
MAST á Selfossi
Mynd: Brynhildur Jensdóttir
Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af ristuðum og söltuðum pistasíum merkt Krónunni sem Salvía efh. flytur inn en það greindist ólöglegt varnarefni Clothianidin í vörunni við markaðseftirlit. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlitið innkallað vöruna.
Viðskiptavinum sem hafa verslað vöruna í verslunum Krónunnar er bent á að skila henni í viðkomandi verslun gegn fullri endurgreiðslu.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Krónan
- Vöruheiti: Pistasíuhnetur ristaðar og saltaðar
- Strikamerki: 5694310451291
- Best fyrir dagsetning: 03.01.2027
- Nettómagn: 200 g
- Framleiðandi: Ziba Naghsh
- Innflytjandi: Salvía ehf.
- Dreifing: Verslanir Krónunnar.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
