
Ásmundur Atlason er hættur sem markaðsstjóri Domino's á Íslandi en hann greinir frá þessu í tilkynningu á samfélagsmiðlum
„Eftir sex ár hjá Domino's á Íslandi er komið að tímamótum. Ég kveð fyrirtækið sáttur, glaður og þakklátur fyrir þennan tíma, sem hefur einkennst af jákvæðni, skemmtilegum verkefnum og áskorunum. Þetta hefur verið algjör snilld,“ segir Ásmundur í tilkynningunni.
„Ég hefði ekki geta verið heppnari þegar leiðir okkar lágu saman. Þarna fékk ég tækifæri til að vaxa í starfi og öðlast dýrmæta reynslu. Ég hef kynnst fyrirtækinu frá öllum hliðum, kynnst einstöku samstarfsfólki og starfsfólki þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem vinna náið með Domino’s á ýmsum sviðum. Domino’s er fyrsta vinnuástin mín, sem gerir þetta skref þeim mun erfiðara. En á sama tíma finnst mér þetta rétta augnablikið,“ heldur pítsamaðurinn áfram.
„Það er margt spennandi framundan, en það sem er mér efst í huga er annar strákurinn okkar Karenar sem kom í heiminn 21. febrúar síðastliðinn. Ég ætla að vera í fæðingarorlofi næstu mánuðina og hlakka mest til þess í lífinu að vera meira með strákunum okkar. Hvað gerist síðar kemur í ljós. Ég er bjartsýnn og horfi jákvæðum augum til framtíðarinnar, hlakka til að takast á við nýjar áskoranir og mun mæta öllum spennandi tækifærum með opnum huga,“ skrifar Ásmundur.

Komment