Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Enn einn ferðamaðurinn drukknar á Kanaríeyjum

Aðvar­anir yfir­valda oft virtar að vettugi

Enn einn ferðamaðurinn drukknar á Kanaríeyjum
Líf­verðir á strönd­inni hófust þegar handa við grunn­end­ur­lífgun Tugir manna drukkna árlega á Kanarí­eyjum Mynd: Canarian Weekly

Sextugur karl­maður lést á Corralejo Viejo strönd­inni á spænsku eyj­unni Fuer­teventura á föstu­dag, eftir að hafa verið bjargað með­vit­und­ar­lausum upp úr sjónum. Líf­varðar og við­bragðs­að­ilar reyndu end­ur­lífgun í tæpan klukku­tíma en án árang­urs.

Neyð­ar­línan á Kanarí­eyjum (CECOES) fékk til­kynn­ingu um atvikið klukkan 14:40 að stað­ar­tíma föstu­dag­inn 17. júlí. Líf­verðir á strönd­inni hófust þegar handa við grunn­end­ur­lífgun um leið og mað­ur­inn var hífður á land.

Skömmu síðar mættu læknir og hjúkr­un­ar­fræð­ingur frá heilsu­gæslu­stöð­inni í Corralejo á vett­vang, ásamt bráða­tæknum frá sjúkra­bíla­þjón­ustu Kanarí­eyja (SUC). Þrátt fyrir ítar­legar til­raunir til end­ur­lífg­unar á strönd­inni tókst ekki að lífga mann­inn við og var hann úrskurð­aður lát­inn á vett­vangi.

Slökkvi­liðs­menn frá La Oliva, sjálf­boða­liðar almanna­varna, lög­reglan á staðnum og almanna­varna­liðið (Guardia Civil) aðstoð­uðu einnig við aðgerð­irnar. Guardia Civil hefur nú hafið hefð­bundna rann­sókn á til­drögum slyss­ins og sér um forms­at­riði vegna and­láts­ins. Ekki hafa verið gefnar upp nán­ari upp­lýs­ingar um hvernig kom til að mað­ur­inn lenti í háska í sjónum.

Tugir manna drukkna árlega á Kanaríeyjum

Nýjustu tölur sýna að drukknun er áfram algeng­asta dán­ar­or­sök af völdum slysa á Kanarí­eyjum eða ríf­lega helm­ingi fleiri á ári hverju en umferð­ar­slys á eyj­unum. Samkvæmt gögnum frá sam­tök­unum Canarias, 1500 Km de Costa lét­ust 69 manns af völdum drukkn­unar árið 2025, sem er lít­ils háttar fækkun frá árinu 2024 þegar 72 drukkn­un­ar­slys voru skráð.

Nýjustu hálfs­árs­tölur fyrir árið 2026 benda hins vegar til þess að slysum fari aftur fjölg­andi. Á fyrstu sex mán­uðum þessa árs drukkn­aðu 31 ein­stak­lingur á eyj­unum, sem er 15% aukn­ing miðað við sama tíma­bil í fyrra, þegar 27 manns lét­ust á fyrri hluta árs­ins.

Ferðamenn í mestri hættu

Greining á gögnum síð­ustu ára sýnir skýra mynd af þeim sem lenda í háska. Rúmlega 70% þeirra sem drukkna á Kanarí­eyjum eru erlendir ferða­menn eða fólk án fastrar búsetu á eyj­unum. Þá eru karl­menn í miklum meiri­hluta fórn­ar­lamba, eða rúm­lega 75% þeirra sem láta lífið.

Flest slysin eiga sér stað við opnar strendur (um 50%), en hin slysin eiga sér stað á milli hafna, í klettum og sund­laugum. Tenerife og Gran Canaria skrá jafnan flest slys sökum mik­ils fjölda ferða­manna, en Fuer­teventura og Lanzarote fylgja fast á eftir.

Aðvaranir yfirvalda oft virtar að vettugi

Talsmenn örygg­is­sam­taka og björg­un­ar­að­ila á eyj­unum lýsa yfir þungum áhyggjum og benda á að gáleysi sé helsti sam­nefn­ari banaslysa í sjónum. Í tæp­lega 61% til­fella fóru ein­stak­lingar ofan í sjó­inn þrátt fyrir að yfir­völd hefðu gefið út form­legar veður- eða sjó­lags­við­var­anir, eða þar sem rautt flagg var við lýs­ingu á ströndum.

Yfirvöld á Kanarí­eyjum minna ferða­menn og íbúa á að virða ávallt flagga­kerfið og sýna fyllstu varúð, þar sem neð­an­sjáv­ar­straumar geta verið lúmskir og kraft­miklir, jafn­vel í góðu veðri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Atvikið varð við lögreglubifreið eftir að dyraverðir höfðu óskað aðstoðar
Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco