„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“ Svavar Knútur Kristinsson
InnlentLífsháski á Vatnajökli: Snjóhús hlaðið til að bjarga helköldum göngumönnum17. júní 2022 Hóipur göngufólks á Vatnajökli var í háska þegar hópurinn villtist í gær eftir að gps-tæki fararstjóra missti samband. Um var að ræða 14 manna gönguhóp sem var að koma nioður af Hvannadalshnúk þegar hann lenti í villu í slæmu veðri og afleitu skyggni. Fyrstir til að finna hópinn voru vélsleðamenn sem komu að fólkinu um miðnætti. Tveir úr hópnum voru...
InnlentKári gerði ólöglegt lag – Segir útvarpsstjóra til syndanna fyrir að spila það ekki17. júní 2022 Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir Stefán Eiríksson útvarpsstjóra vera gungu fyrir að neita að spila ólöglega útsetningu á íslenska þjóðsöngnum í Ríkisútvarpinu. Kári segir þessa útsetningu runna undan hans rifjum. Allt þetta kemur fram í aðsendri grein hans í Fréttablaðinu þar sem hann lætur Stefán og RÚV hafa það óþvegið. Kári segir þessa vafasömu útsetningu vera eftir Þorstein Einarsson...
InnlentBanaslys á Suðurlandsvegi17. júní 2022 Karlmaður á sjötugsaldri lést í gær í banaslysi á Suðurlandsvegi þegar bíll hans lenti í árekstri við sendibifreið vestan Kúðafljóts. Maðurinn var erlendur ferðamaður á sjötugsaldri. Hann var úrskurðaður látinn á vettvangi síðdegis í gær. Eiginkona hans var flutt alvarlega slösuð með þyrlu til Reykjavíkur, að sögn lögreglunnar á Suðurlandi. Ökumaður sendibílsins, sem var einn á ferð, slapp þó með...
SlúðurGylfi ekki ákærður?17. júní 2022 Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður hefur gengið í gegnum hrikalega tíma eftir að hann var handtekinn fyrir meint kynferðisbrot. Tæpt ár er liðið síðan lögreglan í Manchester lét til skarar skríða gegn honum og sakaði hann um samneyti við ólögráða stúlku. Samstundis fór ferill hans í frost og hann var settur til hliðar hjá Everton. Öðru hvoru hafa komið yfirlýsingar frá...
MenningSolla Stirða og Jóhann Berg fótboltamaður gengu í það heilaga16. júní 2022 Jóhann Berg Guðmundsson og Hólmfríður Björnsdóttir gengu í það í heilaga í dag á Spáni við hátíðlega athöfn. Hinn góðkunni söngvari Eyjólfur Kristjánsson tók lagið og var mikil stemmning á gestunum í blíðskaparveðri. Mynd skjáskot/Instagram Jóhann fór á skeljarnar árið 2018, þremur vikum fyrir leik Íslands við Rússland. Hjónin eiga tvö börn saman. Hólmfríður Björnsdóttir er lögfræðingur, en hún er...
Innlent„Bjór með blóðbragði“ – Bjórinn hans Björgólfs og mafían16. júní 2022 „Bjór með blóðbragði“ var ein af fyrirsögnum greinar sem birtist í danska blaðinu Ekstra Bladet þann 1. nóvember árið 2006. Umfjöllunarefni greinarinnar voru viðskiptaumsvif Björgólfsfeðga, Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar, í Rússlandi og tenging uppbyggingar þeirra við blóðug mafíuátök þar í landi. Athygli vekur að greinin í Ekstra Bladet kemur út heilum tveimur árum fyrir efnahagshrunið, en hún var...
InnlentElías missti af skipi sínu og það fórst: „Svakalegt áfall fyrir mig og náttúrlega allt samfélagið“16. júní 2022 „Ég slapp ótrúlega vel einu sinni; öll skipshöfnin mín fórst,“ segir Elías Svavar Kristinsson í viðtali við Reyni Traustason þar sem þeir koma víða við. „Það var nú þannig að ég var á loðnu þegar þetta var. Ég hafði verið stýrimaður á báti þarna á Eskifirði sem hét Hafaldan. Það voru góðir menn og miklir vinir mínir sem áttu þann...
InnlentBændasamtökin ósátt við að fella niður tolla á vörum frá Úkraínu: „Neikvæð áhrif á íslenskar vörur“16. júní 2022 Stjórnarfrumvarp um niðurfellingu tolla á vörur sem upprunnar eru í Úkraínu var samþykkt á Alþingi í gær. Í umsögnum um frumvarpið var að finna umsögn frá Bændasamtökum Íslands. „Í ljósi erfiðrar stöðu í íslenskum landbúnaði sökum gríðarlegra hækkana á aðföngum hafa samtökin eðlilega áhyggjur af því hvaða áhrif innflutningurinn kann að hafa á félagsmenn.“ Þar segjast samtökin meta það svo...
InnlentBrugghúsdagurinn – sala áfengis heimiluð frá framleiðslustað: „Breytingar í takt við nýja tíma“16. júní 2022 „Það er stundum sagt að dropinn holi steininn og ég held að það eigi alveg sérstaklega við í þessu máli. Hér eru tímamót í þessum málum og ég vil fagna því alveg sérstaklega hvað það er mikil samstaða um þessar breytingar í þinginu,“ segir Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra, við atkvæðagreiðsluna. Brugghúsdagurinn Bruggarar eru himinlifandi með áfangann en vona að þetta sé...
InnlentSkilnaðarferlið auðveldað: „Stórt réttlætismál fyrir fólk sem býr við viðkvæmar aðstæður“16. júní 2022 Í gær samþykkti Alþingi einróma frumvarp sem auðveldar skilnaðarferlið fyrir fólk sem hefur orðið fyrir ofbeldi af hálfu maka síns eða býr á heimili þar sem barn hefur verið beitt ofbeldi. Í frumvarpinu felst líka að hjón sem eru sammála um að slíta hjúskap geta fengið skilnað án undangengins skilnaðar að borði og sæng. „Það er eðlilegt frelsismál enda á...
InnlentNý lög-Foreldrar sem missa barn tryggður réttur til sorgarleyfis: „Mamma leiddi mig í gegnum allt“16. júní 2022 Frumvarp um sorgarleyfi var samþykkt einróma við þinglok í gær og er nú orðið að lögum. Lögin tryggja foreldrum sem missa barn sitt leyfi frá störfum auk þess sem þeir fá greiðslur til að koma til móts við tekjutap. Karólína Helga Símonardóttir, stjórnarformaður Sorgarmiðstöðarinnar kom í viðtal hjá Mannlífi fyrir skemmstu þar sem hún sagði frá sinni sögu og hvað...
InnlentKörfuboltakonan lýsir heimsókn eftir tapleik gegn Keflavík: „Little black nigger bitch“16. júní 2022 Árið 2017 tapaði kvennalið Skallagríms í körfuknattleik nokkuð stórt í fimmta leik í úrslitakeppninni gegn Keflavík. Eftir leikinn fékk lykilleikmaður Skallagríms heimsókn frá Ámunda Sigurðssyni, fyrrverandi lögreglumanni, sem þá var formaður meistaraflokksráðs kvenna. Með honum í för var Ásmundur Einar Daðason, ráðherra, sem þá var formaður kvennaráðs Skallagríms. Heimsóknin var engin kurteisisheimsókn en þar var hún sökuð um að hafa...
InnlentUmfangsmesta dýravelferðarmál Íslands – „Engar upplýsingar um hvort bóndinn er kominn til starfa“16. júní 2022 Eitt umfangsmesta og alvarlegasta dýravelferðarmál sem komið hefur upp hér á landi, er enn til rannsóknar hjá lögreglunni á Vesturlandi. Þetta staðfesti Jón Sigurður Ólason, lögreglustjóri á Vesturlandi, í samskiptum við blaðamann Mannlífs í dag. „Það er í rannsókn og verið að afla gagna.“ Líkt og Mannlíf greindi frá fyrr á árinu, kærði Matvælastofnun málið til lögreglu í febrúar síðastliðnum,...
InnlentStjórnvöld hafna inngripi vegna hækkana – „Verið að grípa til aðgerða allt í kringum okkur“16. júní 2022 Verð á bensíni er víða komið yfir 350 kr. á lítrinn í kjölfar gegndarlausra hækkana síðastliðna mánuði. Í samtali við Mannlíf segir Runólfur Ólafsson, formaður FÍB: „Við höfum aldrei séð svona verð áður, þess vegna erum við að sjá þessi viðbrögð hjá stjórnvöldum í nágrannalöndunum. Það er verið að grípa til aðgerða allt í kringum okkur.“ Í mars síðastliðnum þrýsti...
InnlentSæunn er afar ósátt við Seðlabanka Íslands: „Fyrstu kaupendur eru ekki vandamálið“16. júní 2022 Sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að lækka veðsetningarhlutfall á fyrstu kaupendur á fasteignamarkaði úr 90% í 85% hefur sætt mikillar gagnrýni í samfélaginu, sem má sjá á samfélagsmiðlum sem og í pistlagreinum blaðanna. Sæunn I. Marínósdóttir viðskiptafræðingur bjó til þráð á Twitter-reikningi sínum þar sem hún gagnrýnir Seðlabankann harðlega. Segir hún hvorki fyrstu kaupendur né verðtrygginguna vera vandmálið. Sæunn gaf Mannlífi...
LandiðBæjarfulltrúi Miðflokksins reiður út í VG og Austurlistann: „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“16. júní 2022 Bæjarfulltrúi Miðflokksins í Múlaþingi, Þröstur Jónsson, er óánægður með að ekkert samráð hafi verið við flokkinn er aðrir listar í minnihluta sveitastjórn Múlaþings skiptu með sér fulltrúum í nefndum. Austurlistinn og Vinstrihreyfingin – grænt framboð fengu alla fulltrúana sem í boði var fyrir minnihlutann, Miðflokkurinn engan. Sagt er frá málinu á Austurfrétt. „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð og ekki til þess...