Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þórarinn var lífshættulega háður ópíóðum

„Það er ekk­ert sem læknar þetta alveg“

Þórarinn var lífshættulega háður ópíóðum
Þórarinn Ævarsson Hefur stýrt stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins

Þórarinn Ævarsson, fyrr­ver­andi for­stjóri IKEA og Domino's á Íslandi, telur að hæg­lát bylt­ing sé að eiga sér stað í íslensku sam­fé­lagi þar sem sífellt fleiri dragi úr efn­is­hyggju og leiti inn á við. Hann segir hug­víkk­andi efni hafa átt þátt í þeirri þróun hjá mörgum.

Þórarinn er nýjasti gestur Sölva Tryggva­sonar í hlað­varpi hans. Þar ræðir hann meðal ann­ars eigin reynslu af kanna­bis­olíu, sem hann seg­ist hafa notað til að draga úr lang­vinnum verkjum og bæta svefn.

„Ég er búinn að glíma við króníska verki í tals­verðan tíma og hef leitað allra leiða til að finna lausnir. Það er ekk­ert sem læknar þetta alveg, en kanna­bis hefur reynst mér frá­bær­lega til að slá á verki og hjálpa við svefn og hvíld,“ segir Þórarinn.

Hann seg­ist áður hafa orðið lífs­hættu­lega háður ópíóðum og vilji ekki fara aftur þá leið. Hann telur jafn­framt tíma­bært að ræða kanna­bis og önnur hug­víkk­andi efni af meiri yfir­vegun og minni for­dómum.

Þórarinn tekur þó fram að hann sé ekki að upp­hefja kanna­bis og segir nei­kvæðar hliðar fylgja notkun þess, sér­stak­lega meðal ungs fólks. Hann telur engu að síður að lög­leið­ing gæti haft jákvæð áhrif, meðal ann­ars með því að færa sölu frá ólög­legum mark­aði og auð­velda stjórn­völdum að tak­marka aðgengi ungs fólks.

Þórarinn segir eigin við­horf hafa tekið miklum breyt­ingum. Áður hafi hann dæmt fólk sem neytti kanna­bis en sjálfur drukkið áfengi án þess að velta því sér­stak­lega fyrir sér.

„Ég er sann­færður um að það sé hæg­lát bylt­ing í gangi þar sem stór hópur fólks er að skipta um takt og tengj­ast sjálfu sér og öðrum,“ segir hann.

Að hans mati hefur mikil efn­is­hyggja og sam­an­burður ein­kennt íslenskt sam­fé­lag lengi. Hröð efna­hags­leg upp­bygg­ing hafi skilað miklum lífs­gæðum en jafn­framt haft ákveð­inn fórn­ar­kostnað. Hann nefnir streitu, van­líðan, lífs­stíls­sjúk­dóma og tengsla­rof í því sam­hengi.

Þórarinn tengir þessa þróun einnig við eigin lífs­reynslu. Hann hafi alist upp við lítil efn­is­leg gæði og því lagt mikla áherslu á að afla pen­inga og ná árangri. Síðar hafi hann þurft að end­ur­meta for­gangs­röðun sína eftir erfið veik­indi og van­líðan.

„Við erum upp til hópa orðin mjög aftengd án þess að gera okkur grein fyrir því og höfum oft á tíðum misst sjónar af því sem raun­veru­lega skiptir máli í líf­inu,“ segir Þórarinn og nefnir þar fjöl­skyldu, vini og sam­skipti við annað fólk.

Hann segir bar­áttu sína við þung­lyndi og lyfjafíkn hafa orðið til þess að hann ákvað að ræða reynslu sína opin­ber­lega. Við­brögðin hafi sýnt honum hversu margir glími við van­líðan og langvar­andi verki án þess að hafa fundið lausnir sem henti þeim.

Þórarinn segir það hafa verið mik­il­væg­asta verk­efni lífs síns að vinna sig út úr þung­lyndi og lyfjafíkn og verða aftur til staðar fyrir fjöl­skyldu sína. Telur hann mik­il­vægt að fólk sem hafi fundið leiðir sem geti mögu­lega hjálpað öðrum þori að segja frá reynslu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina