Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Kári gerði ólöglegt lag – Segir útvarpsstjóra til syndanna fyrir að spila það ekki

Kári. (Mynd: Art Bicnick.)
Kári. (Mynd: Art Bicnick.)

Kári Stef­ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða­greiningar, segir Stefán Eiríksson útvarps­stjóra vera gungu fyrir að neita að spila ólöglega útsetningu á íslenska þjóð­söngnum í Ríkis­útvarpinu. Kári segir þessa útsetningu runna undan hans rifjum. Allt þetta kemur fram í aðsendri grein hans í Frétta­blaðinu þar sem hann lætur Stefán og RÚV hafa það óþvegið.

Kári segir þessa vafasömu útsetningu vera eftir Þor­stein Einars­son gítar­leikara og Ey­þór Gunnars­son píanista. Hana má hlusta á hér. Kári segist þó hafa óskað eftir laginu, og því nokkurs konar höfuðpaur málsins. Hann segir verkið innblásið af sambærilegum útsetningum bæði Stra­vins­ky og Jimmy Hendrix.  Hann lýsir aðdrag­anda þess svo:

„Það var svo um daginn að ég bað Þor­stein Einars­son gítar­leikara og Ey­þór Gunnars­son píanista að spila ís­lenska þjóð­sönginn á þann máta að hann ætti erindi inn í þau augna­blik sem eru að líða akkúrat núna. Þeir fóru létt með það og tóku upp magnaða út­gáfu sem er full af til­brigðum sem verða einungis túlkuð sem gagn­rýni á af­skipta­leysi ís­lensks sam­fé­lags gagn­vart næstum öllu sem skiptir máli, kjörum þeirra sem minnst mega sín, barna­fá­tækt, græðgi þeirra sem mest eiga og tak­marka­lausum yfir­gangi út­gerðar­glæpon­anna.“

Kári segist hafa hringt í Stefán útvarps­stjóra til að gauka laginu að honum. „Ekki fór á milli mála að það var skylda mín að koma flutningi tví­menninganna á fram­færi og ég hringdi í Stefán nafna þinn Ei­ríks­son út­varps­stjóra og lagði til að hann léti spila þetta sem síðasta lag fyrir fréttir á 17. júní. Ég sendi honum upp­tökuna og hann sagðist ætla að skoða málið.“

Svo komu smáskilaboð frá Stefáni, en rétt er að geta þess að hann var áður lögreglu­stjóri á höfuð­borgar­svæðinu: „Stöldrum strax við 3. gr. Laga um þjóð­sönginn, þar sem segir að hann skuli ekki flytja eða birta í annarri mynd en hinni upp­runa­legu gerð. Setur okkur aug­ljós­lega skorður. Bkv. SE“.

Kári segir þessa afstöðu lýsandi fyrir hvernig komið er fyrir Ríkis­útvarpinu. „Stjórn­völd eru búin að brjóta Ríkis­út­varpið niður að innan með því að fela stjórn stofnunarinnar fólki sem lítur á hana sem vanda­mál þeirra sem vilja græða peninga á fjöl­miðlum, frekar en þann sam­nefnara þjóðarinnar sem hún var um ára­tugi. Þess vegna verður þjóðin að hlusta á þessa snilldar­út­setningu á þjóð­söngnum alls staðar annars staðar en í Ríkis­út­varpinu, eins og YouTu­be og á einka­reknum út­varps- og sjón­varps­stöðum. Ég reikna með því að þú skiljir að með því erum við ekki að halda fram hjá Ríkis­út­varpinu vegna þess að maður getur ekki haldið fram hjá þeim sem vill mann ekki.“

Að lokum segir Kári þá Þorstein og Eyþór best geymda á réttar­geðdeild, enda glæpamenn. „En síðan hitt, það er engin spurning að Þor­steinn og Ey­þór brutu lög og eru þess vegna glæpa­menn. Það sem meira er, ég get borið vitni um að þeir iðrast einskis. Hið eina sem á eftir að gera er að á­kveða refsinguna en eitt er víst að það kemur ekki til greina að láta mennina ganga lausa og fremja alls konar ó­lög­lega tón­listar­gjörninga. Ég hvet þá sem á­kveða refsinguna að hafa eftir­farandi í huga: Búið er að sýna fram á að það eru sterk tengsl milli sköpunar­gáfu og geð­veiki. Fé­lagarnir tveir, Þor­steinn og Ey­þór, eru snillingar að springa úr sköpunar­mætti og eiga þess vegna ekki heima á Litla Hrauni heldur á réttar­geð­deild.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá