Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Illugi fyrirgefur ungum föður sixpensarann

Fjöl­miðla­mað­ur­inn opnar sig um for­dóma sína gegn six­pensurum

Illugi fyrirgefur ungum föður sixpensarann
Illugi Jök­uls­son Illuga er illa við six­pens­ara

Illugi Jök­uls­son seg­ist í Facebook-færslu í gam­an­sömum tón, hafa frá barn­æsku haft óbeit á six­pensurum og talið þá sem ganga með slíka hatta bæði vit­laus­ari og leið­in­legri en aðra menn. Hann brá þó út af van­anum eftir óvæntan fund við unga fjöl­skyldu fyrir utan Krónuna.

Illugi Jök­uls­son, fjöl­miðla­maður og rit­höf­undur, segir í Facebook-færslu að hann hafi aldrei þolað six­pens­ara og hafi frá því hann var strákur verið sann­færður um að karl­menn sem ganga með slíka hatta séu „yfir­leitt bæði vit­laus­ari og leið­in­legri en aðrir menn“.

Hann seg­ist ekki hafa minnstu hug­mynd um hvernig þessi skoðun hafi fest rætur í huga hans. Karl­arnir í sveit­inni sem gengu gjarnan með six­pens­ara hafi nefni­lega „sann­ar­lega flestallir [verið] ágætis kallar“ og eng­inn þeirra hafi gert honum neitt svo hann muni.

„En ekk­ert fékk haggað þess­ari skoðun minni,“ skrifar Illugi og bætir við að for­dóm­arnir hafi jafn­vel haft áhrif á sam­band hans við Hrafn bróður sinn heit­inn þegar sá síð­ar­nefndi tók upp á því að ganga með six­pens­ara.

Ljótur sixpensari fyrir utan Krónuna

Þegar Illugi kom út úr Krónunni á dög­unum rakst ungur maður með six­pens­ara næstum því utan í hann. Viðbrögð Illuga voru sam­kvæmt eigin lýs­ingu fyr­ir­sjá­an­leg.

„Þá bjó ég mig strax undir að hafa á honum mestu fyr­ir­litn­ingu,“ skrifar hann.

Ekki bætti úr skák að höf­uð­fat manns­ins var að hans mati sér­lega ljótt.

„Hann var með ljót­ustu sort af six­pens­ara á höfð­inu, stór­köflóttan og með upp­brettu deri, alveg ólýs­an­lega ljótt höf­uð­fat, það segi ég satt.“

Illugi við­ur­kennir að hafa hugsað með sér: „Hæfði þessum bjána vel.“

En þá tók sagan óvænta stefnu. Illugi átt­aði sig á því að ástæðan fyrir því að mað­ur­inn hafði næstum rek­ist utan í hann var sú að hann var að taka í hönd sjö ára sonar síns. Dreng­ur­inn hélt jafn­framt í hönd móður sinnar.

„Dreng­ur­inn skríkti yfir ein­hverju sem pabbi hans sagði og mamman brosti til mín,“ segir Illugi.

Fjöl­skyldan gekk síðan syngj­andi burt og breytti þar með við­horfi Illuga til unga manns­ins, að minnsta kosti að þessu sinni.

„Ég ákvað að fyr­ir­gefa unga mann­inum six­pensar­ann,“ skrifar Illugi að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina