1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

4
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

7
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

8
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

9
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

10
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

Til baka

Nathan Lane rifjar upp erfiðasta samtal lífs síns

Stórleikarinn sagði móður sinni árið 1975 að hann væri samkynhneigður. Svar hennar særði hann djúpt.

Nathan Lane
Nathan LaneNathan opnaði sig í viðtali við Howard Stern
Mynd: CINDY ORD / GETTY IMAGES VIA AFP

Nathan Lane, einn þekktasti sviðs- og kvikmyndaleikari Bandaríkjanna, var í viðtali á dögunum hjá Howard Stern þar sem hann opnaði sig um persónuleg málefni, þar á meðal erfiða stund þegar hann sagði móður sinni að hann væri samkynhneigður en það var árið 1975.

Lane segist aldrei munu gleyma þeirri reynslu. „Ég vildi ekki segja henni það, en áður en ég fór höfðum við gengið í gegnum svo margt saman og ég hafði aldrei logið að henni. Þannig að ég settist niður með henni og sagði: „Sjáðu til, ég veit að þú heldur að ég hafi verið að hitta stelpu, en í raun hef ég verið að hitta strák“.“

Hann rifjar upp að móðir hans hafi svarað: „Áttu við að þú sért samkynhneigður?“

„Ég hafði aldrei heyrt það orðað svona áður,“ sagði Lane.

„Og ég sagði: „Já, ég held það.“ Hún sagði það ekki af illsku eða reiði heldur með ákveðinni sorg: „Ég vildi frekar að þú værir dáinn“.“

Lane segist hafa brugðist snöggt við og svarað: „Ég vissi að þú myndir skilja.“

Leikarinn, sem er 70 ára og meðal annars þekktur fyrir hlutverk sitt í Only Murders in the Building og Birdcage, segir mikilvægt að horfa á viðbrögð móður sinnar í samhengi við tímann. „Þú verður að skilja að þetta var önnur kynslóð. Þetta var ekki manneskja sem var upplýst á þann hátt.“

Hann, sem hefur starfað sem leikari frá því snemma á níunda áratugnum og hefur hlotið Emmy-verðlaun, segir að þetta samtal hafi verið það erfiðasta sem hann hafði gert á þeim tíma.

„Mér fannst ég þurfa að gera þetta. Ég þurfti að vera heiðarlegur við hana,“ sagði hann. „Ég hélt einhvern veginn að hún myndi skilja, en hún gerði það ekki.“

Viðbrögð innan fjölskyldunnar voru þó ekki öll á sama veg. „Bróðir minn virtist ekkert kippa sér upp við þetta. Hann sagði bara: „Ég elska þig sama hvað“.“

Lane kom opinberlega út árið 1999 í viðtali við The Advocate, þremur árum eftir að hann vakti mikla athygli fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni The Birdcage, sem Mike Nichols leikstýrði, ásamt Robin Williams og Gene Hackman.

Hann sagði að ákvörðun hans um að stíga fram hefði meðal annars verið undir áhrifum af örlögum Matthew Shepard, 21 árs manns sem var myrtur fyrir að vera samkynhneigður.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu