1
Heimur

Ekkja mannsins sem lést útskrifuð af sjúkrahúsi

2
Innlent

Guðmundur Stefán og Íris Anna vilja stýra skóla

3
Pólitík

Skiltin sem Ari Edwald sá ekki

4
Innlent

Askja innkallar KIA-bíla

5
Pólitík

Guðmundur Ingi hættur í Flokki fólksins

6
Fólk

Ingiríður er í ólgusjó vegna verkja og svefnleysis

7
Heimur

Leikkonan Ruby Rose sakar Katy Perry um kynferðislegt áreiti

8
Fólk

Verðlaunaleikstjóri selur í Þingholtunum

9
Innlent

Maður metinn öryrki eftir að full kona ók yfir fót hans

10
Innlent

Þjófar á ferli

Til baka

Ingiríður er í ólgusjó vegna verkja og svefnleysis

„Ég byrjaði í endurhæfingu þegar ég var 21 árs“

Ingiríður Halldórsdóttir
Ingiríður HalldórsdóttirOpnaði sig í Sofum saman
Mynd: Aðsend

Ingiríður Halldórsdóttir er nýjasta gesturinn í hlaðvarpinu Sofum saman.

Hún er þrítug listakona sem hefur frá barnæsku tekist á við verki sem hafa haft áhrif á svefn hennar. Hún lýsir því í þættinum hvernig hún hefur nýtt húmor og listsköpun til að finna jafnvægi í þeim áskorunum sem fylgja verkjum og svefnleysi.

„Ég verð þrítug á næsta ári og kynni mig oft sem mjög greinda konu því að ég er með dálítið mikið af greiningum,“ segir Ingiríður í þættinum.

„En ég er líka listakona, er að vinna að skúlptúrgerð og samfélagsskipulagi. Já og er ljóðskáld og brandarakelling sem kann ekki að taka hlutunum mjög alvarlega, og er búin að vera á örorku síðan 2021 held ég, svo það er alveg svona komið dálítið langur tími og ég byrjaði í endurhæfingu þegar ég var 21 árs,“ heldur hún áfram.

„Ég var með of mikinn liðleika og bandvefssjúkdóm eða bandvefssheilkenni þannig að alltaf þegar ég var að fara að sofa þá var mér svo illt í fótunum og það er einmitt eitthvað sem mamma og pappi tóku eftir strax því ég var grátandi á næturnar og ég mig rámar í hluta af þessu, það var af því að iljarnar mínar voru svo rosalega flatar og að þegar líkaminn var að reyna að passa liðamótin væru ekki að fara í allar áttir að þá myndar það bólgu. Ég fór í sjúkraþjálfun og var eiginlega í gegnum leikskóla og grunnskóla í því og síðan þegar ég er unglingur þá byrjaði ég að fá einkenni af vefjagigt,“ og segist hafa farið einu sinni í í svefnrannsókn með heilalínurit og að hún hafi vaknað átján sinnum yfir nóttina.

Uppfull af koltvísýringi

Eftir að hafa farið í blóðprufu hafi komið í ljós að hún sé ekki að fá nægilega mikið súrefni.

„Ég er ekki að skila koltvísýringi til baka. Svo ég er bara eins og kókflaska þegar ég vakna, uppfull af koltvísýringi,“ segir Ingiríður sem segist vera læra ýmiskonar tækni við svefn og nefnir sjálfsleiðslutækni

„Er búin að blanda saman að því að það er mjög mikið af tækni sérstaklega fyrir miðtaugakerfissjúkdóma sem er svona þessir tveir flokkar sem er annars vegar bandvefurinn og hins vegar miðtaugakerfið að því að kerfið mitt slakar ekki á, fight or flight er alltaf í gangi. En það eru ákveðnar tæknir sem eru notaðar til að koma því yfir í andstæðuna við fight or flight sem er rest and digest. Þegar líkaminn upplifir öryggi þá leyfir hann meltingunni og svefninum að koma,“ segir listakonan í þættinum.

„Þessi taug liggur frá höfði og niður í kvið og öll örvun sem fylgir þessari taug, hvort sem það sé að öskra, gráta, humma eða eitthvað annað þá kveikir það á þessu viðbragði. En þetta er svona vagus-tauga sjálfsdáleiðsla, er svona grunnurinn sem hentaði mínu kerfi rosalega vel. Þegar börn eru að gráta en gráta með tárum að þá er auðveldara að róa þau niður heldur en ekki. Þá eru þau að kveikja á þessu vagus-tauga viðbragði með því að vera að gráta og þá hefur það áhrif á taugina og við getum róað okkur niður, það virkar eins og að humma.“

Hún segir að það sé margt sem fólk geti ekki stjórnað en hún geti hins vegar beitt húmornum þó að allt þetta sé pirrandi. „Ég sætti mig við raskið en ég er ekki að leyfa því þó að raska öllu,“ heldur hún áfram.

Vel meinandi en stundum meiðandi

„Ég hef líka svo mikinn áhuga á að skilja hluti og líka að finna fyrir hlutina og það er líka sem listin hefur gefið mér svo mikið, þú veist, ég er oft að yrkja mig út úr þessu ástandi að. Ég er að nota mitt lyfjarusl mitt sem medium bæði, þú veist, táknrænt og líka bara að gera fallega hluti úr einhverju sem ekki allir finna fallegt en ég ætla að koma út úr tannlæknastofunni og segja: þú ert tanngarðyrkjumaður og ég ætla að búa til tannblómapott og búa til fígúrur og tannþráð og rósir með,“ segir listakonan.

„Oft er ég bara að tala um lífið mitt en fólk ætlar, oftast frá mjög vel meinandi stað, að hjálpa en það er samt líka meiðandi. Oft er undirliggjandi boðskapurinn sem fólk kannski áttar sig ekki á: Ef þú þekkir þetta svona vel, ef þú sérð vandann, af hverju ertu ekki bara búin að laga þetta? Af hverju ertu ekki búin að lækna þig? En kannski get ég það aldrei. Og það er bara allt í lagi. Ég ætla bara að njóta þessarar sjóferðar meðan ég er í sjóinn fær. Og ég er að myndlíkinga yfir mig, ég get ekki sagt neitt án þess að það sé komið út hálft ljóð! 

Það er eitt ljóð sem ég skrifaði sem einmitt kom út frá samtali sem ég átti við lækni. Hún er sérstaklega áhugasöm um bandvefsbreytileika eins og ég er með og hún var að tala um að fólkið sem hefur þann fjölbreytileika, allir sjá það standandi á klettabrúninni og skilja ekkert hvað þau eru að gera þarna og af hverju þau fara ekki frá brúninni en sjá hvorki það sem er að halda þeim niðri en heldur ekki útsýnið sem þau sjá. Þó að ég sé alveg þreytt á að fá salt í augun allan daginn kann ég að meta fallega útsýnið.“

Ljóð Ingiríðar

Ég er stúlkan sem starir á hafið mitt. 

Ég er stúlkan sem starir á hafið, 

dæmd til að standa á klettabrún. 

Með andlitið á móti stormi, 

gerð til að standa það af mér. 

Rétt eins og kletturinn sem tengir mig við djúpið 

skolast hlutir af mér í burtu, 

sumt af mínum vilja en annað hrifsað af mér. 

Kem ég af tröllkonum sem biðu of lengi, 

sokknar í störf sín þar til sólin kom upp og breytti þeim í stein. 

Dæmdar til að standa af sér storminn, 

gerðar partur af landslaginu sem við hættum síðan að trúa á. 

Þau sjá mig nú í fjarska, halda að ég velji háskann standandi á klettabrún, 

en þau sjá ekki fjötrana sem hlekkja mig niður. 

Eina sem ég get gert er að meta útsýnið, 

bara hafið og hún. 

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Ari Trausti varar við afleiðingum jöklarýrnunar
Innlent

Ari Trausti varar við afleiðingum jöklarýrnunar

„Mikilvægt er að búa landsmenn undir þessar „sviðsmyndir“.“
Sakar Stern-hjónin um „eitrað“ vinnuumhverfi
Heimur

Sakar Stern-hjónin um „eitrað“ vinnuumhverfi

Fögnuður og átök við helgistaði Austur-Jerúsalem
Heimur

Fögnuður og átök við helgistaði Austur-Jerúsalem

65 ára kona ákærð fyrir að drepa eigið barn
Heimur

65 ára kona ákærð fyrir að drepa eigið barn

Kína ögrar Bandaríkjunum við Hormuz-sund
Heimur

Kína ögrar Bandaríkjunum við Hormuz-sund

Jóhann Páll í uppáhaldi hjá Sjálfstæðismönnum
Pólitík

Jóhann Páll í uppáhaldi hjá Sjálfstæðismönnum

Brimborg innkallar Ford-bíla vegna eldhættu
Innlent

Brimborg innkallar Ford-bíla vegna eldhættu

Reykvíkingur tók við eiturlyfjum í „Airfryer“-kassa
Innlent

Reykvíkingur tók við eiturlyfjum í „Airfryer“-kassa

Dularfull vera á mynd Trumps ýtir undir samsæriskenningar
Heimur

Dularfull vera á mynd Trumps ýtir undir samsæriskenningar

Fólk

Ingiríður er í ólgusjó vegna verkja og svefnleysis
Fólk

Ingiríður er í ólgusjó vegna verkja og svefnleysis

„Ég byrjaði í endurhæfingu þegar ég var 21 árs“
Linda Ben í góðum gír í sólinni
Myndir
Fólk

Linda Ben í góðum gír í sólinni

„Óttinn er versti ferðafélagi sem maður getur hugsað sér“
Fólk

„Óttinn er versti ferðafélagi sem maður getur hugsað sér“

Verðlaunaleikstjóri selur í Þingholtunum
Myndir
Fólk

Verðlaunaleikstjóri selur í Þingholtunum

Blaðamaður Morgunblaðsins selur útsýnisíbúð í Árbænum
Myndir
Fólk

Blaðamaður Morgunblaðsins selur útsýnisíbúð í Árbænum

„Þar var ég næstum því dauður“
Myndband
Fólk

„Þar var ég næstum því dauður“

Loka auglýsingu