Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Ragnar Agn­ars­son, fyrr­ver­andi for­stjóri, opnar sig um erf­ið­leika lífs­ins

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“
Ragnar Agn­ars­son Mynd: Skjáskot

Ragnar Agn­ars­son, fyrr­ver­andi for­stjóri og einn eig­enda SagaFilm, segir krabba­meins­grein­ingu hafa gjör­breytt sýn sinni á lífið og kennt sér að lifa upp á nýtt. Ragnar er nýjasti gestur hlað­varps Sölva Tryggva­sonar þar sem hann ræðir opin­skátt um veik­indin, erf­iðar með­ferðir og þá lífs­reynslu sem fylgdi í kjöl­farið.

Ragnar segir breyt­ingar á lífs­sýn sinni hafa haf­ist nokkrum árum áður en hann greind­ist. Árið 2019 fór hann meðal ann­ars í Ayahuasca ferð til Perú, sem hann lýsir sem ákveðnum vendi­punkti. Upp­haf­lega hafi ætl­unin verið að verða betri í við­skiptum og að afla tekna, en upp­lifunin hafi orðið allt önnur og ýtt honum út í mikla sjálfs­skoðun.

Stærsti vendi­punkt­ur­inn kom þó þegar Ragnar greind­ist með krabba­mein. Hann hafði fundið fyrir óþæg­indum í hálsi og leit­aði til læknis án þess að gera ráð fyrir að eitt­hvað alvar­legt væri að. Í kjöl­far rann­sókna fékk hann þær fréttir að um krabba­mein væri að ræða.

Ragnar segir grein­ing­una hafa orðið til þess að hann end­ur­meti líf sitt frá grunni. Hann hafi áttað sig á því að hann hefði um ára­bil verið á stöðugri ferð án þess að staldra við og njóta augna­bliks­ins.

„Því miður þurfti ég krabba­mein til að átta mig. En núna get ég sann­ar­lega sagt að þetta krabba­mein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Við tók mjög krefj­andi með­ferð­ar­ferli. Ragnar fór í 36 geisla­með­ferðir á hálsi auk sex lyfja­með­ferða. Hann segir íslenska heil­brigð­is­kerfið hafa tekið ein­stak­lega vel á móti sér og að hann hafi ákveðið að treysta hefð­bundnum krabba­meins­með­ferðum. Samhliða þeim seg­ist hann hafa notað THC og kanna­bis­olíu til að lina verki og bæta mat­ar­lyst og svefn, auk þess sem hann hafi tekið Ayahuasca í smá­skömmtum.

Með­ferð­irnar reynd­ust honum afar erf­iðar og seg­ist Ragnar á tíma­bili hafa íhugað að hætta bar­átt­unni. Umhyggja heil­brigð­is­starfs­fólks hafi hins vegar haft djúp­stæð áhrif á hann og styrkt ákvörðun hans um að halda áfram.

Í dag seg­ist Ragnar fyrst og fremst finna fyrir miklu þakk­læti. Hann líti svo á að veik­indin hafi neytt hann til að staldra við, kynn­ast sjálfum sér betur og end­ur­meta hvað skipti raun­veru­lega máli í líf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una