1
Heimur

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð

2
Heimur

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu

3
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

4
Fólk

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum

5
Heimur

Dómari skipar Trump að afhenda gögn

6
Heimur

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys

7
Heimur

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn

8
Heimur

Karlmenn flykkjast í háreyðingu eftir að stuttbuxur voru leyfðar í vinnunni

9
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

10
Heimur

Kona ákærð fyrir morð á breskri fjögurra barna móður í Frakklandi

Til baka

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Fimmtán ár frá mannskæðustu hryðjuverkaárásum Norðurlanda

752488588_1349723290641547_7894872192680516651_n
Minningarlundurinn í VatnsmýriSigmundur Ernir Rúnarsson alþingismaður flutti ávarp fyrir hönd Samfylkingarinnar og Þröstur Ingvarsson sá um tónlistarflutning.
Mynd: Facebook/Norges ambassade i Reykjavik

Á miðvikudaginn fór fram árleg minningarathöfn í 22. júlí-minnilundinum í Vatnsmýri, þar sem þess var minnst að 15 ár eru liðin frá hryðjuverkaárásunum í Ósló og Útey árið 2011. Það var Ungt jafnaðarfólk sem stóð fyrir athöfninni.

Hilde Janne Skorpen, staðgengill sendiherra (chargé d’affaires a.i.) hjá norska sendiráðinu, flutti ávarp við athöfnina. Í máli sínu lýsti Skorpen yfir áhyggjum af því að 15 árum eftir árásirnar eigi hægriöfgafullar hugmyndir enn fylgi að fagna. Vakti hún sérstaka athygli á því að ungt stjórnmálafólk, sem berst fyrir jafnrétti og lýðræði, búi enn við ógnanir og hatursorðræðu. Undirstrikaði hún ríka ábyrgð samfélagsins alls til að koma í veg fyrir að slík viðhorf nái að skjóta rótum.

Auk Skorpen flutti Sigmundur Ernir Rúnarsson alþingismaður ávarp fyrir hönd Samfylkingarinnar og Þröstur Ingvarsson sá um tónlistarflutning.

Norska sendiráðið kom á framfæri sérstökum þökkum til Ungs jafnaðarfólks fyrir að halda minningunni á lofti ár hvert. Í yfirlýsingu frá sendiráðinu var lögð áhersla á órjúfanleg tengsl Íslands og Noregs og áréttað að árás á lýðræðið í öðru ríkinu væri árás á þau bæði.

Mannskæðustu fjöldamorð í sögu Noregs

Hryðjuverkaárásirnar þann 22. júlí 2011 eru mannskæðustu voðaverk sem framin hafa verið í Noregi á friðartímum. Alls létust 77 einstaklingar í tveimur samfelldum árásum hægriöfgamannsins Anders Behring Breivik:

Árásirnar hófust síðdegis þegar öflug heimagerð bílasprengja sprakk í miðborg Óslóar, nálægt stjórnarráðsbyggingum landsins. Sú sprenging varð átta manns að bana og olli gríðarlegu tjóni.

Skömmu síðar hélt árásarmaðurinn, dulbúinn sem lögreglumaður, út í eyna Útey í Tyrifirði. Þar stóðu yfir árlegar sumarbúðir AUF, ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins. Árásarmaðurinn hóf miskunnarlausa skothríð sem stóð yfir í rúma klukkustund og varð 69 manns að bana, þar af mörgum unglingum og börnum.

Minningarlundurinn í Vatnsmýri var stofnaður skömmu eftir atburðina, sumarið 2012. Grunnur að lundinum var lagður við Norræna húsið með gróðursetningu trjáa til að heiðra minningu fórnarlambanna og sýna samstöðu norrænu þjóðanna gegn pólitísku ofbeldi og öfgafullu hatri.

Hér má lesa færslu norska sendiráðsins í heild sinni:

„Í gær tók sendiráðið þátt í árlegri minningarathöfn um 22. júlí sem Ungt jafnaðarfólk stóð fyrir í 22. júlí-minnilundinum í Vatnsmýri.

Chargé d’affaires a.i., Hilde Janne Skorpen, flutti ávarp fyrir hönd sendiráðsins. Þar benti hún meðal annars á að enn í dag, 15 árum eftir hryðjuverkaárásina, eiga hægriöfgafullar hugmyndir enn nokkurt fylgi og að ungt stjórnmálafólk sem berst fyrir jafnrétti og lýðræði búi við ógnanir og hatursorðræðu. Skorpen lagði áherslu á ábyrgð okkar allra á því að koma í veg fyrir að slík viðhorf nái fótfestu í samfélagi okkar.

Þingmaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson flutti ávarp fyrir hönd Samfylkingarinnar og Þröstur Ingvarsson sá um tónlistarflutning.

Við kunnum Ungu jafnaðarfólki afar miklar þakkir fyrir að hafa frumkvæði að því að halda minningarathöfn 22. júlí ár hvert. Noregur og Ísland eiga náin tengsl og árás á lýðræðið í einu landa okkar er árás á okkur öll.

Aldrei þegja, aldrei gleyma“

751752041_1349723320641544_6631596139453520478_n
Mynd: Facebook/Norges ambassade i Reykjavik
753275850_1349723253974884_3936112038291247868_n
Mynd: Facebook/Norges ambassade i Reykjavik
753169786_1349723270641549_8329746848144958722_n
Mynd: Facebook/Norges ambassade i Reykjavik
752782189_1349723367308206_7174194009489938729_n
Mynd: Facebook/Norges ambassade i Reykjavik
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nýtt upphaf eftir skilnað
Fólk

Nýtt upphaf eftir skilnað

Einvera sögð lykill að sjálfsuppgötvun og auknum lífsgæðum
Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu
Myndband
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

Daði og fjölskylda á ferð um landið
Myndband
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi
Landið

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi

Fjórir Palestínumenn og ólöglegur landnemi létust í blóðugum átökum á Vesturbakkanum
Heimur

Fjórir Palestínumenn og ólöglegur landnemi létust í blóðugum átökum á Vesturbakkanum

Íslandsmótið í sjósundi 2026
Myndband
Sport

Íslandsmótið í sjósundi 2026

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu
Heimur

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum
Myndband
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela
Innlent

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn
Heimur

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn

Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Auðjöfurinn er styrktaraðili sjóðs sem styður ólöglegar landnemabyggðir
Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda
Innlent

Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela
Innlent

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Loka auglýsingu