Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Alþjóðlegir nemendur kalla eftir tafarlausum úrbótum hjá HÍ og Útlendingastofnun

„Þetta ár hefur verið sérstak­lega erfitt fyrir erlenda nemendur sem hafa fengið inngöngu í Háskóla Íslands“

Alþjóð­legir nemar við Háskóla Íslands hafa í samstarfi við stúdenta­hreyfinguna No Borders birt opið bréf til Silju Báru Ómars­dóttur, rektors HÍ, og Loga Einars­sonar, menningar-, nýsköpunar- og háskóla­ráðherra. Í bréfinu gagnrýna þeir harðlega bæði Háskólann og Útlendinga­stofnun fyrir stjórnsýslu­bresti sem hafi haft alvarleg áhrif á erlenda nemendur.

„Þetta ár hefur verið sérstak­lega erfitt fyrir erlenda nemendur sem hafa fengið inngöngu í Háskóla Íslands,“ segir í yfir­lýsingunni. Þar kemur fram að margir hafi staðið frammi fyrir „kerfis­bundnum töfum frá Útlendinga­stofnun (ÚTL) og ósamkvæmri stefnu háskólans með hrika­legum afleiðingum.“

Samkvæmt bréfinu hafi margir nemendur ekki getað tryggt sér dvalar­leyfi áður en önnin hófst. „Stúdentar sem seldu eignir, sögðu upp störfum, fjárfestu ævisparnaði sínum í von um að stunda nám á Íslandi og rifu upp fjöl­skyldur sínar í góðri trú, hafa nú misst allt og eru stranda­glópar, útilokaðir frá kennslu­stundum, hlaðnir skuldum og í áfalli vegna akademísks þrots, án þess að þeir eigi sök á því,“ segir í yfir­lýsingunni.

Í bréfinu segir einnig að kostnaðurinn sem nemendur hafi orðið fyrir sé „ógurlegur“. „Fjöl­skyldur hafa verið aðskildar, húsnæðis- og trygginga­greiðslur tapast og heilu náms­árunum frestað og sóað,“ stendur þar ennfremur.

Nemendur segja að slíkur stjórnsýslu­brestur grafi undan orðspori Íslands. „Þessi stjórnsýslu­brestur er einnig djúp­stæður trúnaðar­brestur sem grefur undan orðspori Íslands sem hlúir að lærdómi og réttlæti, þar sem fólk er metið fyrir hæfileika sína í verðleika­samfélagi,“ segir í bréfinu.

Alþjóð­legu nemarnir skora á stjórn­völd og HÍ að bregðast tafar­laust við. „Við biðjum ykkur um að virða skuld­bindingar sem gerðar hafa verið við alþjóð­lega námsmenn og grípa til tafar­lausra aðgerða til að bregðast við þessum mistökum,“ segja þeir.

Þeir krefjast meðal annars fulls gagnsæis frá Háskóla Íslands. „Við skorum á Háskóla Íslands að veita fullt gagnsæi með því að birta inntöku- og höfnunar­tölur erlendra nemenda í ár miðað við fyrri ár,“ segir í bréfinu.

Einnig er áréttað að mikilvægt sé að hætta niðrandi orðræðu um erlenda stúdenta. „Það er einnig mikilvægt að streitast á móti forræðis­legum frásögnum sem sýna alþjóð­lega nemendur sem óvirka einstaklinga sem voru „blekktir“ af TikTok eða á annan hátt ófærir um að taka upplýstar ákvarðanir fyrir sig,“ segir í yfir­lýsingunni. Slíkar frásagnir, að sögn nemanna, endur­skapi nýlendu- og rasíska arfleifð.

Í yfir­lýsingunni eru lagðar fram fjórar tillögur að úrbótum:

  1. Trygging fyrir öruggri inngöngu í HÍ og dvalar­leyfi frá ÚTL fyrir þá sem þegar eru í kennslu­stundum.
  2. Tryggja frestun inntöku vorið 2026 fyrir alla sem verða fyrir áhrifum.
  3. Samræmd stefna þvert á deildir og jöfn meðferð.
  4. Viðurkenning á skaðanum og skuld­binding til fyrir­byggjandi umbóta.

„Vilji hann [Háskólinn] varðveita heilindi sín og það traust sem almenningur ber til hans, samanber árlega könnun Gallup þar sem háskólinn var valin önnur traustasta stofnun landsins, verður hann að bregðast við í samræmi við það, sem felur í sér að koma fram við alla nemendur af siðferði­legum hætti,“ segja nemendur.

Í lok yfir­lýsingarinnar segja erlendir nemendur að þeir séu ekki aðeins gestir heldur virkir þátt­takendur í íslensku samfélagi. „Þegar öllu er á botninn hvolft eru margir alþjóð­legir námsmenn líka skatt­greiðendur og raddir þeirra eiga skilið að heyrast og vera virtar,“ segir í bréfinu.

Hér má sjá yfir­lýsinguna í heild sinni:

Kæra Silja Bára Ómars­dóttir, rektor HÍ,
Kæri menningar-, nýsköpunar- og háskóla­ráðherra, Logi Einarsson.

Alla hina skráðu mannkyns­sögu hefur fólk verið í þekkingar­leit. Frá fornöld til nútíðar hafa stúdenta­hreyfingar, hugsuðir og leitendur þvert á landamæri mótað vitsmuna­lífið. Heródotus ferðaðist á 5. öld og Sima Qian á 2. öld f.o.t. til að kynnast og íhuga hefðir, stofnanir og visku annarra. Á 10. öld e.o.t. knúði svipuð þekkingar­hvöt Ibn Fadlan. Þvert á trúar­hefðir ferðuðust pílagrímar sömuleiðis til lærdóms­miðstöðva í leit að upplýsingum og hugmynda­skiptum. Margir grundvallar­textar lýðræðis, stjórn­sýslu og vísinda voru fyrst þýddir úr forn-grísku yfir á arabísku og síðar sendir til Vestur­landa af fræði­mönnum á því svæði, svo sem Al-Kindi, Al-Farabi, Avicenna (Ibn
Sina), Averroes (Ibn Rushd) og Alhazen (Ibn al-Haytham). Þetta gerðist á tíma þegar vits­munaleg forvitni, ímyndunarafl og nýsköpun takmörkuðust
ekki af landa­mærum. Það var þetta hleypidóma­leysi sem stuðlaði að þeim vexti, efnahagsleg þróun og menningarlegri velmegun sem fylgdi í kjölfarið.

Skipti á vörum og hugmyndum hafa alltaf samtvinnuð lang­ferðum í leit að þekkingu og efnahagslegri velmegun. Ibn Battuta og Marco Polo veittu innsýn þvert á heims­álfur og endur­mótuðu sjálf­skilning heimsins. Í Evrópu miðalda fluttu nemendur á milli háskóla í París, Bologna og
Oxford og lögðu grunn að því sem við viðurkennum nú sem alþjóð­lega æðri menntun. Þessi vits­munalegi hreyfanleiki heldur áfram í dag í
hnattvæddum heimi. Kostir þess að taka á móti alþjóð­legum náms­mönnum felast ekki í því að setja þeim hindranir, heldur í að hlúa að vexti þeirra og framlagi. Þeir sem ferðast til að læra eru ekki óvirkir
þiggjendur menntunar; hvort sem þeir eru sagn­fræðingar, pílagrímar, land­könnuðir, kaupmenn eða alþjóð­legir námsmenn nútímans, hafa þeir
umbreytt, endur­lífgað og auðgað samfélögin sem þeir gengu í.

Til Íslands, þjóðar hverrar menningarleg sjálfs­mynd er samofin land­könnunum, gestrisni og opnum huga, koma alþjóð­legir nemendur með nauðsyn­lega innsýn, þekkingu og sjónar­horn. Þeir endurnýja háskóla og samfélög, stýra okkur frá einangrun og úreldingu og viðhalda þeirri fornu hefð hreyfanleika sem hefur tengt mannleg samfélög í gegnum
árþúsundir. Þeir tryggja að Ísland verði áfram virkur og leiðandi þátt­takandi í alþjóð­legum skoðana­skiptum.

Við erum með fjölmargar hugmyndir og tillögur um hvernig hægt er að nýta betur hæfileika erlendra nemenda og hámarka framlag þeirra til að bæta
íslenskt samfélag í heild. Þótt sumar þessara hugmynda hafi fallið fyrir daufum eyrum undir fyrri stjórnum, vonum við að þið fagnið uppbyggilegum
samræðum og langtíma stefnu­mótandi hugsun um þetta mikilvæga mál.

Stuðningur við alþjóð­lega námsmenn felst því ekki í að flytja inn fólks­fjölda til skamms tíma heldur taka forna og varanlega megin­reglu opnum örmum: að dreifing fólks og þekkingar styrki okkur öll. Ísland
hefur tækifæri til að staðsetja sig ekki á jaðrinum heldur í miðju alþjóðlegrar þekkingar og vits­munalegra hefða. Baráttan sem alþjóð­legir
námsmenn standa frammi fyrir endur­speglar áratuga vanrækslu og útilokun, sem á rætur að rekja til þess að þeir eru ekki viðurkenndir sem
þekkingar­fræðilegir jafningjar.

Þetta ár hefur verið sérstak­lega erfitt fyrir erlenda nemendur sem hafa fengið inngöngu í Háskóla Íslands. Þrátt fyrir að sækja um á réttum tíma, skila inn fullnægjandi gögnum og fjárfesta í umtals­verðu
fjárhags­legu og tilfinninga­legu fjármagni hafa margir staðið frammi fyrir kerfis­bundnum töfum frá Útlendinga­stofnun (ÚTL) og ósamkvæmri stefnu háskólans með hrika­legum afleiðingum. Það gerir að verkum að þeir hafa ekki getað tryggt sér dvalar­leyfi áður en önnin hófst. Þessi skrifræðis­brestur jók enn frekar á skyndilegar stefnu­breytingar í háskólanum: deildir sem upphaf­lega lofuðu netaðgangi og sveigjanleika
aftur­kölluðu síðar slíkan stuðning, hættu við inntöku og buðu aðeins lágmarks endur­greiðslur.

Stúdentar sem seldu eignir, sögðu upp störfum, fjárfestu ævisparnaði sínum í von um að stunda nám á Íslandi og rifu upp fjöl­skyldur sínar í góðri trú, hafa nú misst allt og eru stranda­glópar, útilokaðir frá kennslu­stundum, hlaðnir skuldum og í áfalli vegna akademísks þrots, án þess að þeir eigi sök á því. Þetta hefur neikvæð áhrif á ímynd landsins og langtíma­markmið Háskóla Íslands.

Umfang þess kostnaðar sem um ræðir er ógurlegur. Nemendur og aðstand­endur þeirra hafa mátt þola margra mánaða þögn og óvissu og var refsað fyrir tafir sem þeir höfðu ekki stjórn á. Fjöl­skyldur hafa verið aðskildar, húsnæðis- og trygginga­greiðslur tapast og heilu náms­árunum frestað og sóað. Fyrir marga voru skila­boðin sem bárust þau að tími
þeirra og líf skipti ekki máli. Áhrifin ná út fyrir fjárhagslegt tjón:

þau hafa ýtt undir djúpstæða tilfinningu um svik og sársauka­fullan skilning á að stofnanir sem segjast halda uppi sanngirni, fjöl­breytileika og þátttöku hafa þess í stað viðhaldið kerfis­bundinni útilokun og vanrækslu.

Þessi stjórnsýslu­brestur er einnig djúp­stæður trúnaðar­brestur sem grefur undan orðspori Íslands sem hlúir að lærdómi og réttlæti, þar sem fólk er
metið fyrir hæfileika sína í verðleika­samfélagi. Alþjóð­legir nemendur komu í leit að þekkingu og vexti; þess í stað hefur mörgum verið mætt með afskipta­leysi. Af þessum sökum:

- Við biðjum ykkur um að virða skuld­bindingar sem gerðar hafa verið við alþjóð­lega námsmenn og grípa til tafar­lausra aðgerða til að bregðast við
þessum mistökum.

- Við skorum á Háskóla Íslands að veita fullt gagnsæi með því að birta inntöku- og höfnunar­tölur erlendra nemenda í ár miðað við fyrri ár.

Það er einnig mikilvægt að streitast á móti forræðis­legum frásögnum sem sýna alþjóð­lega nemendur sem óvirka einstaklinga sem voru „blekktir“ af TikTok eða á annan hátt ófærir um að taka upplýstar ákvarðanir fyrir sig. Slíkar frásagnir endur­skapa nýlendu- og rasíska arfleifð þar sem
kynþátta­bundnir og óvestrænir íbúar eru útmálaðir sem barna­legir, auðtrúa eða að þá skorti skynsamlegt sjálfræði. Þessi orðræða afneitar ekki aðeins sjálfræði og mikil­vægri getu nemenda heldur skyggir einnig á víðtækari kerfis­bundinn ójöfnuð innflytjenda­stefnunnar, efnahags­legs óöryggis, húsnæðisóöryggis og kynþátta­misréttis, sem mótar ákvarðana­töku þeirra og tækifæri á Íslandi sem og annars staðar. Að viðurkenna sjálfræði alþjóðlegra stúdenta er að viðurkenna þá sem virka félags­lega
og pólitíska einstaklinga sem búa við flókið fjöl­þjóðlegt gangverk (sem aftur einkennist af orðræðu um öryggismál, útlendinga­hatur, popúlískum og tækifæris­sinnuðum stjórn­málum), en ekki sem fórnar­lömb sem samfélags­miðlar blekkja.

Við skorum ennfremur á bæði Háskóla Íslands og Útlendinga­stofnun að taka tafar­laust upp sanngjörn og mannúðleg úrræði:

  1. Trygging fyrir öruggri inngöngu í HÍ og dvalar­leyfi frá UTL til þeirra nemenda sem þegar eru í kennslu­stundum.
  2. Tryggja frestun inntöku vorið 2026 fyrir alla nemendur sem verða fyrir áhrifum.
  3. Beita samræmdri stefnu þvert á deildir og tryggja jafna meðferð.
  4. Viðurkenna opinber­lega orðinn skaða og skuld­bindast tilfyrirbyggjandi umbóta.

Í stuttu máli er vert að velta fyrir sér stöðu háskólans sjálfs. Vilji hann varðveita heilindi sín og það traust sem almenningur ber til hans, samanber árlega könnun Gallup þar sem háskólinn var valin önnur traustasta stofnun landsins, verður hann að bregðast við í samræmi við það, sem felur í sér að koma fram við alla nemendur af siðferði­legum
hætti.

Háskólinn segir sig með stolti vera vettvang þátttöku og framfara og bendir á að 72% fræðilegra rita hans sé hluti af alþjóð­legu samstarfi. Samt sem áður verður slíkum full­yrðingum um inngildingu og framfarir að fylgja raun­veruleg skuld­binding um ábyrgð, gagnsæi og réttlæti. Þeir sem þekkja til innra starfs stofnunarinnar gera sér einnig grein fyrir því að án erlendra nemenda og starfs­fólks væri hætta á að Háskóli Íslands missti sérstöðu sína. Í þessu skyni ættu ákvarðana­töku­ferli að fela í sér hlutlausa og óháða þjóðfélags­þegna og tryggja bæði gagnsæi og lýðræðislegt lögmæti. Þegar öllu er á botninn hvolft eru margir alþjóð­legir námsmenn líka skatt­greiðendur og raddir þeirra eiga skilið að heyrast og vera virtar.

- Stúdenta­hreyfing No Borders

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá