Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Elías missti af skipi sínu og það fórst: „Svakalegt áfall fyrir mig og náttúrlega allt samfélagið“

Elías Kristinsson sjómaður.|Eva
Elías Krist­ins­son sjó­maður.|Eva

„Ég slapp ótrúlega vel einu sinni; öll skips­höfnin mín fórst,“ segir Elías Svavar Kristinsson í viðtali við Reyni Traustason þar sem þeir koma víða við. „Það var nú þannig að ég var á loðnu þegar þetta var. Ég hafði verið stýri­maður á báti þarna á Eskifirði sem hét Hafaldan. Það voru góðir menn og miklir vinir mínir sem áttu þann bát; þetta var um 150 tonna bátur. Svo seldu þeir hann og keyptu minni bát. Þetta var í apríl og loðnu­vertíðin að hætta og þá voru bátarnir oft bundnir; það voru engin önnur verkefni. Þeir vissu að ég væri á lausu og höfðu strax samband við mig og ég fór með þeim um borð og var með þeim tvo til þrjá túra. Svo kom 10 daga páska­stopp og þeir ámálguðu að ég kæmi og ég sagði að það væru allar líkur á því; ég hefði ekkert annað að gera. Nema það að í páska­stoppinu hringdi Arnbjörn, skip­stjóri á Hólma­tindi, og bað mig um að koma á Hólmatind. Ég sagðist vera búinn að lofa þeim en hann sagði að við yrðum löngu komnir þá. En svo varð það bara ekki þannig. Þegar við vorum komnir í land þá voru þeir farnir og komnir á net við Ingólfs­höfða. Þannig að ég fór bara annan túr. Ég held það hafi verið í þeim túr að hann fórst með manni og mús þessi bátur; hét Hrönn. Ég held það hafi verið sex um borð.“

Þetta var svaka­legt áfall fyrir mig og nátt­úr­lega allt sam­fé­lagið.

Svona er stutt á milli lífs og dauða.

„Já, þetta er tilviljun. Þetta er svo ótrúleg tilviljun. Hann fórst inni í Reyðar­firði. Það var vitlaust veður.

Þetta var svakalegt áfall fyrir mig og nátt­úrlega allt samfélagið. Þetta voru einstakir menn; alveg ótrúlega fínir menn og vinir manns.“

Hringormar

Elías Svavar Kristinsson fæddist á Seljanesi og var þriggja ára þegar flutt var á Dranga. Hann er búinn að vera sjómaður frá því hann var um tvítugt.

„Ég var að vinna á slippnum á Akureyri að læra ketil- og plötu­smíði. Ég var blankur; ég var í iðnskólanum og fór túr á togara. Þeir urðu nokkrir; svo fór ég vestur á Ísafjörð.“

Lentir þú í einhverjum ævintýrum á sjónum?

„Já, fjölda mörgum ævintýrum.“

Hvað stendur upp úr þegar þú lítur um öxl; hvar var mesta hættan og hvar var mesta gleðin?

„Ég var í Norðursjónum og það var mikil gleði þega við komumst í land þar; lönduðum í Danmörku. Svo vorum við fasta­gestir í Leirvík á Hjalt­landi. Það var talsvert mikil gleði þar. Heima­mönnum fannst það heldur mikið.“

Já, það var svo­lítið sleg­ist. Mikið drukkið.

Voruð þið fyrirferðar­miklir, Íslendingarnir?

„Já, frekar. Og það voru allra þjóða kvikindi, Rússar og Norðmenn.“

Mikið drukkið og slegist?

„Já, það var svolítið slegist. Mikið drukkið.“

Elías kláraði náms­tímann hvað varðar plötu­smíðina en hann kláraði aldrei iðnskólann. „Ég tók aldrei prófið.“

Hann fann sig á sjónum.

„Svo þvældist ég austur á land og var á síldar­skipum þar í Norðursjónum og aðeins á togara; Hólma­tindi,“ segir Elías en hann var búinn að nefna Hólmatind áður. „Það var fyrsti togari sem var keyptur til landsins og ég var þar. Skut­togari. Svo fór ég í Stýrimanna­skólann. Tók fyrsta bekk og svo annan bekk 12 árum seinna.“

Hvernig stóð á því?

„Maður var bara að búa og basla með börn og var blankur. Þetta var bara þannig. Ég starfaði samt sem stýri­maður mestan þann tíma. Á undanþágu. Svo var farið að taka fyrir þær og þá fór ég í Stýrimanna­skólann í Vestmanna­eyjum.“

Og ég er alveg viss um að ég hafi líka fengið þetta.

Talið berst að hringormi; að manni sem smitaðist.

„Já, það var einn sem gerði það. Reyndar held ég að ég hafi smitast líka. Ég var alveg að drepast lengi. Við vorum að éta hrogn; sprautuðum þeim ofan í glas. Tókum hrá hrogn og sumir settu kanel út í þetta og átu þetta. Ég fékk mikla kviðverki sem ég fékk aldrei skýringu á. Og ég er alveg viss um að ég hafi líka fengið þetta. Svo fatta þessir ormar að þeir eiga ekki heima þarna og skríða annaðhvort niður úr manni eða upp úr. Það er annað hvort.“

Það hlýtur að vera svakalegt að fá þetta upp úr sér.

„Já, menn hafa vaknað við þetta. Þetta er alþekkt,“ segir Elías og segir að tilfellum hafi fjölgað um helming frá því að fólk byrjaði að borða sushi.

Fá aldrei nóg

Elías er á strand­veiðum. Er ekkert vit í þessu?

„Það er ekkert vit í þessu; það er alveg satt. Útgerðar­aðilarnir tala um fyrirsjáanleika. Þeir segja að kvóta­kerfið verði að hafa fyrirsjáanleika. Við höfum akkúrat engan fyrirsjáanleika. Sjávar­útvegs­ráðherrann gefur kannski út kvóta tveimur dögum áður en veiðar byrja.“

Heildar­kvóta. Og svo byrjar kapphlaup.

„Svo byrjar kapphlaup og kannski bætir hún við. Kristján bætti nú við í fyrra og bjargaði svona fram yfir miðjan ágúst. En við vitum ekki neitt.“

Þetta byrjar í maí og þið megið fara fjóra daga í viku nema þegar eru rauðir dagar og þið megið veiða hvað 800 kíló í róðaríi?

„770. Af óslægðu.“

Svo er þetta einn pottur þannig að það getur allt í einu verið stopp allt dótið.

„Eins og þetta lítur út núna þá verður stoppað í endaðan júlí.“

Það er alltaf verið að taka af þeim!

Þá er bara vertíðin búin.

„Já. Ef Svandís bætir ekki við. Ég hef enga trú á að hún geri það.“

Hefur þú ekki trú á Svandísi?

„Nei, ég hef ekki trú á henni. Ég hef bara enga trú á henni.“

Þetta eru umhverfis­vænar veiðar til þess að gera og þetta færir líf í sjávar­plássin. Hvernig myndir þú vilja sjá þetta?

„Ég myndi vilja láta bæta við þetta kerfi. Ég vil ekkert láta slátra stór­útgerðinni. En það er stundum þetta viðkvæði hjá þeim að það sé aldrei nóg hjá þeim. Fá aldrei nóg. Ef það er verið að taka einhvern afla og setja í þennan pott þá er verið að taka af þeim! Það er aldrei talað um þjóðina í þessu.“

Það stendur í lögunum að þetta sé sameign þjóðarinnar.

„Það er alltaf verið að taka af þeim! Stundum finnst mér þeir veruleika­firrtir en þeir vilja stundum ekki reyna að ná sátt við almenning. Til dæmis væri sáttin það að þeir létu frá sér einhvern kvóta svo menn gætu stundað færa­veiðar í kringum landið.“

Hvað er úthlutað miklum kvóta í dag á smábátana í kringum landið? Strand­veiðarnar?

„Þetta eru um 10.000 tonn.“

Mætti það ekki fara í 15.000 og menn væru sáttir?

„Jú, 15-20.000 tonn. 30.000 tonn. Hvað er það? Stór­útgerðir eru nokkrar útgerðir. Þetta eru yfirleitt sömu útgerðirnar. Þeir eru með loðnu­kvóta, þeir eru með makríl­kvóta, kolmuna­kvóta, síldar­kvóta, karfa og ufsa. Stór­útgerðirnar eru með allar fisk­tegundir. Við þurfum bara þorsk. Og við viljum ekkert taka síldina af þeim; þó það væri gaman að gera það. Og makrílinn.“

Það verður kannski seint að þeir bæti svona duglega við en það gæti mjatlast eitthvað.

„Það vantar bara sjávar­útvegs­ráðherra með bein í nefinu. Það er bara málið.“

Elías segist vera búinn að stunda þetta jafnvel í fimm sumur frá Norður­firði.

Þetta er besta sumarið.

„Verðið. Langbesta verðið.“

Er það út af stríðinu eða hvað er það sem veldur?

„Það er stríðið.“

Eins dauði er annars brauð.

„Það á að loka allan innflutning frá Rússum og þeir voru stórir í fiski og þeir eru að endurnýja allan sinn fiskiskipa­flota og verksmiðjur. Ofboðs­lega glæsileg skip.“

Framliðinn hundur

Á meðal þess sem Reynir og Elías tala um eru Dranga­skörð. Drauga­gangur þar.

„Ég hef reyndar aldrei séð draug þarna en ég dreg ekki tilvist drauga í efa ef það eru sannsöglir menn sem segja mér frá því. Mér dettur það ekki í hug.“

Elías segir söguna af draugi í skörðunum.

„Ég man ekki hver sagði mér þetta en hann var að sækja fólk sem labbaði úr Drangavík yfir að Dröngum; ætlaði bara að fara yfir skörðin. Hann var á báti og sá í Kálfs­gerði þrjá menn. Einn grænklæddur. Svo komu þeir niður og hann fór að huga að bátnum; skjóta út báti til að sækja þá á land. Svo þegar þeir voru komnir um borð þá spurði hann hvað hefði orðið um þann þriðja sem var með þeim. Þá var honum sagt að það hafi enginn verið með þeim.“

Við vitum ekki allt.

„Þetta var allavega sann­sögull maður sem sagði mér þetta.·

Svo er hundur þarna á þvælingi.

„Já, það er hundur þarna. Fram­liðinn hundur. Hann hefur oft sést.“

HÉR er hægt að sjá viðtalið í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá