1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

4
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

7
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

8
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

9
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

10
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

Til baka

Myndband sýnir ótrúlega björgun föðurs

Stökk á lestarteinana og hélt barni sínu að sér á meðan lestin fór yfir þau

Björgun
Frá vettvangiFöðurnum var hampað sem hetju
Mynd: Samsett

Faðir og ungabarn hans lifðu af eftir að þau féllu bæði niður á lestarteina á lestarstöð í Bangladess þegar lest var að leggja af stað. Faðirinn lagðist yfir barnið og skýldi því með líkama sínum á meðan átta vagnar fóru yfir þau.

Fjölskyldan hafði ferðast frá Brahmanbaria til Bhairab með Titas-úthverfalestinni. Samkvæmt bangladíska miðlinum Daily Sun kom lestin á stöðina um eina og hálfa klukkustund á eftir áætlun. Þegar lestin fór aftur af stað reyndi faðirinn að stíga út með barnið í fanginu, en það rann úr höndum hans og féll niður í þröngt bilið milli lestarinnar og brúnar brautarpallsins.

Faðirinn brást strax við. Hann stökk niður á teinana, tók barnið í fangið, þrýsti sér flötum upp að veggnum við pallinn og hélt sér þar á meðan átta vagnar lestarinnar fóru beint yfir þau. Bæði sluppu án alvarlegra meiðsla.

Vitni fylgdust skelfingu lostin með atvikinu án þess að geta gripið inn í í tæka tíð.

Starfsmaður í lestinni sagði að fjölskyldan hefði verið að reyna að fara út úr lestinni á meðan hún var þegar farin af stað. Hann staðfesti að faðirinn hefði brugðist tafarlaust við, haldið barninu fast og lagst upp að veggnum, sem hafi bjargað þeim þegar lestin fór framhjá.

Á meðan að þessu stóð aðstoðuðu aðrir farþegar móður barnsins við að komast örugglega út úr lestinni.

Eftir að lestin fór framhjá hlupu viðstaddir að og klöppuðu fyrir föðurnum fyrir skjót og yfirveguð viðbrögð hans.

Myndband af atvikinu hefur síðan farið víða á samfélagsmiðlum og margir hafa hrósað föðurnum fyrir hugrekki og yfirvegun. Sumir hafa jafnvel kallað hann hetju.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu