
Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar eftir 17 ára starf. Hann tók við embættinu síðla árs 2009, en fyrirtækið greinir frá ákvörðuninni í tilkynningu sem RÚV sagði frá.
Í tilkynningunni segir að miklar breytingar hafi orðið á rekstri Landsvirkjunar og íslenskum raforkumarkaði á starfstíma Harðar. Undir hans stjórn voru meðal annars fjórar nýjar virkjanir reistar, skuldir fyrirtækisins lækkaðar og samningar við stóra viðskiptavini endurskoðaðir. Landsvirkjun skilar nú tugum milljarða króna árlega til þjóðarinnar í formi skatta og arðgreiðslna.
„Ég stíg bæði ánægður og stoltur frá borði eftir þessi sautján ár. Fyrst og fremst langar mig að þakka öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum og átt þátt í þeim góða árangri sem við höfum náð fyrir Landsvirkjun og íslenskt samfélag – ekki síst starfsfólki fyrirtækisins,“ segir Hörður í tilkynningunni.
Hann bætir við að sér sé ánægjulegt að skilja við fyrirtækið jafn sterkt og raun ber vitni.
Hörður starfar út októbermánuð. Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, tekur tímabundið við starfinu 1. nóvember og gegnir því þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.
