1
Fólk

Jónas Sen missti eiginkonu sína aðeins 26 ára gamall

2
Heimur

„Seinna komu þeir með hund sem nauðgaði mér líka“

3
Heimur

Milljarðamæringur fannst látinn eftir harkalegt rifrildi við eiginkonuna

4
Innlent

Brynjar Leó dæmdur fyrir að nauðga barni

5
Innlent

Þjóðleikhússtjóri svarar engu um Steinunni Ólínu

6
Pólitík

„Þetta með kreditkort borgarstjóra skiptir Reykvíkinga ekki rassgat máli“

7
Fólk

Selja raðhús á 200 milljónir

8
Innlent

Arnar telur að hantaveiran muni leiða til ritskoðunar

9
Innlent

Íris „eltihrellir“ laug kynferðislegu áreiti upp á börn samkvæmt ákæru

10
Pólitík

„Svona vitleysisgangur dæmir sig bara sjálfur“

Til baka

„Ég var kominn með svakalega sektarkennd og niðurrifið var mikið”

Börkur Brynjarsson sökk djúpt í spilafíkn og sektarkennd en leitaði sér loks hjálpar

Börkur Reykjalín
Börkur BrynjarssonBörkur opnar sig um erfiðleikana í viðtali við Sölva Tryggva
Mynd: YouTube-skjáskot

Börkur Brynjarsson utanvegahlaupari og verkfræðingur segist gríðarlega þakklátur fyrir starf Píeta-samtakanna, sem hann þurfti að nota sér sjálfur. Börkur, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, hefur undanfarin ár staðið fyrir hlaupi til styrktar samtökunum. Eftir að hafa sjálfur keyrt sig í algjört þrot áttaði hann sig enn betur á mikilvægi þess að opna á erfiðleikana og byrja að vinna fyrir alvöru í sínum málum:

„Ég var að reka gamlagróið fjölskyldufyrirtæki og var með 5-10 manns í vinnu, en fann að álagið var að keyra mig niður og lokaði fyrirtækinu um áramótin 2023/2024. Þá var ég kominn í einhvers konar sambland af þunglyndi, kvíða og kulnun. Ég taldi mig kominn á botninn og hugsaði með mér að nú yrði ég bara að vinna í mínum málum og koma mér upp aftur. En það tók við mikill tómleiki eftir að ég fór í veikindafrí. Í þessum tómleika fannst mér ég verða að finna eitthvað að gera og vildi láta peninginn sem ég átti vinna fyrir sér. Eitt leiddi af öðru og ég var fljótlega kominn í „day-trading” og taldi að þar gæti ég unnið inn peninga. En ég fór fljótlega með það í mikla fíkn og feluleik og svo varð þetta eiginlega bara að spilafíkn. Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni. Ég var að rembast við að vinna upp tapið, en þetta varð bara verra og verra og svo var ég kominn út í horn með að fela þetta. Ég var þá kominn með svakalega sektarkennd og niðurrifið var mikið yfir því að hafa farið þessa leið,” segir Börkur, sem þá byrjaði að taka á sínum málum:

„Ég endaði á að fara bæði í áfengismeðferð og vinna í spilafíkninni. Í vinnunni með SÁÁ áttaði ég mig fyrst fyrir alvöru á því hvað afneitunin var orðin mikil og hvernig þetta tengdist því að ég hafði keyrt kerfið mitt í þrot þegar ég var að reka fyrirtækið og hvað það var mikið högg fyrir ímyndina að þurfa að loka því. Maður er bara í því að grafa holu þegar maður er kominn á þennan stað. Manni finnst maður svo lítils virði, ekki síst af því að maður hefur verið í feluleika að lifa tvöföldu lífi. Svo þegar maður loksins horfist í augu við sannleikann kemur allt áfallið bara í einu.”

Börkur hefur undanfarin ár staðið fyrir hlaupi til styrktar Píeta samtökunum. Hlaupið fór fram nýlega og heppnaðist vel og þátttakan var góð. Börkur segir mikilvægt að verkja athygli á starfi samtakanna, sem hann þekkir af eigin raun:

„Ég á tvo vini sem hafa tekið líf sitt og á aðra vini sem eru aðstandendur í þessum málum. Svo fór ég sjálfur á þennan stað að fara að hugsa að enda þetta bara þegar staðan var orðin sem verst. Við karlmenn virðumst margir eiga sérstaklega erfitt með að leita okkur hjálpar og finnst við bara vera byrði á annað fólk ef við erum að ganga í gegnum erfiðleika. Það er þessi hugmynd um að við eigum að vera sjáfstæðir og geta „dílað” við hlutina sem virðist inngróin hjá okkur. Samkvæmt alþjóðlegri tölfræði eru um sjötíu prósent sjálfsvíga framin af körlum. Það er augljóst að karlmenn þurfa að verða betri í að opna sig um líðan sína þegar þeir fara í gegnum erfiðleika. Þegar hlutirnir voru sem allra dimmastir hjá mér guggnaði ég meira að segja á fyrsta símtalinu í Píeta, en sem betur fer var strax hringt til baka eftir að ég hafði skellt á. Það var ómetanlegt að geta fengið hlustun frá einhverjum sem ekki dæmdi mig á neinn hátt og við verðum að muna að við erum ekki minni karlmenn þó að við opnum okkur um hlutina, heldur þvert á móti. Það er svo mikilvægt að muna að við erum aldrei einir. Það að finna einhvern sem við getum talað við án þess að upplifa að við séum dæmdir getur stundum verið algjört lykilatriði í að byrja að vinna í sér.”

Börkur segist enn vera að vinna í sínum málum, en leggur mikla áherslu á að heiðarleg og opinská umræða sé lykilatriði í því að ná bata:

„Það tekur rosalega á þá sem verða eftir ef einhver fer þá leið að enda sitt eigið líf. Þegar mér fannst ég vera sem minnst virði var það sú hugsun að ég ætti þrjú börn, foreldra og konu og ég gæti ekki gert þeim þetta. Ég skildi að þetta fjallaði ekki bara um mig heldur alla fjölskylduna. Viðbrögðin sem ég hef fengið við því að opna á þessa hluti hafa almennt verið mjög góð. Maður óttast að fólk dæmi mann þegar maður talar um erfiðleika, en það er ekki raunin. Og ef einhver dæmir mann er það ekkert persónulegt og hefur líklega bara meira að segja um þann sem dæmir.”

Börkur hvetur aðra sem standa í svipuðum sporum og hann gerði til að leita sér hjálpar.

Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg.

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Íris „eltihrellir“ laug kynferðislegu áreiti upp á börn samkvæmt ákæru
Innlent

Íris „eltihrellir“ laug kynferðislegu áreiti upp á börn samkvæmt ákæru

Samkvæmt ákærunni beinast brotin að fjórum fullorðnum einstaklingum og börnum þeirra
Vinsæll starfsmaður lést á skólalóð
Heimur

Vinsæll starfsmaður lést á skólalóð

Brynjar Leó dæmdur fyrir að nauðga barni
Innlent

Brynjar Leó dæmdur fyrir að nauðga barni

Sundlaugar í Reykjavík loka tímabundið í sumar vegna viðhalds
Innlent

Sundlaugar í Reykjavík loka tímabundið í sumar vegna viðhalds

Breskur heimilislæknir sakaður um viðbjóðsleg ummæli um Palestínubörn
Heimur

Breskur heimilislæknir sakaður um viðbjóðsleg ummæli um Palestínubörn

Trump sagður hafa sofnað á fundi
Myndband
Heimur

Trump sagður hafa sofnað á fundi

Michael Richards sást opinberlega í fyrsta sinn í tvö ár
Heimur

Michael Richards sást opinberlega í fyrsta sinn í tvö ár

Tveir í lífshættu eftir skotárás í Bandaríkjunum
Myndband
Heimur

Tveir í lífshættu eftir skotárás í Bandaríkjunum

Skúli sagður hafa notað morfín til að svipta konu lífi
Innlent

Skúli sagður hafa notað morfín til að svipta konu lífi

Milljarðamæringur fannst látinn eftir harkalegt rifrildi við eiginkonuna
Heimur

Milljarðamæringur fannst látinn eftir harkalegt rifrildi við eiginkonuna

Tíu grísir drápust í innbroti hjá Stjörnugrís
Innlent

Tíu grísir drápust í innbroti hjá Stjörnugrís

Fólk

Selja raðhús á 200 milljónir
Myndir
Fólk

Selja raðhús á 200 milljónir

Húsið var byggt árið 2022
Draumaheimili í Löndunum til sölu
Myndir
Fólk

Draumaheimili í Löndunum til sölu

Jónas Sen missti eiginkonu sína aðeins 26 ára gamall
Fólk

Jónas Sen missti eiginkonu sína aðeins 26 ára gamall

Selja höll á tæpar 700 milljónir
Myndir
Fólk

Selja höll á tæpar 700 milljónir

Pabbi Silju Sóleyjar byrjaði að klæða sig í kvenmannsföt þegar hún var 11 ára
Viðtal
Fólk

Pabbi Silju Sóleyjar byrjaði að klæða sig í kvenmannsföt þegar hún var 11 ára

Selja einstakt hús í Hafnarfirði
Myndir
Fólk

Selja einstakt hús í Hafnarfirði

Loka auglýsingu