
Belgískur karlmaður hefur verið ákærður fyrir brot á lögum um lax- og silungsveiði vegna veiða án leyfis í Þverá í Borgarfirði. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Vesturlands 6. október.
Samkvæmt ákæru lögreglustjórans á Vesturlandi er maðurinn sakaður um að hafa verið við veiðar án tilskilins leyfis í Þverá við Guðnabakka í Borgarbyggð mánudaginn 25. ágúst 2025.
Maðurinn er fæddur árið 1973 og er sagður með óþekkt lögheimili erlendis.
Þess er krafist af hálfu ákæruvaldsins að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar vegna málsins. Þá er jafnframt gerð krafa um að hann sæti upptöku á veiðibúnaði sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Um er að ræða veiðistöng og laxveiðihjól sem maðurinn er sagður hafa haft meðferðis þegar atvikið átti sér stað.