Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gerir gys að byssumálinu á Akureyri

„Er ekki hægt að ákæra vopna­sal­ann?“

Gerir gys að byssumálinu á Akureyri
Akureyri Anna er fynd­inn penni Mynd: Wikipedia/Skapti Hallgrímsson

Fyndn­asti vél­stjóri lands­ins, Anna Krist­jáns­dóttir slær á létta strengi í nýrri Facebook-færslu þar sem hún fjallar um við­brögðin við lög­reglu­að­gerð á Akureyri um helg­ina, þegar nokkrir ung­lings­piltar voru hand­teknir eftir að hafa sést með leik­fanga­byssur sem líkt­ust raun­veru­legum skot­vopnum, að sögn lög­reglu.

Anna seg­ist hafa skemmt sér yfir umræð­unni á sam­fé­lags­miðlum.

„Ég get ekki annað en hlegið að „Virkum í athuga­semdum“ sem fóru geist um netið í fyrra­kvöld í hneykslan sinni á ætl­uðum múslimum sem voru í byssu­leik á Akureyri,“ skrifar hún.

Hún bendir á að margir hafi jafn­framt rétt­lætt við­brögð lög­reglu og sér­sveit­ar­innar, en segir það hafa létt mörgum Akur­eyr­ingum þegar í ljós kom að pilt­arnir væru ekki heima­menn.

Þá beinir hún spjótum sínum í gam­an­sömum tón að versl­un­inni þar sem leik­fanga­byss­urnar voru keyptar.

„En hvað um vopna­sal­ann, þennan með útlenda nafnið „Kids Coolshop“ sem seldi drengj­unum byss­urnar? Er ekki hægt að ákæra hann fyrir sölu á ólög­legum vopnum úr því að byss­urnar voru svona líkar alvöru byssum?“

Í færsl­unni rifjar Anna einnig upp æskuár sín þegar byssu­leikir voru algengir meðal barna.

„Í mínu ung­dæmi var eng­inn strákur maður með mönnum nema eiga heilt vopna­búr með knal­lettu­byssum, byssu­hulstrum og kábojhöttum,“ skrifar hún og lýsir því hvernig „kábojar“, „indjánar“ og „bófar“ hafi háð harðar orr­ustur í leik.

Loks segir hún frá atviki á Tenerife á tímum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Þegar örygg­is­vörður mið­aði hita­mæli að höfði hennar við inn­gang mat­vöru­versl­unar ákvað hún að bregð­ast við eins og í gömlum kúreka­leik.

„Rétt eins og í alvöru káboj og indjána­leikjum í gamla daga, hlýddi ég og féll til jarðar,“ skrifar hún og segir við­stadda hafa hlegið dátt, þótt örygg­is­vörð­ur­inn hafi síður séð spaugi­legu hlið­ina á upp­á­tæk­inu.

„Örygg­is­vörð­ur­inn sem hefur senni­lega átt and­legar ættir að rekja til Akur­eyrar og þekkti ekki svona káboj­leiki, átti hins­vegar erfitt með að fyr­ir­gefa mér og það leið langur tími uns hann tók mig í sátt aftur. Hann reyndi ekki að miða á mig með hita­byss­unni aftur, óvit­andi hverju ég gæti tekið upp á næst er ég kæmi í búð­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina