Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hóf feril sinn í embætti með brauki og bramli. Fyrsta verk hennar var að hreinsa úr fjölmiðladeild borgarinnar og Mannréttindaskrifstofa var lögð niður.
Þá hefur Hildur ráðið lögmanninn Óttar Pálsson, einn þann dýrasta á landinu, til að stjórna hópi til að fara ofan í alla samninga Reykjavíkurborgar við olíufélögin með það fyrir augum að fá meira út úr þeim viðskiptum.
Þetta þykir einhverjum sem verið sé að fiska í gruggugu vatni þar sem um er að ræða samninga sem gerðir voru fyrir mörgum árum og lóðir hafa skipt um eigendur. Flækjustigið er gríðarlegt og ekki að sjá möguleika á ávinningi og líklegra að borgin sitji uppi með útgjöld ...































Athugasemdir