Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pálmi Gestsson gagnrýnir „flissara“ á Facebook

„Þetta er ótrú­legur harm­leikur. Og meiri­hluti þeirra sem bregð­ast við hlær, flissar.“

Pálmi Gestsson gagnrýnir „flissara“ á Facebook
Pálmi Gestsson Pálmi furðar sig á hegðun fólks Mynd: Borgarleikhúsið

Leik­ar­inn Pálmi Gestsson gagn­rýnir harð­lega þá sem bregð­ast við alvar­legum færslum á sam­fé­lags­miðlum með hlát­ur­körlum. Í nýrri Facebook-færslu seg­ist hann eiga erfitt með að skilja hvers vegna fólk noti slíkt við­bragð við fréttum af hörm­ungum á borð við mann­skæða gróð­ur­elda.

Pálmi segir að hann hafi und­an­farið velt þessum svoköll­uðu „fliss­urum“ fyrir sér.

„Þetta er ótrú­legur harm­leikur. Og meiri­hluti þeirra sem bregð­ast við hlær, flissar. Það er háttur fliss­ar­ana að þeir hafa ekk­ert að segja, koma ekki fram með neina skoðun, bara flis­skall,“ skrifar hann.

Hann segir að sömu ein­stak­ling­arnir birt­ist gjarnan þegar hann setji fram skoð­anir á Facebook og bregð­ist við með hlát­ur­körlum þótt efnið sé ekki fyndið.

Til að kanna við­brögðin seg­ist Pálmi hafa gert litla til­raun. Hann fór inn á síður nokk­urra þeirra sem not­uðu hlát­ur­við­brögð við færslum hans og setti sjálfur hlát­ur­karl við færslur þeirra.

„Ég hef grun um að þeim hafi ekki fund­ist það fyndið og lái þeim hver sem vill,“ skrifar hann.

Pálmi segir að vissu­lega sé ekk­ert athuga­vert við að fólk sé hlát­ur­milt, en hann hafi grun um að hlát­ur­við­brögðin séu oft notuð til að gera lítið úr bæði umræðu­efn­inu og þeim sem tjá sig.

Sem dæmi nefnir hann umræð­una um lofts­lags­breyt­ingar. Þar segir hann að þegar virtir vís­inda­menn leggi fram nið­ur­stöður sínar bregð­ist sumir við með hlát­ur­körlum í stað þess að færa rök fyrir máli sínu. Pálmi vísar þar í frétt á RÚV þar sem íslenskur vís­inda­maður segir lofts­lags­breyt­ingar helstu orsök vax­andi gróð­ur­elda í heim­inum.

„Þarna kemur spreng­lærður, virtur og við­ur­kenndur vís­inda­maður með djúp­stæða þekk­ingu á mál­efn­inu og segir okkur hvað er að ger­ast og þá koma Pétur og Páll og fullt af alls konar kjánum sem eng­inn veit deili á og hvað gera þeir? Jú, setja hlát­ur­kall og flissa eins og vís­inda­mað­ur­inn sé hálf­viti og þeir sjálfir hafi miklu meiri þekk­ingu á því sem er að ger­ast. Ótrúlegt alveg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina