Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

„Bjór með blóðbragði“ – Bjórinn hans Björgólfs og mafían

„Bjór með blóð­bragði“ var ein af fyrir­sögnum greinar sem birtist í danska blaðinu Ekstra Bladet þann 1. nóvember árið 2006. Umfjöllunar­efni greinarinnar voru viðskipta­umsvif Björgólfs­feðga, Björgólfs Guðmunds­sonar og Björgólfs Thors Björgólfs­sonar, í Rússlandi og tenging uppbyggingar þeirra við blóðug mafíuátök þar í landi.

Athygli vekur að greinin í Ekstra Bladet kemur út heilum tveimur árum fyrir efnahags­hrunið, en hún var liður í umfjöllunum um íslenska auðmenn og meint tengsl þeirra við spillingu og glæpi.

Björgólfs­feðgar höfðu auðgast vel á sölu Bravo-bjór­verkmiðju sinnar í Sankti Péturs­borg. Rússneska mafían hafði tögl og hagldir í ölgeiranum í Rússlandi og Ekstra Bladet sagði það furðu sæta að Björgólfs­feðgar og samstarfs­maður þeirra, Magnús Þorsteinsson, hafi sloppið þaðan auðugir menn. Sá síðarnefndi varð seinna aðal­eigandi Avion Group.

Í grein blaðsins var einnig fullyrt að Björgólfs­feðgar hafi verið undir verndar­væng Vladimir Pútíns, núverandi Rúss­lands­forseta og þáverandi aðstoðar­borgar­stjóra Sankti Péturs­borgar.

Leigumorð í nærumhverfi feðganna

Í sömu grein í Eksta Bladet er sagt frá blóðugum mafíu­átökum í kringum bjór­markaðinn í Sankti Péturs­borg, á þeim tíma þegar Björgólfs­feðgar voru að byggja þar upp veldi sitt. Dæmi um þau átök er leigu­morðið á þing­konunni Galinu Starovojtovu árið 1998 en hún var skotin í hnakkann fyrir utan heimili sitt. Ráðgjafi hennar greindi seinna frá því í réttarsal að skömmu áður en hún var myrt hafi aðilar á vegum Björgólfs Thors leitað til hennar og óskað eftir hjálp hennar vegna þvingana sem var verið að beita Bravo-verksmiðjuna. Samkvæmt Ekstra Bladet hafi tvö fyrirtæki viljað þvinga verksmiðjuna í viðskipti.

Ári seinna myrtu leigu­morðingjar Aslanbek Gallojev. Gollojev var tengdur Baltika-bjór­verksmiðjunni sem var helsti keppinautur Björgólfs­feðga á markaðnum á þessum tíma. Aðstoðar­forstjóri fyrir­tækisins, Ilja Weisman, var einnig myrtur árið 2000.

Fleiri höfðu sett spurninga­merki við hagnað feðganna í Rússlandi. Þannig skrifaði blaða­maðurinn Ian Griffiths grein í blaðið The Guardian þar sem hann fullyrti að viðskipta­umsvif Björgólfs­feðga væru byggð á rússneskum mafíu­peningum. Hann velti því upp hvernig það hafi gerst að Bravo-verksmiðja feðganna hafi rutt sér til rúms og gerst ráðandi á markaðnum. Í greininni fór hann yfir andlát samkeppnis­aðilanna sem báðir voru skotnir. Hann nefndi einnig annað brugghús sem hafi mætt skyndi­legum endalokum þegar það brann. Grunur hafi leikið á um íkveikju. Griffiths fullyrti í greininni að rússneska mafían hafi mikið skipt sér af brugg­húsunum í Sankti Péturs­borg, en borgin var þekkt fyrir að allt væri þar undir vökulu auga rússnesku mafíunnar.

Bravo-verksmiðjan náði afar sterkti stöðu á Rúss­lands­markaði. Þegar best lét hafði fyrir­tækið 25 prósenta markaðs­hlutdeild í Sankti Péturs­borg og sex prósent í öllu Rússlandi.

Árið 2002 keypti alþjóð­legi bjór­risinn Heineken brugg­verksmiðju feðganna. Við það tækifæri höfðu talsmenn Heineken á orði að ein af ástæðunum fyrir því að þeir hefðu viljað kaupa Bravo-verksmiðjuna hefði verið að hún væri ekki tengd rússnesku mafíunni. Björgólfs­feðgar tóku tilboði Heineken, sem hljóðaði upp á fjögur hundruð milljónir dollara.

Björgólfur Thor hefur alltaf þvertekið fyrir tengsl við rússnesku mafíuna og sagði til að mynda í viðtali við Morgun­blaðið árið 2000: „[…]við höfum getað gert þetta án þess að þiggja hjálp frá óprúttnum náungum.“

Skýrsla og Kastljós

Árið 2011 fjallaði Kastljós um skýrslu Kroll, þar sem því var haldið fram að Björgólfs­feðgar hefðu byggt upp bjórveldi sitt í Rússlandi í samstarfi við spillta rússneska stjórn­málamenn, enda hafi viðskipta­umhverfið í Rússlandi verið slíkt á þessum tíma að nánast ómögulegt hafi verið að ná árangri án þess konar pólitískra tengsla.

Í skýrslunni er talið að Jeffrey Galmond hafi haft milli­göngu um samskipti Björgólfs Thors við rússneska áhrifa­menn til fram­dráttar viðskipta­veldi hans.

Björgólfur Thor hefur ávallt neitað þessu og var ósáttur með umfjöllun Kastljóss. Þar sagði hann skýrsluna byggja á dylgjum og slúðri. Lyfja­fyrirtækið Barr Pharmaceuticals hafi óskað eftir skýrslunni, en Barr hafi á þeim tíma barist við lyfja­fyrirtækið Actavis, sem var í eigu Björgólfs, um lyfja­fyrirtækið Pliva.

Björgólfur sagðist aldrei hafa verið í viðskiptum við Jeffrey Galmond eða Leonid Reiman, fyrr­verandi samskipta­ráðherra Rússlands. Ennfremur sagði hann það af og frá að mennirnir hefðu aðstoðað hann við að afla sér viðskipta­sambanda í Austur-Evrópu.

Heimildir:

DV: Berst fyrir virðingu

DV: Spillingin í Rússlandi

Vísir: Tengja fjármála­veldi við blóðug mafíuátök í Rússlandi

The Guardian: Next-generation Viking invasion

Morgun­blaðið: Ævintýra­þráin látin ráða ferðinni

Frétta­blaðið – Markaðurinn: Vina­böndin traust frá Rúss­landsárunum

Viðskipta­blaðið: Björgólfur segir skýrslu Kroll innihalda dylgjur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá