
Tveir létust, tveir slösuðust og eins er enn saknað eftir að sjúkraþyrla hrapaði í sjóinn undan ströndum Los Angeles í Kaliforníu á miðvikudag.
Þyrlan hafði nýlega tekið á loft frá Santa Catalina-eyju og var á leið til meginlandsins þegar hún fórst. Janice Hahn, fulltrúi í sýslustjórn Los Angeles, staðfesti slysið og sagði umfangsmiklar leitar- og björgunaraðgerðir standa yfir.
Santa Catalina-eyja er vinsæll ferðamannastaður undan ströndum Suður-Kaliforníu, um 35 kílómetra frá hafnarsvæðinu í Los Angeles.
Slökkvilið Los Angeles-sýslu og aðrir viðbragðsaðilar fengu tilkynningu um slysið um klukkan 19:53 að staðartíma. Jonathan Torres, verkfræðingur hjá slökkviliðinu, sagði í samtali við sjónvarpsstöðina KTLA að fimm manns hefðu verið um borð í þyrlunni.
Fjórir þeirra höfðu fundist þegar síðast fréttist. Tveir voru úrskurðaðir látnir á vettvangi en tveir aðrir voru fluttir á sjúkrahús á meginlandinu. Þeir voru sagðir í stöðugu ástandi. Leit hélt áfram að fimmta einstaklingnum.
REACH Air Medical Services staðfesti við bandaríska fjölmiðla að ein af sjúkraþyrlum fyrirtækisins hefði lent í slysinu. Ekki liggur fyrir hvað olli því að þyrlan fórst skömmu eftir flugtak.
Þetta er annað alvarlegt slys tengt REACH á skömmum tíma. Í október 2025 hrapaði sjúkraþyrla fyrirtækisins á hraðbraut í Kaliforníu. Þrír slösuðust þá lífshættulega og lést einn þeirra síðar af sárum sínum.