1
Innlent

„Aumingi sendir frá sér yfirlýsingu til fjölmiðla“

2
Innlent

Stefán Einar blæs lífi í samsæriskenningu

3
Peningar

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum

4
Innlent

„Þetta er svaka adrenalínsjokk“

5
Innlent

Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu

6
Pólitík

Þórdís Kolbrún gerð að sendiherra

7
Innlent

Tveir fluttir á bráðamóttöku

8
Fólk

„Spilling var eins og þjóðaríþrótt“

9
Heimur

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku

10
Heimur

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu

Til baka

Dæmdur fyrir að aka drukkinn með barn sitt í bílnum

Maðurinn játaði brot sín skýlaust fyrir dómi

framkvæmdir við heklureit
Laugavegur við NóatúnMaðurinn var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi
Mynd: Víkingur

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 45 daga skilorðsbundið fangelsi og svipt hann ökurétti í fimm ár fyrir akstur undir áhrifum áfengis og brot gegn barnaverndarlögum.

Samkvæmt dómnum ók Mahmoud bifreið um Laugaveg við Nóatún í Reykjavík miðvikudaginn 8. janúar 2025 undir áhrifum áfengis. Í blóðsýni hans mældist vínandamagn 2,44 prómill.

Í ákæru kom jafnframt fram að barn hans hafi verið farþegi í bifreiðinni þegar lögregla stöðvaði aksturinn. Með háttsemi sinni hafi ákærði sýnt af sér „vanvirðandi háttsemi“ gagnvart barninu og „misboðið honum þannig að lífi hans eða heilsu var hætta búin,“ að því er segir í dóminum.

Maðurinn játaði brot sín skýlaust fyrir dómi, sem dómurinn mat honum til málsbóta. Í dóminum kemur fram að hann hafi áður þrisvar gengist undir lögreglustjórasátt vegna umferðar- og útlendingalagabrota, og þetta sé í annað sinn sem hann sé staðinn að akstri undir áhrifum áfengis.

Barbara Björnsdóttir héraðsdómari segir í niðurstöðu sinni að refsingin þyki hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga, en fullnustu hennar sé frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð.

Auk fangelsisrefsingarinnar var hann sviptur ökurétti í fimm ár frá uppkvaðningu dóms og dæmdur til að greiða 66.880 krónur í sakarkostnað.

Málið var flutt af Önnu Guðbjörgu Hólm Bjarnadóttur, saksóknarfulltrúa hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu
Heimur

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu

„Í hreinskilni sagt er þetta komið gott.“
Telja skotárásina á pýramídanum hafa verið skipulagða
Heimur

Telja skotárásina á pýramídanum hafa verið skipulagða

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal
Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku
Heimur

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola
Innlent

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola

Svíar sektaðir eftir landsleik við Pólland
Sport

Svíar sektaðir eftir landsleik við Pólland

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu
Innlent

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu

Húsleit gerð vegna „hinsegin áróðurs“
Heimur

Húsleit gerð vegna „hinsegin áróðurs“

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum
Peningar

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu
Landið

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni
Innlent

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni

Laufey sló í gegn á frumsýningu
Myndir
Fólk

Laufey sló í gegn á frumsýningu

Slysasprenging í skriðdreka drap hermenn
Heimur

Slysasprenging í skriðdreka drap hermenn

Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal
Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal

„Við ætlum okkur að byggja eitthvað miklu meira en bara eitthvað hús.“
Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu
Innlent

Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola
Innlent

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu
Innlent

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni
Innlent

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni

Íslenskri konu ekki gerð refsing fyrir að beita lögreglumann ofbeldi
Innlent

Íslenskri konu ekki gerð refsing fyrir að beita lögreglumann ofbeldi

Loka auglýsingu