1
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

2
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

3
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

4
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

5
Heimur

Dularfullur hlutur úr geimnum fannst á miðjum maísakri

6
Fólk

Stjarnan á Sólheimum

7
Minning

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá

8
Heimur

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi

9
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

10
Innlent

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur

Til baka

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Auðjöfurinn er styrktaraðili sjóðs sem styður ólöglegar landnemabyggðir

Menningarmiðstöð gyðinga
Menningarmiðstöð gyðingaRússneskur auðmaður vígði húsnæðið
Mynd: Beit Shvidler Jewish Center of Iceland

Rabbíni gyðinga á Íslandi segir nýja gyðingamenningarmiðstöð við Hverfisgötu í Reykjavík hafa verið fjármögnuð með einkaframlögum frá einstaklingum á Íslandi og erlendis, en neitar að upplýsa hverjir styrktu verkefnið eða hversu há framlög þeirra voru.

Fram kemur í ítarlegri umfjöllun Heimildarinnar að áætlaður kostnaður við kaup og endurbætur á húsnæðinu sé um 3,6 milljónir Bandaríkjadala, eða um 455 milljónir króna. Á söfnunarsíðu verkefnisins kemur fram að um 96 prósent þeirrar upphæðar hafi safnast.

Athygli vekur að rússneski auðmaðurinn Eugene Shvidler klippti á borðann við opnun miðstöðvarinnar fyrr í mánuðinum. Húsið ber jafnframt nafn hans, Beit Shvidler Jewish Center of Iceland.

Shvidler er á viðskiptaþvingunarlista breskra stjórnvalda vegna tengsla sinna við rússneska auðkýfinginn Roman Abramovich. Þá hefur hann einnig verið nefndur sem styrktaraðili Elad-sjóðsins, sem styður uppkaup á eignum Palestínumanna í Austur-Jerúsalem og stækkun ólöglegra ísraelskra landnemabyggða.

Rabbíninn Avraham Feldman segir þó að menningarmiðstöðin sé ekki fulltrúi Ísraels heldur hafi það markmið að þjóna gyðingasamfélaginu á Íslandi og kynna gyðinglega menningu og sögu.

„Sem aðalrabbíni á Íslandi er hlutverk mitt að þjóna samfélaginu á staðnum. Ég er ekki fulltrúi Ísraels né tala fyrir neina ríkisstjórn,“ segir Feldman í skriflegu svari til Heimildarinnar.

Hann segir jafnframt að Chabad-hreyfingin, sem rekur miðstöðina, leggi áherslu á menningar- og samfélagsstarf og að í húsinu verði brátt opnað safn um sögu gyðinga á Íslandi.

Sjá má umfjöllun Heimildarinnar hér.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

„Ég missti hluta af sálu minni þegar besta vinkona mín lést“
Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins
Heimur

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio
Myndband
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli
Heimur

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Aðilanum varð ekki meint af
Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík
Innlent

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Loka auglýsingu