Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Stærstu breytingar í sögu fríhafnarinnar

Ný vöru­merki sem fást ein­göngu á Íslandi

Stærstu breytingar í sögu fríhafnarinnar

Viða­mestu breyt­ingar sem gerðar hafa verið á frí­hafn­ar­verslun á Kefla­vík­ur­flug­velli segir í frétta­til­kynn­ingu frá frí­höfn­inni.

Þar má nefna:

  • Ein stærsta fjár­fest­ing í ferða­þjón­ustu­verslun á Íslandi
  • Að minnsta kosti 30% íslensk vöru­merki
  • Yfir 370 m² til­eink­aðir íslenskum vörum
  • Staf­rænar nýj­ungar og gagn­virkar lausnir
  • Sjálf­bærni í hönnun

ÍSLAND Duty Free, íslenskt dótt­ur­fé­lag Gebr. Hein­em­ann, hefur lokið end­ur­bótum og end­ur­nýjað að fullu frí­hafn­ar­versl­an­irnar á Kefla­vík­ur­flug­velli (KEF). End­ur­hönn­unin hefur staðið yfir frá því Gebr. Hein­em­ann tók við rekstri frí­hafn­ar­versl­an­anna vorið 2025.

Versl­an­irnar voru opn­aðar form­lega með við­hafn­ar­at­höfn og borða­klipp­ingu mið­viku­dag­inn 9. sept­em­ber 2026. Fjöl­margir gestir mættu til fagn­að­ar­ins, þar á meðal full­trúar ÍSLAND Duty Free og Isavia.

Ein stærsta fjárfesting í ferðaþjónustuverslun hingað til

Gebr. Hein­em­ann rekur þrjár versl­anir á Kefla­vík­ur­flug­velli: brott­far­ar­verslun (um 1.600 m²), komu­verslun (um 2.000 m²) og verslun við brott­far­ar­hlið. Lögð er áhersla á jákvæða upp­lifun við­skipta­vina sem felst meðal ann­ars í góðu aðgengi og þæg­indum fyrir við­skipta­vini. Þá er lögð rík áhersla á fjöl­breytt vöru­úr­val í helstu vöru­flokkum eins og ilm­vötnum og snyrti­vörum, áfengi, sæl­gæti, tóbaki, og tísku- og lífs­stílsvörum.

Á bil­inu 120 til 160 starfs­menn starfa hjá Ísland Duty Free, allt eftir árs­tíma og álagi. Kostn­aður við versl­an­irnar þrjár nam meira en 1,5 millj­arði króna en breyt­ing­arnar og end­ur­hönn­unin eru þær viða­mestu sem gerðar hafa verið á frí­hafn­ar­verslun á Kefla­vík­ur­flug­velli frá upp­hafi og ein stærsta fjár­fest­ing í ferða­þjón­ustu­verslun á Íslandi á síð­ari árum.

Íslenskar vörur í öndvegi

Hönn­un­inni á versl­unum er ætlað að skapa ósvikna íslenska upp­lifun. Að minnsta kosti 30% allra vöru­merkja í versl­unum Ísland Duty Free eru íslensk og meira en 370 m² af versl­un­ar­rými eru til­eink­aðir íslenskum vörum, íslenskri frá­sagn­ar­list og upp­lifun af íslenskum vöru­merkjum. Arki­tektúr, efn­is­val og vöru­úr­val var unnið í sam­vinnu við Basalt arki­tekta, eina af þekkt­ustu arki­tekta- og hönn­un­ar­stofu Íslands. og end­ur­spegla íslensku þjóð­arsál­ina á sama tíma og þörfum alþjóð­legra far­þega er mætt. Í miðju versl­un­ar­innar er sér­stakt svæði til­einkað íslenskum vöru­merkjum í sér­hönn­uðu umhverfi.

Þá hafa verið sett upp svæði þar sem íslenskir hönn­uðir og fram­leið­endur geta kynnt vörur sínar. Mark­miðið er að veita inn­lendum fram­leið­endum tæki­færi til að tengj­ast alþjóð­legum ferða­mönnum og styrkja sýni­leika íslenskrar nýsköp­unar, hand­verks og frum­kvöðla­starfs. Ferða­langar finna þannig þekkt íslensk nöfn á borð við Blue Lagoon Skin Science, BIOEFFECT, Nóa Síríus, Freyju, Saltverk, Circolo og Fischersund við hlið leið­andi alþjóð­legra vöru­merkja eins og Sol de Janeiro, Maison Margiela, Summer Fridays, KESS, Parfums de Marly, Byredo, Diptyque, Tom Ford, Kér­astase, Jo Malone London og LANEIGE í snyrti­vörum og Neuhaus, Venchi, Sum­mer­bird, Godiva, Biscoff, Barebells, Ritter Sport og M&M's í sæl­gæti. Áfeng­is­úr­valið spannar allt frá íslensku hand­verks­brenni­víni til heims­þekktra alþjóð­legra fram­leið­enda.

Í fyrsta skipti eru vöru­merki eins Kess, Byredo, Creed, Fugazzi Fragrances, Initio Parfums Privés, Kilian, Parfums de Marly, Xerjoff, Babor, Isntree, Venchi, Sum­mer­bird, Henriot og Louis Bouillot til sölu á Íslandi og fást þau ein­göngu í versl­unum Ísland Duty Free.

Stafræn nýsköpun og gagnvirkni

Í versl­unum er lögð áhersla á gagn­virkar lausnir eins og svo­kall­aða „lyftu og lærðu“ tækni (lift and learn) sem virkar þannig að þegar vara er tekin úr hillu birt­ast upp­lýs­ingar og áhuga­verðar sögur á skjá sem auð­veldar við­skipa­vinum að bera saman vöru­teg­undir og veitir þeim frek­ari upp­lýs­ingar um vör­una. Í versl­unum er einnig að finna sjálfs- og snjall­síma­af­greiðslu, staf­ræna hillu­miða og staf­rænar verð- og toll­kvóta­leið­bein­ingar.

Í komu­verslun er lögð áhersla á hraða, skil­virkni og sparnað. Meðal nýj­unga þar er fær­an­legur smakk­bar fyrir sæl­gæti, sér­stök „Rauð svæði“ (Red Zones) sem auð­veldar aðgang að inn­lendum og alþjóð­legum til­boðum, snyrti­vöru­ráð­gjöf og staður til þess að taka sjálfu sem lista­mað­ur­inn Juan Arctic hann­aði.

Þá er boðið upp á svo­kallað „Click & Collect“ (smella & sækja) og „Reserve & Collect“ (panta & sækja) á vef­síðu Ísland Duty Free og í versl­unum má finna gagn­virk tæki sem aðstoða við að finna vörur og verð. Að auki gefst fólki tæki­færi til að skrá sig í vild­ar­fé­lag Ísland Duty Free sem býður upp á sér­stök til­boð og verð fyrir með­limi, ekki bara á Íslandi heldur í öllum frí­hafn­ar­versl­unum sem Gebr. Hein­em­ann rekur sem og til­boð á hót­elgist­ingu og bíla­leigu­bílum svo eitt­hvað sé nefnt.

Notast við endurunnið plast úr sjónum

Lögð var áhersla á sjálf­bærni í allri hönnun og fram­setn­ingu. Þannig var end­ur­unnið efni nýtt í miklum mæli. Sem dæmi þá eru inn­rétt­ing­arnar frá spænska fyr­ir­tæk­inu Nagami sem sér­hæfir sig í fram­leiðslu með þrí­vídd­ar­prentun úr end­urunnu plasti sem að hluta til er fengið úr sjó. Þá er vegg­fóðrið í versl­unum frá Omexco MINERALS en það er unnið úr end­urunnum pappír og fínu glimmeri. Að auki er lýs­ingin orku­spar­andi og hillu­mið­arnir eru staf­rænir. Í versl­un­unum er svo Dopper-vatns­stöð þar sem fólk fær ókeypis áfyll­ingu af fersku krana­vatni sem styður við hringrás­ar­hag­kerfið frá degi til dags. Dopper-vatns­stöðin var sett upp í sam­vinnu við ISAVIA.

Mikilvægur áfangi fyrir Keflavíkurflugvöll

„Með opnun ÍSLAND Duty Free hefjum við nýjan kafla í nor­rænni ferða­þjón­ustu­verslun hér í Keflavík. Við erum afar ánægð með það traust sem Isavia hefur sýnt okkur og höfum fjár­fest veru­lega í versl­un­unum til að bjóða ferða­mönnum upp á upp­lifun sem er ætlað að vera jafn ein­stök og Ísland sjálft. Versl­an­irnar á Kefla­vík­ur­flug­velli eru mjög stefnu­mark­andi fyrir okkur því með þessu verk­efni sýnum við hvernig næsta kyn­slóð ferða­þjón­ustu­versl­unar getur litið út þar sem áhersla er lögð á djúp­stæðar rætur sam­fé­lags­ins og staf­ræna upp­lifun sem er hönnuð með þarfir nútíma­ferða­langs­ins í huga,“ segir Max Hein­em­ann, annar af for­stjórum Gebr. Hein­em­ann, í til­efni af end­ur­opn­un­inni.

Svein­björn Ind­riða­son for­stjóri Isavia fagnar sam­starf­inu og segir það mik­il­vægan áfanga fyrir Kefla­vík­ur­flug­völl: „Sú upp­lifun sem við bjóðum uppá á Kefla­vík­ur­flug­velli skiptir miklu máli þar sem flug­völl­ur­inn er tengin okkar við umheim­inn. Fjöl­breytt og gott vöru­úr­val í frí­hafn­ar­versl­un­inni gegnir þar lyk­il­hlut­verki og gerir flug­völl­inn sam­keppn­is­hæf­ari. Hein­em­ann býr yfir mik­illi þekk­ingu og sér­fræði­kunn­áttu á þessu sviði og við hlökkum til að bæta upp­lifun far­þega enn frekar. Um leið sköpum við verð­mæti fyrir íslensk vöru­merki og landið allt.“

Jens Wolf, sölu­stjóri hjá Gebr. Hein­em­ann, segir nýju ásýnd­ina vera afrakstur náins sam­starfs við birgja Gebr. Hein­em­ann. „Þeir tóku fram­tíð­ar­sýn okkar fagn­andi strax í upp­hafi og með því að blanda saman sterkum íslenskum vörum og leið­andi alþjóð­legum vöru­merkjum höfum við skapað úrval sem er bæði mjög íslenskt en um leið á heims­mæli­kvarða. Þessi blanda er nákvæm­lega það sem ferða­menn eru að leita að og hún gefur sam­starfs­að­ilum okkar frá­bæran vett­vang til að kynna vöru­merki sín.“

Um samstarfið

Sér­leyfið var veitt í kjöl­far alþjóð­legs útboðs­ferlis og markar lang­tíma­sam­starf á milli Isavia og Hein­em­ann Travel Retail Iceland ehf. Hug­mynda­fræðin var fram­kvæmd í sam­starfi við hóp inn­lendra aðila: Basalt arki­tekta (hönnun), Mannverk (aðal­verk­taki), Brand­en­burg (mark­aðs­mál), Pipar\TBWA (almanna­tengsl) og XPrent (2D kynn­ing­ar­efni/prentun).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti