1
Fólk

Jónas Sen missti eiginkonu sína aðeins 26 ára gamall

2
Heimur

„Seinna komu þeir með hund sem nauðgaði mér líka“

3
Heimur

Milljarðamæringur fannst látinn eftir harkalegt rifrildi við eiginkonuna

4
Innlent

Brynjar Leó dæmdur fyrir að nauðga barni

5
Innlent

Þjóðleikhússtjóri svarar engu um Steinunni Ólínu

6
Pólitík

„Þetta með kreditkort borgarstjóra skiptir Reykvíkinga ekki rassgat máli“

7
Fólk

Selja raðhús á 200 milljónir

8
Innlent

Arnar telur að hantaveiran muni leiða til ritskoðunar

9
Innlent

Íris „eltihrellir“ laug kynferðislegu áreiti upp á börn samkvæmt ákæru

10
Pólitík

„Svona vitleysisgangur dæmir sig bara sjálfur“

Til baka

Kolbeinn segir skólahljómsveitir vera eina af grunnstoðum íslensks tónlistarlífs

„Ég elska tónlist“

Kolbeinn H. Stefánsson
Kolbeinn H. StefánssonEr dósent í Háskóla Íslands.
Mynd: Háskóli Íslands

Kolbeinn H. Stefánsson, dósent í efnahagsfélagsfræði við Háskóla Íslands, segir skólahljómsveitir gegna mikilvægu hlutverki í íslensku tónlistarlífi og félagsstarfi barna. Þetta kemur fram í pistli sem hann birti á Facebook eftir að hafa starfað sem sjálfboðaliði á landsmóti skólahljómsveita um helgina.

„Ég elska tónlist. Þungarokkið er ákveðinn kjarni fyrir mér en áhugi minn á tónlist er mun víðari. Ég hef lengi dáðst að því hvað okkur tekst að halda úti öflugu tónlistarlífi á þessu fámenna skeri sem við búum á. Það er á mun öflugra en við eigum að geta vænst,“ skrifar Kolbeinn í byrjun.

Í pistlinum lýsir Kolbeinn því hvernig hann hafi varið deginum með yngstu þátttakendum mótsins, svokölluðum A-sveitum, þar sem börn víðs vegar að af landinu komu saman í Kópavogi til æfinga, leikja og tónleikahalds. Hann segir stemninguna hafa verið afar góða og hrósar því starfi sem unnið er innan skólahljómsveita landsins.

Að sögn hans eru skólahljómsveitir ein af grunnstoðum íslensks tónlistarlífs þar sem börn fá tækifæri til að læra á hljóðfæri án þess að kostnaður verði foreldrum ofviða. Hann bendir á að námið sé fullgilt tónlistarnám sem geti leitt til frekara tónlistarnáms síðar meir.

Kolbeinn nefnir einnig að fjölmargir íslenskir tónlistarmenn hafi hafið sinn feril í skólahljómsveitum. Þar læri börn ekki aðeins á hljóðfæri heldur einnig að spila saman í hljómsveit og öðlist dýrmæta félagslega reynslu.

Dregur úr félagslegri einangrun

Hann segir eigin reynslu af þátttöku barna sinna í skólahljómsveitum sýna hversu mikil áhrif starfsemin geti haft, bæði tónlistarlega og félagslega. Þá bendir hann á að öflugt tómstundastarf geti gegnt mikilvægu hlutverki í að draga úr félagslegri einangrun og vanlíðan meðal barna og ungmenna.

Í pistlinum vekur Kolbeinn sérstaka athygli á stöðu skólahljómsveita í Reykjavík. Þar starfi fjórar skólahljómsveitir en biðlistar séu jafn langir og nemendafjöldi þeirra, ef ekki lengri. Hann segir mörg börn komast aldrei að í starfseminni og fari þar með á mis við bæði tónlistarnám og mikilvægan félagsskap.

Þarf að efla starfsemina

Að mati Kolbeins er því fullt tilefni fyrir Reykjavíkurborg til að efla starfsemi skólahljómsveita enn frekar. Hann tekur þó fram að slíkt leysi ekki eitt og sér allan þann vanda sem börn og ungmenni glíma við, en telur tónlistarnám vera mikilvægan hluta af fjölþættu samfélagslegu átaki til að styðja við velferð barna.

Kolbeinn segir skólahljómsveitir jafnframt vera hagkvæma leið til að gera tónlistarnám aðgengilegt fyrir börn af tekjulægri heimilum og þar með stuðla að auknum jöfnuði í aðgengi að listnámi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Íris „eltihrellir“ laug kynferðislegu áreiti upp á börn samkvæmt ákæru
Innlent

Íris „eltihrellir“ laug kynferðislegu áreiti upp á börn samkvæmt ákæru

Samkvæmt ákærunni beinast brotin að fjórum fullorðnum einstaklingum og börnum þeirra
Vinsæll starfsmaður lést á skólalóð
Heimur

Vinsæll starfsmaður lést á skólalóð

Brynjar Leó dæmdur fyrir að nauðga barni
Innlent

Brynjar Leó dæmdur fyrir að nauðga barni

Sundlaugar í Reykjavík loka tímabundið í sumar vegna viðhalds
Innlent

Sundlaugar í Reykjavík loka tímabundið í sumar vegna viðhalds

Breskur heimilislæknir sakaður um viðbjóðsleg ummæli um Palestínubörn
Heimur

Breskur heimilislæknir sakaður um viðbjóðsleg ummæli um Palestínubörn

Trump sagður hafa sofnað á fundi
Myndband
Heimur

Trump sagður hafa sofnað á fundi

Michael Richards sást opinberlega í fyrsta sinn í tvö ár
Heimur

Michael Richards sást opinberlega í fyrsta sinn í tvö ár

Tveir í lífshættu eftir skotárás í Bandaríkjunum
Myndband
Heimur

Tveir í lífshættu eftir skotárás í Bandaríkjunum

Skúli sagður hafa notað morfín til að svipta konu lífi
Innlent

Skúli sagður hafa notað morfín til að svipta konu lífi

Milljarðamæringur fannst látinn eftir harkalegt rifrildi við eiginkonuna
Heimur

Milljarðamæringur fannst látinn eftir harkalegt rifrildi við eiginkonuna

Tíu grísir drápust í innbroti hjá Stjörnugrís
Innlent

Tíu grísir drápust í innbroti hjá Stjörnugrís

Fólk

Selja raðhús á 200 milljónir
Myndir
Fólk

Selja raðhús á 200 milljónir

Húsið var byggt árið 2022
Draumaheimili í Löndunum til sölu
Myndir
Fólk

Draumaheimili í Löndunum til sölu

Jónas Sen missti eiginkonu sína aðeins 26 ára gamall
Fólk

Jónas Sen missti eiginkonu sína aðeins 26 ára gamall

Selja höll á tæpar 700 milljónir
Myndir
Fólk

Selja höll á tæpar 700 milljónir

Pabbi Silju Sóleyjar byrjaði að klæða sig í kvenmannsföt þegar hún var 11 ára
Viðtal
Fólk

Pabbi Silju Sóleyjar byrjaði að klæða sig í kvenmannsföt þegar hún var 11 ára

Selja einstakt hús í Hafnarfirði
Myndir
Fólk

Selja einstakt hús í Hafnarfirði

Loka auglýsingu