1
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

2
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

3
Innlent

Konan er fundin

4
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

5
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

6
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

7
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

8
Innlent

Bylting við flugstöðina

9
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

10
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

Til baka

Ferðamenn slasaðir eftir hatursglæp í Kaupmannahöfn

„Ég vil ekki hefnd, en ég vil réttlæti“

Nyhavn
NyhavnNyhavn er þekktur ferðamannastaður
Mynd: Shutterstock

Heimsókn Iliess Pays til hins þekkta ferðamannastaðar Nyhavn í Kaupmannahöfn endaði með líkamsárás eftir að tveir danskir menn réðust að honum og vinum hans með kynþáttafordómum og barsmíðum.

Iliess, sem er 29 ára og frá Strasbourg, var í Kaupmannahöfn síðastliðinn laugardag ásamt sænsku vinkonu sinni Hodan Hirsi, sem býr í Malmö, og frænda hennar Abdulrahman Hirsi.

Iliess Pays
Iliess PaysIlliess starfar sem dansari

Seint um kvöldið voru þau á leið til Nyhavn þegar tveir ölvaðir menn tóku eftir hópnum og byrjuðu að áreita þau. „Þetta er staður sem maður sér á póstkortum,“ segir Iliess í samtali við Aftonbladet.

Á leiðinni þangað komu tveir ölvaðir danskir menn auga á þremenningana og blóm sem stóð upp úr bakpoka Iliess Pays.

„Má ég fá rósina?“ kallaði annar mannanna.

Félagarnir
Félagarnir umrætt kvöldÁrásarmennirnir spurðu fyrst hvort þeir mættu fá rós

Félagarnir reyndu að hunsa hina drukknu Dani en þeir fylgdu þeim eftir og reyndu að ögra þeim áður en þeir fóru að hrópa að þeim rasískum orðum.

Hodan Hirsi segir mennina meðal annars hafa notað niðrandi kynþáttahugtök á borð við n-orðið og hrópað rasísk ummæli.

Hodan Hirsi
Hodan HirsiHodan varð vitni að árásinni

Skömmu síðar voru Iliess og Abdulrahman slegnir aftan frá og féllu meðvitundarlausir til jarðar.

„Ég var sleginn aftan frá og eftir það man ég lítið,“ sagði Iliess.

Samkvæmt Hodan, sem varð ekki fyrir árásinni sjálfri, stigu mennirnir á höfuð Abdulrahman og börðu og spörkuðu í Iliess meðan hann lá á jörðinni. Á meðan héldu þeir áfram að hrópa rasísk ummæli.

Eftir árásina voru mennirnir fluttir á sjúkrahús í Kaupmannahöfn. Abdulrahman slasaðist alvarlegast, nefbrotnaði og var mjög bólginn í andliti.

Iliess segir árásina hafa haft mikil áhrif á sig bæði líkamlega og andlega.

„Ég er hreinskilnislega í áfalli,“ sagði hann og bætti við að hann ætti erfitt með að standa, sitja og sofa vegna verkja.

Hann starfar sem dansari og segir líkama sinn vera sitt helsta atvinnutæki.

Þau gagnrýna einnig viðbrögð lögreglunnar í Kaupmannahöfn og segja málið ekki hafa verið tekið nægilega alvarlega. Að sögn þeirra hafa þau enn ekki fengið frekari upplýsingar frá lögreglu eftir skýrslutöku.

Árásarmennirnir flúðu af vettvangi og óvíst er hvort þeir hafi verið handteknir.

„Ég vil ekki hefnd, en ég vil réttlæti,“ sagði Iliess.

Hodan Hirsi segir mikilvægt að málið gleymist ekki.

„Við megum ekki láta þetta fara fram hjá okkur,“ sagði hún.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla
Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Fjölmiðlarnir uppljóstruðu um vitneskju forsætisráðherrans um yfirvofandi hryðjuverkaárás Hamas-liða 7. október 2023.
Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Innlent

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

Mágur Toni Braxton lést í nótt
Heimur

Mágur Toni Braxton lést í nótt

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar
Innlent

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles
Heimur

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni
Heimur

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi
Innlent

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura
Heimur

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn
Heimur

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar
Innlent

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar

Sálfræðingur skorar á ráðherra
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla
Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Fjölmiðlarnir uppljóstruðu um vitneskju forsætisráðherrans um yfirvofandi hryðjuverkaárás Hamas-liða 7. október 2023.
Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn
Heimur

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn

Mágur Toni Braxton lést í nótt
Heimur

Mágur Toni Braxton lést í nótt

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles
Heimur

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni
Heimur

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura
Heimur

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura

Loka auglýsingu