Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Bæjarfulltrúi Miðflokksins reiður út í VG og Austurlistann: „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“

Bæjar­fulltrúi Miðflokksins í Múlaþingi, Þröstur Jónsson, er óánægður með að ekkert samráð hafi verið við flokkinn er aðrir listar í minni­hluta sveita­stjórn Múlaþings skiptu með sér fulltrúum í nefndum. Austur­listinn og Vinstri­hreyfingin – grænt framboð fengu alla fulltrúana sem í boði var fyrir minni­hlutann, Miðflokkurinn engan.

Sagt er frá málinu á Austur­frétt.

„Þetta eru forkastanleg vinnu­brögð og ekki til þess fallin að halda þeim vinnuanda sem verið hefur,“ sagði Þröstur á fyrsta fundi nýrrar sveitar­stjórnar.

Sagði Þröstur á fundinum að hin tvö framboðin hefðu myndað blokk án samráðs við Miðflokkinn heldur aðeins sent niður­stöðurnar í tölvu­pósti kvöldið fyrir fundinn. Kvaðst Þröstur sitja hjá við afgreiðslu nefnda af þessum ástæðum og að hann myndi líklegast halla sér að meirihlutanum á nýhöfnu kjör­tímabili þar sem honum líkaði við málefna­skrána sem og fólkið. „Minni­hlutinn getur ekki vænst góðs samstarfs frá M-listanum á kjör­tímabilinu,“ sagði hann á fundinum.

Varð raunin sú í nefndar­kosningunum að Miðflokkurinn fékk engan fulltrúa í byggðarráð, fjölskylduráð og umhverfis- og framkvæmdaráð. Fékk flokkurinn þó áheyrna­fulltrúa í þeim öllum. Hildur Þóris­dóttir oddviti Austur­listans minnti á það í svari sínu til Þrastar að sami háttur hafi verið á á síðasta kjör­tímabili. „Þetta er ekki í fyrsta sinn. Við fengum tvo fulltrúa nú, VG tvo og ákváðum að mynda blokk. VG og Austur­listi eiga málefna­lega samlegð. Þetta eru engar nýjar fréttir sem koma neinum á óvart. M-listi fékk einn mann og var ekki í samnings­stöðu. Það hefði því engu breytt fyrir ykkar stöðu þótt þið hefðuð komið inn í viðræðurnar,“ sagði Hildur.

Oddviti VG, Helgi Hlynur Ásgrímsson kvaðst skilja reiði Þrastar og bað hann afsökunar á að hafa ekki rætt við hann fyrirfram. „Auðvitað átti ég að hringja í þig og tala um þetta, fyrir­gefðu.“

Svaraði Þröstur því til að hann kynni að meta auðmýkt Helga Hlyns en Hildur baðst einnig afsökunar í seinna svari sínu. Benti hún í leiðinni á að fyrir­varinn hafi verið stuttur en taldi það augljóst að flokkarnir tveir, Austur­listinn og VG myndu mynda blokk líkt og gert var síðast. Bætti Helgi Hlynur því við að lítið hefði verið til skiptana í ráðunum og að Miðflokkurinn ætti þó áheyrnar­fulltrúa í öllum þremur ráðum.

Fram kemur einnig í frétt Austur­fréttar að á síðasta kjör­tímabili hafi meirihlutinn og minni­hlutinn skipt jafnt á milli sín formennsku í heima­stjórnum. Ekki er svo þetta tímabil en meirihlutinn verður í formennsku í þremur heima­stjórnum. Björg Eyþórs­dóttir, Framsóknar­flokki, verður formaður á Seyðis­firði, Vilhjálmur Jónsson, Framsókn, á Fljótsdals­héraði og Guðný Lára Guðrúnar­dóttir, Sjálfstæðis­flokki, á Djúpavogi. Athygli vekur að Eyþór Stef­ánsson frá Austur­listanum verði formaður heima­stjórnar Borgar­fjarðar og þar með eini heima­maðurinn sem gegnir formennsku í slíkri stjórn.

Sagði Helgi Hlynur það slæm skref hjá meirihlutanum að taka til sín formennskuna í þriðju heima­stjórninni. „Þið eruð að gera þetta að flokks­pólitísku máli. Gagnrýnin verður harðari en verið hefur.“ Berlind Harpa Svavars­dóttir hjá Sjálfstæðis­flokknum sagði skiptinguna vera ákvörðun meirihlutans og þar muni starfa nýtt, öflugt og áhugasamt fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ