
Demókrataþingkonan Yassamin Ansari hefur farið fram á að Barron Trump, yngsti sonur Donalds Trump Bandaríkjaforseta, verði yfirheyrður vegna tengsla sinna við Andrew og Tristan Tate, sem sæta alvarlegum ákærum um meðal annars nauðganir og mansal.
Ansari vill að eftirlitsnefnd fulltrúadeildarinnar rannsaki tengsl Tate-bræðranna við fólk í innsta hring forsetans, þar á meðal Barron Trump. Hún segir kanna þurfi hvort Barron hafi haft vitneskju um meint brot þeirra eða átt samskipti við föður sinn eða embættismenn vegna réttarstöðu bræðranna.
Andrew Tate hefur áður sagst þekkja Trump-fjölskylduna vel og fullyrt að hann hafi átt samskipti við Barron Trump.
Tate-bræðurnir voru handteknir í Miami um helgina eftir að bresk yfirvöld gáfu út nýjar ákærur á hendur þeim. Andrew Tate er meðal annars ákærður fyrir sjö ný nauðgunarbrot, mansal og vörslu myndefnis sem tengist kynferðislegri misnotkun barna. Tristan Tate hefur verið ákærður fyrir tvær nauðganir og brot tengd mansali. Þeir neita báðir sök.
Aðeins tveimur dögum fyrir handtökuna sóttu bræðurnir veislu í Washington sem sérstakur sendifulltrúi Trump-stjórnarinnar stóð fyrir. Þá fylgir varaforsetinn JD Vance þeim báðum á samfélagsmiðlinum X og Donald Trump yngri hefur áður gagnrýnt meðferð rúmenskra yfirvalda á þeim.
Hvíta húsið hefur hins vegar sagt að Donald Trump hafi engin áform um að skipta sér af framsalsmáli þeirra á meðan það er til meðferðar fyrir dómstólum.
