íbúð og fylgja sjö­tíu fer­metra svalir. Ég veit ekki hvað ég verð gam­all og ég þarf ekk­ert að vita það. En ég er þakk­látur fyrir allt sem ég á og tengsl við fólk.

Já, mér finnst ég vera for­rétt­indapési að geta þetta.

En að sama skapi brennur hjartað mitt fyrir heims­mál­unum og Palesínu og öllu því ógeði sem er í gangi og ég verð stundum að kúpla mig frá fréttum af því að ég tek það nærri mér. Að mann­skepnan skuli vera svona galin teg­und. „Self destructing“ fyrir allan pen­ing­inn.“

Við skiptum öll máli

Eilífð­artöffar­inn er orð­inn sex­tíu og sjö ára gam­all. Lög­giltur.

„Þetta varð dálítið skrýt­inn vendi­punktur að verða sex­tíu og sjö ára fyrir karka­ter eins og mig sem hef alltaf verið í ein­hverri útgerð og að græja og gera. Það varð svo­lítið upp­hafið að mínum starfs­lokum þegar ég veikt­ist og fór í hjá­veitu­að­gerð­ina. En þegar manni líður alltaf eins og tutt­ugu og fimm ára þá er þetta svo­lítið óraun­veru­legt. Ég veit að fólk á mínum aldri veit ekki almenni­lega hvernig það á að lenda - að vera komið í eldri borg­ara deild­ina. Sumir verða skít­hræddir og aðrir kaupa sér sport­bíla og reyna að hanga á ein­hverju.

Ég er voða þakk­látur fyrir að fá að eld­ast og er hreyk­inn af mörgu leyti af mínu ævi­skeiði. Ég get litið um öxl og séð stóran hluta ævi minnar sem ég gerði góða hluti og stóran hluta sem ég var í tómu tjóni sem ungur maður.“

Mummi Týr hugsar enn um þá sem minna mega sín. Hann á til dæmis tvo vini úti á svölum.

„Það er fötluð dúfa sem kemur alltaf um leið og ég kem út og ég gef henni alltaf eitt­hvað í gogg­inn. Það vantar annan fót­inn á hana. Og hún er búin að vera með mér hérna í eitt og hálft ár. Hún heitir Magga. Og svo er ung­mávur sem kemur alltaf og heilsar upp á mig og ég gef honum líka og hann er voða gæfur.“

Mummi Týr sem strákur kom krökkum til aðstoðar sem lagðir voru í ein­elti og sem síðar aðstoð­aði götu­börn hjálpar nú ein­fættri dúfu í borg­inni fornu.

„Ég má bara ekk­ert aumt sjá. Ég má það ekki. Ég stend alltaf með lít­il­magn­anum. Það hefur alltaf verið minn karakter frá því ég var að vernda bræður mína þegar ein­hver var að „búllía“ þá.

Styrkur er mýktin. Styrk­ur­inn er í mýkt­inni. Hann er ekki í hnef­anum eða vöðv­unum heldur hjarta­lagi í fólki.

Mér finnst gaman að sjá þetta í börn­unum mínum - að þau finni til sam­kenndar með fólki sem hallar á. Ég er mjög heitur í trans­bar­átt­unni og sam­kyn­hneigðu bar­átt­unni og kven­rétt­indum. Ég er örugg­lega meiri femínísti en konan mín. Ég bara þoli það ekki að styrk­ur­inn eða valdið sé að níð­ast á þeim sem verða undir. Alveg eins og í grunn­skóla - þegar ein­hver var lagður í ein­elti var ég mættur og dró við­kom­andi í burtu og tengd­ist honum. Ég tek alltaf stand með lít­il­magn­anum.“

Jú, Mummi Týr eilífð­artöffari nálg­ast sjö­tugt. Hann hefur siglt á úfnum sjó í gegnum lífið, misst heim­ili og fyr­ir­tæki, verið bor­inn sökum þar sem ekki hafa allir verið sáttir við hann og glímt við veik­indi. Í dag matar hann ein­fættu dúf­una Möggu á svölum í miðbæ Rómar.

Hvað hefur hann lært af þessu lífi?

„Ég bý að haf­sjó af reynslu. Ég hef oft spurt mig hvort ég sjái eftir ein­hverju. Nei. Allt sem ég gerði var „sur­vi­val“. Þetta sner­ist um lít­inn strák sem upp­lifði það að hann væri ekki elsk­aður og virtur en hann þurfti að lifa af. Og til þess að lifa gerði ég alls konar hluti eins og að fara á sjó og bjarga mér en ekki þannig að ég rændi pen­ingum af fólki til að lifa af; ég var aldrei þar.

Það sem lífið hefur kennt mér er að þetta er ofboðs­lega verð­mætur skóli og það er ekk­ert sem kemur mér lengur á óvart í mann­heimum. Þetta voru mjög dýr skóla­gjöld en ég bý að þess­ari reynslu. Ég bý að þessum sam­skiptum við annað fólk.

Ég er einn af þeim heppnu sem náðu að eign­ast líf út úr svona bak­grunni og það eru ekk­ert margir sem lifa þetta af. Mínir líkar deyja yfir­leitt ungir. Það er bara þannig. Konur og karl­menn. Við eigum heims­met í sjálfs­vígum karla. Ungra karla. Mig svíður í hjartað að heyra það.

Hvar er örygg­is­netið okkar? Er til svona mikið af ein­stæð­ingum að þeir ein­angr­ast alveg inn í sárs­auka sinn og kveðja þetta líf? Mér finnst þetta vera voða sárt. Ég get ekk­ert bandað þessu frá mér og sagt að þetta sé bara lífið. Mig langar að gera eitt­hvað við þetta. Mig langar að hafa rödd í þessu öllu saman.

Við skiptum öll máli. Við erum öll verð­mæt. Og fyrir mér eru dýrin líka verð­mæt. Náttúran er verð­mæt. Allt þetta er verð­mætt og ekk­ert af þessu er sjálf­sagt.

Þannig að ég er búinn að hafa ofsa­lega mikið fyrir líf­inu sem ég á í dag. Ég er mjög þakk­látur fyrir það en það gerir mig ekk­ert að betri eða verri manni en ég er sátt­ari í eigin skinni.

Ég vil öllum vel. Ég er ekki til í að tala illa um fólk. Ég á erfitt með fólk sem talar illa um aðra við mig því ég veit að fólk sem talar illa um aðra við mig talar illa um mig við aðra. Ég tek ekki þátt í því og nær­ist ekki í svo­leiðis félags­skap.

Ég á erfitt með „small talk“ - ég þoli tveggja til þriggja mín­útna tal um Tenerife og glugga­tjöld en ég vil eiga inni­halds­ríkt sam­tal við fólk, ekki til að hnýs­ast í líf þess heldur af því að við lærum af hvert öðru.

Konan mín kenndi mér að konur eru ekki fávitar; þá sérðu hvað ég var orð­inn bitur. Mér fannst konur bara vera rugl og vesen. Það voru ekk­ert kon­urnar sem voru vesen, ég bara fún­ker­aði ekki almenni­lega með þeim.“

Hjónin áttu hús í Gríms­nesi en seldu það nýlega og hafa keypt hús í Hvera­gerði. Þórunn gerir ráð fyrir að ráðn­ing­ar­samn­ingur hennar verði end­ur­nýj­aður.

„Við ætlum að vera á Íslandi þegar Þórunn er í sum­ar­fríi og um jólin. Ef mér fer að leið­ast get ég skroppið heim og þá er rúmið á sínum stað.“

Einfætta dúfan Magga mun þá kurra ein­mana og svöng í borg­inni eilífu.

Mummi Týr myndi þó koma aftur.

Það er nefni­lega sagt að allir vegir liggi til Rómar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu