Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Glæpamenn ætluðu að hittast á þekktum veitingastað í miðborginni

Málið á rætur að rekja til 7. mars 2023 þegar lög­regla stöðv­aði bif­reið við almennt eft­ir­lit

Glæpamenn ætluðu að hittast á þekktum veitingastað í miðborginni
Fólk í miðbæ Reykja­víkur Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Stjórnarráðið/Hari

Tveir ein­stak­lingar hafa verið dæmdir í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir pen­inga­þvætti eftir að lög­regla fann sam­tals 23.845 evrur, sem eru rúmar þrjár millj­ónir króna, í reiðufé í far­angri þeirra hér á landi. Hluti rann­sókn­ar­innar sner­ist meðal ann­ars um sam­skipti þar sem annar þeirra mælt­ist til þess að fá pen­inga afhenta á veit­inga­staðnum Duck and Rose í mið­borg Reykja­víkur.

William Ankrah Marcha var dæmdur í fimm mán­aða fang­elsi og Kade Diallo í þrjá mán­uði. Refs­ingar þeirra voru skil­orðs­bundnar til tveggja ára. Þá voru 23.845 evr­urnar gerðar upp­tækar ásamt vöxtum og verð­bótum.

Málið á rætur að rekja til 7. mars 2023 þegar lög­regla stöðv­aði bif­reið við almennt eft­ir­lit á Ásbrú í Reykja­nesbæ. William og Kade voru far­þegar í bif­reið­inni og voru þau ásamt öðrum flutt á lög­reglu­stöð. Við leit fund­ust 16.845 evrur í hand­tösku og ferða­tösku Kade en 7.000 evrur í ferða­tösku William. Hluti pen­ing­anna var fal­inn í jakka og hluti í vösum á galla­buxum.

Við rann­sókn á far­símum William komu fram sam­skipti sem vöktu athygli lög­reglu. Þann 7. mars sendi hann skila­boð á síma­númer sem var vistað undir nafni ann­ars manns í síma hans og spurði hvort við­kom­andi gæti komið með pen­ing­ana til hans. Maðurinn kvaðst geta það og mæltu þeir sér mót á veit­inga­staðnum Duck and Rose í mið­borg Reykja­víkur. Í öðrum sam­skiptum í sím­anum var meðal ann­ars rætt um pen­inga og fíkni­efni og þar fund­ust einnig mynd­bönd þar sem mari­júana sást.

William sagði fyrir dómi að mað­ur­inn sem hann ætl­aði að hitta hefði verið vinur hans. Hann hefði keypt af honum kanna­bis og greitt fyrir það en mað­ur­inn ætti eftir að gefa honum til baka. Dómurinn taldi skýr­ingu hans á skila­boð­unum afar ótrú­verð­uga.

Fram­burður Williams og Kade um upp­runa og eign­ar­hald pen­ing­anna breytt­ist ítrekað við rann­sókn máls­ins. Meðal ann­ars komu fram mis­mun­andi skýr­ingar um hvort um væri að ræða sparifé, vinnu­laun eða sam­eig­in­legt fé þeirra. Dómurinn taldi fram­burð þeirra rugl­ings­legan og ótrú­verð­ugan. Þá þótti afar ósenni­legt að William hefði ferð­ast til Íslands með fjár­hæð sem nam nærri árs­launum hans.

Dómurinn taldi einnig að það hvernig pen­ing­unum hafði verið komið fyrir í far­angrinum benti til þess að reynt hefði verið að fela þá. Engar hald­bærar skýr­ingar hefðu komið fram um upp­runa fjár­mun­anna og var talið sannað að þeir væru ávinn­ingur af refsi­verðum brotum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ