1
Innlent

BL innkallar fjóra mismunandi bíla vegna eldhættu

2
Landið

Ólíkt tekið á utanvegaakstri á Íslandi og í Frakklandi

3
Innlent

Kiddi Kanína dæmdur fyrir fjölda brota

4
Sport

YouTube-stjarnan tjáir sig meira um meint kynþáttaníð Sigga Bond

5
Fólk

Selja eign sem fær hjörtu áhugafólks um arkitektúr til að slá hraðar

6
Pólitík

Hildur rekur starfsmenn ráðhússins

7
Sport

Siggi Bond sagður hafa verið með kynþáttafordóma á HM

8
Innlent

Lögreglan rannsakaði glæp í starfsmannaaðstöðu á bókasafni

9
Fólk

Landsliðspar eignaðist sitt þriðja barn

10
Heimur

Flugstjóri fékk flogakast í miðju flugi

Til baka

Greta Thunberg meðal aðgerðasinna sem Ísraelsher hefur handtekið

Ísraelar segjast ætla að reka aðgerðarsinnana úr landi á fimmtudaginn.

Gréta Thunberg Freedom Flotilla
Greta ThunbergGreta hefur verið handtekin af Ísraelum
Mynd: Greta Thunberg / Instagram

Ísraelski herinn réðist um borð í nokkra af bátum friðarflotans sem er á leið til Gaza í þeirri von um að hægt sé að koma hjálpargögnum til íbúa Gaza sem upplifa nú hungursneyð ofan á þjóðarmorð. Sænski aðgerðarsinninn Greta Thunberg er meðal þeirra sem hefur verið rænt af ísraelska hernum.

Að minnsta kosti tuttugu ísraelsk herskip réðust í kvöld um borð í minnst sex skip svokallaðs Frelsisflota, sem var á leið til Gaza-svæðisins með aðgerðasinna, blaðamenn, heilbrigðisstarfsmenn og neyðarbirgðir um borð. Um var að ræða annað skip en það sem íslenska aðgerðakonan Margrét Kristín Blöndal, betur þekkt sem Magga Stína, siglir með en skip hennar kemur ekki á svæðið fyrr en eftir um það bil viku.

Samkvæmt frétt Guardian nálguðust herskipin flotann þegar hann var staddur utan við strendur Egyptalands. Þar tilkynnti ísraelski sjóherinn að skipin væru að sigla inn á hafsvæði sem sætti herkví. Farþegum var sagt að vildu þeir koma birgðum til Gaza yrðu þeir að sigla til hafnarborgarinnar Ashdod í Ísrael.

Að sögn farþega skipaði sjóherinn áhöfnum að stöðva vélar bátanna. Á beinu streymi frá þilförum mátti sjá farþega sitja í hring með björgunarvesti, en útsendingar margra hafa síðan verið rofnar.

Blaðamaður miðilsins Drop Site News, sem var um borð í skipinu sem hersveitirnar fóru um borð í, greindi frá því að farþegum hefði verið skipað að fleygja farsímum sínum í sjóinn. Ritstjórn miðilsins hefur misst samband við blaðamanninn.

Frelsisflotinn samanstendur af um 40 bátum og um 500 þátttakendum, þar á meðal aðgerðasinnum, lögmönnum og stjórnmálamönnum. Meðal þeirra eru Svíinn Greta Thunberg, leikkonan Susan Sarandon og írski leikarinn Liam Cunningham. Magga Stína siglir með öðru skipi sem lagði af stað í gær og er enn langt frá svæðinu sem Ísrael skilgreinir sem „hættu­svæði“, þar sem þeir stöðva skip þrátt fyrir að þau séu utan löghelgi ríkisins.

Ísraelska utanríkisráðuneytið staðfesti í yfirlýsingu að nokkrir bátar flotans hefðu verið stöðvaðir og að farþegar þeirra yrðu fluttir til hafnar í Ísrael.

Sendiherra Ísraels hjá Sameinuðu þjóðunum, Danny Danon, segir að aðgerðasinnar um borð í hjálparflotanum til Gaza verði vísað úr landi þegar gyðingahátíðin Yom Kippur lýkur á fimmtudag.

„Við munum ekki leyfa neinum sýndarmennskuviðburði nálægt virku stríðssvæði að brjóta gegn fullveldi okkar. Þeir sem reyndu að fara ólöglega inn á landsvæði Ísraels verða tafarlaust vísað úr landi eftir Yom Kippur,“ sagði Danon í yfirlýsingu.

Hann bætti við að Ísrael hefði „ítrekað boðið leiðir til að koma aðstoð friðsamlega til Gaza,“ en hélt því fram að flotinn hefði „engan áhuga á hjálp – aðeins ögrun.“

Ísrael heldur áfram að stöðva megnið af hjálpargögnum frá því að komast til Gaza, þar sem Sameinuðu þjóðirnar hafa varað við manngerðri hungursneyð og víðtæku hungri vegna umsátursins um svæðið.

Hér fyrir neðan má sjá myndskeið þar sem sýnir Gretu Thunberg tala um að verið sé að ræna þeim og að Ísrael sé að brjóta með því alþjóðalög.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hjartað var ekki í Hafnarfirði hjá einum einstaklingi
Innlent

Hjartað var ekki í Hafnarfirði hjá einum einstaklingi

YouTube-stjarnan tjáir sig meira um meint kynþáttaníð Sigga Bond
Myndband
Sport

YouTube-stjarnan tjáir sig meira um meint kynþáttaníð Sigga Bond

Öryggisfangelsið að Stóra Hrauni fyrsta sinnar tegundar
Innlent

Öryggisfangelsið að Stóra Hrauni fyrsta sinnar tegundar

Ferðamenn gætu átt erfitt með að hringja í neyðarlínuna
Innlent

Ferðamenn gætu átt erfitt með að hringja í neyðarlínuna

Kiddi Kanína dæmdur fyrir fjölda brota
Innlent

Kiddi Kanína dæmdur fyrir fjölda brota

Sælgæti hækkað mun meira í verði en almenn verðbólga
Innlent

Sælgæti hækkað mun meira í verði en almenn verðbólga

Flugstjóri fékk flogakast í miðju flugi
Heimur

Flugstjóri fékk flogakast í miðju flugi

Hildur rekur starfsmenn ráðhússins
Pólitík

Hildur rekur starfsmenn ráðhússins

Meint mannæta handtekin
Myndband
Heimur

Meint mannæta handtekin

Ólíkt tekið á utanvegaakstri á Íslandi og í Frakklandi
Landið

Ólíkt tekið á utanvegaakstri á Íslandi og í Frakklandi

Siggi Bond sagður hafa verið með kynþáttafordóma á HM
Myndband
Sport

Siggi Bond sagður hafa verið með kynþáttafordóma á HM

Landsliðspar eignaðist sitt þriðja barn
Fólk

Landsliðspar eignaðist sitt þriðja barn

Heimur

Flugstjóri fékk flogakast í miðju flugi
Heimur

Flugstjóri fékk flogakast í miðju flugi

„Þetta var ekki eins og ókyrrð heldur eins og einhver hefði kippt í stjórntækin“
Airbus-þotur í rannsókn eftir að sprungur fundust
Heimur

Airbus-þotur í rannsókn eftir að sprungur fundust

Meint mannæta handtekin
Myndband
Heimur

Meint mannæta handtekin

Hvolpi bjargað úr niðurfalli
Myndband
Heimur

Hvolpi bjargað úr niðurfalli

Unglingur endaði á sjúkrahúsi eftir slys í Disneylandi
Myndband
Heimur

Unglingur endaði á sjúkrahúsi eftir slys í Disneylandi

Loka auglýsingu