1
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

2
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

3
Innlent

Konan er fundin

4
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

5
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

6
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

7
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

8
Innlent

Bylting við flugstöðina

9
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

10
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

Til baka

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Fjölmiðlarnir uppljóstruðu um vitneskju forsætisráðherrans um yfirvofandi hryðjuverkaárás Hamas-liða 7. október 2023.

Benjamin Netanyahu.
Benjamin NetanyahuFjölmiðlarnir standa við skrif sín

Netanyahu hefur ákveðið að höfða meiðyrðamál gegn ísraelska fjömiðlinum Haaretz og fleiri fjölmiðlum vegna frétta um viðvaranir fyrir árás Hamas

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, höfðaði á þriðjudag meiðyrðamál gegn dagblaðinu Haaretz, öðrum fjölmiðlum og blaðamönnum vegna fréttar Shlomis Eldar og Ruth Yuval um að hann hefði fengið viðvörun áður en Hamas-samtökin gerðu árásina 7. október 2023.

Netanyahu höfðar einnig mál gegn blaðamönnunum Nadav Eyal, Uri Misgav, Barak Ravid og Attila Somfalvi, auk dagblaðsins Yedioth Aharonot og fréttamiðilsins Ynet.

Í stefnu Netanyahus er frétt Haaretz lýst sem „algjörri og augljósri lygi sem á sér enga stoð í raunveruleikanum“. Hann sakar hina fjölmiðlana og blaðamennina um að hafa magnað upp ásakanirnar, birt framhaldsfréttir um málið og sett fram ummæli sem hann telur meiðandi.

Netanyahu krefst 2,6 milljóna ísraelskra sikla, jafnvirði um 846 þúsund Bandaríkjadala, í skaðabætur frá þeim stefndu. Í stefnunni hafnar hann því að hafa fengið viðvaranir.

Í kærunni segir að „það verði að taka af allan vafa, með afdráttarlausum hætti, að enginn fundur og/eða samtal hafi átt sér stað milli forsætisráðherrans og forseta Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Þá hafi heldur enginn fundur og/eða samtal átt sér stað milli forsætisráðherrans og Abbas Kamel, yfirmanns egypsku leyniþjónustunnar, á þeim tímum sem haldið er fram eða á nokkrum tíma frá september og fram til 7. október 2023. Þetta hrekur með öllu framangreindar rangfærslur.“

Málshöfðunin kemur í kjölfar þess að Netanyahu átti leynilegan fund með Mohamed bin Zayed, forseta Sameinuðu arabísku furstadæmanna, á sunnudag. Samkvæmt heimildarmanni sem þekkir til málsins bað Netanyahu forsetann um að hafna frétt Haaretz um að hann hefði varað við yfirvofandi árás Hamas skömmu fyrir 7. október 2023.

Netanyahu staðfesti að hann hefði farið í heimsóknina ásamt eiginkonu sinni en hafnaði frétt Associated Press um að hann hefði ætlað að biðja forsetann um að vísa frétt Haaretz á bug.

Utanríkisráðuneyti Sameinuðu arabísku furstadæmanna vildi ekki tjá sig um fréttir af fundinum en sagði að ríkið héldi „opnum og beinum samskiptaleiðum“ við Ísrael og miðlaði „öllum viðeigandi upplýsingum úr leyniþjónustu“.

Skrifstofa Netanyahus hafði ekki tjáð sig um málið þegar fréttin var birt.

Viðvaranir til Netanyahus fyrir 7. október

- Viðvörun frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum:

Haaretz greindi fyrst frá málinu og The New York Times staðfesti síðar fréttina. Mohamed bin Zayed, forseti Sameinuðu arabísku furstadæmanna, varaði Netanyahu við um tíu dögum fyrir 7. október og sagði Hamas-samtökin undirbúa umfangsmikla árás. Hann hvatti forsætisráðherrann til að taka viðvörunina alvarlega.

- Fyrsta viðvörun Egypta:

The Atlantic greindi fyrst frá því að Abbas Kamel, yfirmaður egypsku leyniþjónustunnar, hefði farið í leynilega heimsókn til Ísraels 26. september 2023. Þar varaði hann við því að Hamas virtist undirbúa stórfellda árás.

- Frekari viðvaranir frá Egyptum:

Yedioth Aharonoth og The Wall Street Journal greindu frá því að Kamel hefði hringt í Netanyahu nokkrum dögum fyrir 7. október og varað hann við vísbendingum um yfirvofandi árás frá Gaza.

Tveir heimildarmenn, þar á meðal einstaklingur sem ræddi beint við bin Zayed, staðfestu fréttina við The New York Times á föstudag.

Samkvæmt The New York Times sýnir afrit af fundi sem Netanyahu boðaði til með háttsettum öryggisfulltrúum Ísraels 1. október 2023 að hann hafi sagt þeim að allar hernaðaraðgerðir Ísraels á Gaza gætu dregið úr líkum á því að Sádi-Arabía tæki upp stjórnmálasamband við Ísrael. Netanyahu taldi að samkomulag um slíkt samband væri þá skammt undan.

Á föstudag greindi The Atlantic frá því að Kamel hefði komið til Ísraels 11 dögum fyrir árás Hamas 7. október og varað við því að vopnaðir hópar á Gaza væru að undirbúa stórfellda árás. Glugginn til að koma í veg fyrir hamfarir væri að lokast.

Í fréttinni, sem byggði á upplýsingum frá ísraelskum, egypskum, arabískum, bandarískum og evrópskum embættismönnum sem fengið höfðu upplýsingar um heimsóknina, kom fram að Kamel hefði mælt með því að Ísraelar veittu Hamas efnahagslegar tilslakanir til að koma í veg fyrir átök.

Samkvæmt fréttinni varaði Kamel við því að ef Ísrael breytti ekki stefnu sinni myndi „Gaza springa framan í ykkur“. Þessi orð hafði fyrrverandi ísraelskur embættismaður eftir Kamel eftir að hafa fengið upplýsingar um heimsóknina.

The Wall Street Journal greindi frá því á mánudag að Kamel hefði hringt í Netanyahu nokkrum dögum fyrir árás Hamas 7. október 2023 og varað hann við vísbendingum um yfirvofandi árás frá Gaza. Samkvæmt embættismönnum í arabísku ríki höfðu tvær fyrri viðvaranir frá Egyptum ekki verið teknar til greina.

Standa við skrif sín

Ákvörðun Netanyahus um að höfða mál kemur í kjölfar þess að hann sendi Haaretz og blaðamönnunum Eldar og Yuval aðvörunarbréf fyrr í þessum mánuði vegna fyrirhugaðrar meiðyrðamálshöfðunar. Haaretz svaraði bréfinu með því að lýsa yfir fullum stuðningi við fréttaflutning sinn.

Í opinberri yfirlýsingu vegna hótana Netanyahus um málshöfðun sagði Haaretz að blaðið „láti ekki þagga niður í sér vegna tilrauna forsætisráðherrans til að stöðva gagnrýna blaðamennsku – og muni ekki hika við að leiða sannleikann í ljós fyrir dómstólum“.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Innlent

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

„Ég stíg bæði ánægður og stoltur frá borði“
Mágur Toni Braxton lést í nótt
Heimur

Mágur Toni Braxton lést í nótt

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar
Innlent

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles
Heimur

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni
Heimur

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi
Innlent

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura
Heimur

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn
Heimur

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar
Innlent

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar

Sálfræðingur skorar á ráðherra
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

Lögreglan stöðvaði sama fíkniefnasalann þrisvar á tveimur vikum
Innlent

Lögreglan stöðvaði sama fíkniefnasalann þrisvar á tveimur vikum

Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla
Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Fjölmiðlarnir uppljóstruðu um vitneskju forsætisráðherrans um yfirvofandi hryðjuverkaárás Hamas-liða 7. október 2023.
Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn
Heimur

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn

Mágur Toni Braxton lést í nótt
Heimur

Mágur Toni Braxton lést í nótt

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles
Heimur

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni
Heimur

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura
Heimur

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura

Loka auglýsingu