Kennari í Mæri og Raumsdals (Møre og Romsdal á norsku)- fylki í Noregi hefur verið dæmdur í eins árs og fimm mánaða fangelsi fyrir að hafa varðveitt, keypt og selt myndefni sem sýnir kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.
Þetta kemur fram í frétt norska ríkisútvarpsins NRK.
Maðurinn var handtekinn og ákærður síðasta haust. Hann starfaði þá sem kennari við skóla í Mæri og Raumsdals-fylki.
Samkvæmt dómsniðurstöðu hafði maðurinn varðveitt mikið magn mynda og myndskeiða sem sýndu kynferðislegt ofbeldi gegn börnum í um tíu ár.
Lögreglan fann tæplega 400 myndir og myndskeið.
Maðurinn er sagður hafa notað fjölda nafnlausra netfanga, VPN-dulritunarþjónustu og samskipta- og skráageymsluþjónustur á borð við Snapchat, Dropbox, Kik, Messenger og OneDrive.
Hann notaði þessa miðla til að hlaða upp, geyma, deila, skiptast á, kaupa og selja efni sem sýndi börn í kynferðislegum aðstæðum.
Maðurinn játaði sök og var málið tekið fyrir í héraðsdómi sem játningarmál.
Í dómsniðurstöðunni er einnig lögð áhersla á að maðurinn hafi tekið skýra afstöðu gegn eigin háttsemi og leitað sér aðstoðar hjá opinberu stuðningskerfi.
Lögreglan hefur ekki haft grun um að maðurinn hafi beitt neinn í nærsamfélaginu líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi.
Auk fangelsisdómsins verða tölva, tveir farsímar og tugir netfanga gerð upptæk.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir